Vikan


Vikan - 29.03.1979, Side 23

Vikan - 29.03.1979, Side 23
þessum tveimur konum kleift að eignast langþráð börn. Því hafi verið litið á Louise sem kraftaverk er Alastair sönnunin á þvi að þarna var engin tilviljun að verki. Báðum konunum hafði verið sagt fyrir sjö árum að þær gætu aldrei eignast börn vegna stíflaðra eggjaleiðara. Hjónin Brown og Montgomery hittust á hóteli í nágrenni Glasgow og eyddu þar deginum saman. — Það er ósköp eðlilegt að okkur hafi orðið vel til vina eftir þessa sameiginlegu reynslu okkar, sagði John Brown. — Og við höfum ákveðið að halda vináttunni við með því að heimsækja hvert annað. Bæði börnin dafna vel. Louise vegur nú rúm 8 kíló, er farin að taka tennur og er á allan hátt kraftmikil telpa. — Hún er ekki alveg farin að skríða en henni tekst að mjaka sér áfram, segir Lesley. — Hún er orðin svo fjörmikil að ég má varla líta af henni. Alastair er ekki nema tæp Hjónin Graca og Jimmy Montgomery og John og Lesley Brown mefl glasabömin sin. þrjú kíló og móðir hans, Grace á í erfiðleikum með að finna föt sem passa á hann. En hann dafnar vel og er hættur að vakna upp á nóttunni. Hann líkist mjög föður sínum, Jimmy Montgomery, sem er hljómlistarmaður að atvinnu. Það eina sem skyggir á gleði Montgomery-hjónanna er það að hvorki dr. Steptoe né dr. Edwards höfðu tök á að vera viðstaddir fæðinguna. — Ég hef svo mikla trú á þeim að ég held þeir gætu fengið mig að gera hvað sem væri, segir Grace. — Þess vegna varð ég fyrir vonbrigðum að þeir skyldu ekki geta verið viðstaddir fæðinguna. Copyright, Associated Newspapers GroupLtd., 1978. Proprietors Inc/Bookman I

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.