Vikan - 26.04.1979, Blaðsíða 8
«c
Telurðu að kristniboð á meðal þjóða, sem
hafa önnur trúarbrögð en kristni og trúa
jafnvel á stokka og steina, sé nauðsynlegt
og undir öllum kringumstæðum réttlætan-
legt?
— Já, ég myndi segja það. Við vitum að
það er reginmunur á kristindómi annars
vegar og t.d. múhameðsstrú og búddatrú
hins vegar. Við vitum um grafir Múhameðs
og Búdda og við vitum að gröf Krists er
tóm. Hann lifir og hann sagði að við ættum
að færa öðrum þann boðskap sem hann
færði okkur. Við trúum að við séum að
gera rétt þegar við fylgjum þeim boðum.
— Hafa kristniboðar gott kaup?
— Nei, við höfum ekki hátt kaup, fáum
eingöngu það sem við þurfum. Ætli yrði
ekki staðið öðruvisi að málum ef fólk færi í
þetta með gróðavon í huga. Aftur á móti
■ VlKan 17. tbl.
Upp, upp, upp.
hoflM var jafnt yflr réttiáta aam rangláta.
hefur fólk sem vinnur við þróunaraðstoð á
vegum alþjóðlegra stofnana og er á
svipuðum slóðum og við og við áþekk störf
ágætt kaup og getur borist á. En það er að
sjálfsögðu annað sem liggur til grundvallar
slíku starfi. Ég hef fullan hug á því að fara
aftur út innan fárra ára en fyrst langar mig
að ljúka því sem ég er byrjaður að gera hér
heima.
Eins og englar við f lugum
— Má ekki bjóða ykkur í flugferð?
spurði Helgi, og við þágum boðið umsvifa-
laust e.ins og við hefðum himin höndum