Vikan


Vikan - 29.03.1979, Síða 34

Vikan - 29.03.1979, Síða 34
Draumur sem er kominn fram Kæri draumráðandi! Ég hef hér tvo drauma handa þér, sem ég hef mikinn áhuga á að fá ráðna og vona að sú ósk mín rætist. Draumur I. Ég og systir mín vorum að aka, að mér fannst, í Noregi. Hún ók en ég sat í framsætinu. Landslaginu mætti líkja við eyðimörk, frekar hvítur en aðeins gráleitur sandur og nokkur lítil græn tré á stangli í sandhólnum, sem var frekar hár og okkur á hœgri hönd. Beint framundan var annar stærri sandhóll, sem minntifrekar á fjall, ogá milli þeirra lá greið leið, að okkur fannst, um dalinn. Ég sagði að mér þætti miklu fallegra í Noregi en Svíþjóð, en þessi systir mín býr þar. Það lá vegur meðfram lægri sand- hólnum og þegar við höfðum ekið smáspotta af veginum sáum við að hann var allt of þröngur svo að við bökkuðum til baka og ætluðum að aka inn dalinn, sem virtist vera sléttur og greiðfær. Við höfðum ekki ekið meira en ca 2 metra er systir mín snar- stoppaði bílinn. Þá leit ég út um fram- rúðuna og það var þverhnípt niður, minnst 100 m, og okkur dauðbrá. Svo rann bíllinn aðeins áfram nœr brún- inni. Ég hrópaði „Stoppaðu bílinn, hann rennur, ” og hugsaði um leið hvaða roluskapur og hugsunarleysi þetta væri eiginlega. Síðan snerum við til baka sömu leið og við komum. Sú leið var örlítið bugðótt og ekki eins víðsýn. Draumur II. Ég og barnsfaðir minn, sem er norskur, gengum léttstíg hönd í hönd frá heimili mínu. Það var sólskin og blíða og nokkrar hrœður á gangi. Við gengum á ská til vinstri yfir götuna og það voru engir bílar sjáanlegir. Ég var í norskum þjóðbúningi með stuttu pilsi, aðalliturinn var rauður með svörtu í og hann fór mér vel og passaði. Mér fannst ég svo sjá aftan á mig og mér brá þegar ég sá að blússan var utanyfr skokknum. En svo sagði ég að það gerði ekkert til, það sæi það enginn. Þessi blússa var drapplituð og tilheyrði ekki þjóðbúningnum. Þetta gerðist allt á meðan við gengum yfr götuna og svo héldum við áfram gang- stéttina. Hann var klæddur dökkum jakkafötum, sem klæddu hann vel. Svo Mig dreymdi fannst mér við vera stöddfyrir utan húsið hjá annarri systur minni, en hún býr þeim megin götunnar þar sem ég bý, svo það getur verið að ég hafi misst úr draumnum. Við þrjú horfðum á götuna og sáum gamaldags járnvagn, frekar langan, aka hægt fram hjá. Það sátu svona 10 manns í honum. Ég spurði hvort þetta vœri lík- fylgd og í því sama lítur manneskjan, sem sat aftast, aftur og mér finnst þetta vera systir barnsföður míns, en hún býr í Noregi, en svo breyttist andlitið í mannsandlit og þessi dökkhœrði ungi maður starði kuldalega beint í augun á mér. Mér fannst hann óhugnanlegur. Sólin var horfn og blússan var ekki lengur utanyfr. Seinni drauminn dreymdi mig aðfaranótt 7. jan., eða nóttina eftir þrettándann, og ég hef heyrt að það væri að marka drauma einmitt þessa nótt, eða er það kannski aðfaranótt þrettándans? Fyrri draumurinn var að mestu komin fram eftir minni ráðningu og þess vegna þætti mér forvitnilegt að vita, hvernig þú myndir ráða hann. Virðingarfyllst, Ein mjögforvitin Fyrri draumurinn er þér fyrir endur- nýjuðu sambandi við barnsföður þinn og einhverjum erfiðleikum því samfara. Líklega verða tafir á ráðagerðum. Þó mun allt fara á betri veg en þú þarft á allri þinni þolinmæði að halda. Síðari draumurinn er framhald hins fyrri. Táknin í fyrri draumnum benda til þess að barnsfaðirinn hafi samband við þig, jafnvel nokkuð seint að þínu áliti, en sá síðari boðar þér breyttan dvalarstað, sennilega nýtt heimili í Noregi, bæði gleði og erfiðleika því samfara og aðvörun um að fara þér hægt því ekki er allt sem sýnist. Ráðningin sem þú sjálf lest úr fyrri draumnum á því raun- verulega við hinn síðari, en hinn fyrri er fyrirboði þeirra atburða, sem síðar verða. Sagt er að draumar aðfaranótt þrettándans séu marktækari en aðrir. Lík og mikið blóð Kæri draumráðandi! Mig langar að biðja þig um að ráða þennan draum fyrir mig: Mig dreymdi, að ég ætlaði að skipta um sængurföt á rúminu mínu. Ég fór að skápnum og opnaði hann. Sá ég þá þrjú lík, öll blóðug. Eitt var af pabba (hann býr ekki heima lengur), annað af einhverri konu og svo af ungabarni. Ég öskraði upp og fór að gráta. Mér fannst ég fara niður og hringja í lögguna, en þá var hún í næsta þorpi og kom aldrei. Síðan sagði ég mömmu þetta, en hún lét sem ekkert væri. Þó átti hún að hafa verið með í þessum morðum. Svo fréttistþetta einhvern veginn, ogþrír strákar komu að athuga þetta. Einn þeirra sagði, að ég skyldi fara heim til hans og vera þar í herberginu hans. Þeir voru lengi að skoða þetta, en þegar þeir voru að fara, hafði einn þeirra makað blóði í andlitið á sér, og svo strauk hann hendinni yfir andlitið og makaði blóði í andlitið á mér. Þá fannst mér ég öskra og öskra, en hann hló bara, og þeir fóru. Rétt á eftir komu hjón og sögðust ætla að eiga líkin. Þau drösluðu þeim upp í Land Rover, sem þau voru á, og þá vaknaði ég- Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. Sigrún. Líklegasta skýringin á þessum draumi er að þú hafir borðað yfir þig áður en þú fórst að sofa og það síðan orsakað að þú fékkst martröð. Sjaldnast er nokkuð að marka draum sem þennan og því getur þú alveg hætt að hafa áhyggjur af því. Það er mögulegt að þetta boði þér ein- hverja erfiðleika af annarra völdum og þá ef til vill misheppnað ástarsamband. 34 Vlkan I3.tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.