Vikan - 29.03.1979, Page 60
Þœr eru að gera
það gott
Þessar glanslegu kvinnur
mynda hollenska diskótríóið
Luv’ — sem hefur náð feikna
vinsældum að undanförnu í
Evrópu. Ein af fyrstu plötunum
þeirra var You’re The Greatest
Lover sem selst hefur í nálægt
einni milljón eintaka og náð
langt á vinsældalistum, sérstak-
lega í Hollandi og Þýskalandi.
Þær hafa útlitið með sér, stúlk-
urnar í Luv’, því lagleg andlit,
langir leggir og stór brjóst skaða
ekki sem viðbót við sönginn. í
suðlægari löndum Evrópu eru
þær tíðir gestir á skjánum en
ekki höfum við heyrt að þær séu
væntanlegar til að lífga upp á
islenskan skjá.
Fimm strákar frá Boston á leið til heimsfrægðar: The Cars.
Fyrsta platan þeirra, THE CARS, er algjört sprengirokk og
sló öll sölumet á Bandaríkjamarkaði.
ROKKAÐÁ
FULLU
The Cars voru nýlega á sinni
fyrstu hljómleikaferð um
Evrópu og léku meðal annars í
Hamborg. Aðspurðir hvort þeir
hefðu ekki verið nokkuð tauga-
óstyrkir í þessari jómfrúferð
sinni utan Bandaríkjanna
svöruðu þeir:
Við höfum leikið fyrir 70.000
áheyrendur í Bandaríkjunum.
Hvers vegna hefðum við þá
þurft að óttast þessa 1500 í
Hamborg?
Enginn þeirra félaga hafði
áður komið til Evrópu nema
trommuleikarinn David Rob-
inson. Hann hefur líka komið
við sögu annarra hljómsveita en
engin þeirra var að hans mati
nógu mikið fyrir rokkið — nema
The Cars.
Ric Ocasek, söngvari og gítar-
isti hljómsveitarinnar, hefur
samið öll lögin á plötunni THE
CARS. Það lag, sem hvað
mestum vinsældum hefur náð,
er My Best Friend’s Girl.
Hljómsveitin var stofnuð árið
1977 í Boston, sem er heimaborg
þeirra félaga, og vakti þar strax
mikla athygli. Síðan hefur hún
verið á sífelldri uppleið og henni
er spáð miklum frama á heims-
markaðinum.