Vikan


Vikan - 26.04.1979, Síða 9

Vikan - 26.04.1979, Síða 9
VNS flugum yfir höfnina og sáum akki betur sn þafl vœri vaifafl til okkar. tekið. Úti á Reykjavíkurflugvelli beið vélin hans Helga, Cessna 172, sem hann á i sameiningu með öðrum. Hann sagði þessa vél vera áþekka þeim sem hann hafði notað úti, þær voru af gerðinni Cessna 182 og 185. Var nú vélin ræst og við vorum komnir í loftið með kristniboðanum fljúgandi. Helgi reyndist þaulæfður flugmaður, tók sveig yfir Reykjavíkurhöfn og sáum við ekki betur en veifað væri til okkar af sjómönn- um sem stóðu á dekki. Ef til vill voru þetta sjómenn sem ekki áttu í neitt hús að venda en á því verður bragarbót innan skamms ef allt fer eins og Helgi vonar. Við héldum fluginu áfram, flugum jafn yfir réttláta sem rangláta og fórum yfir stórt svæði á skömmum tíma. Þegar við vorum komnir niður á jörðina aftur að þessari flugferð lokinni vorum við sannfærðir um að ef flugvélarinnar hefði ekki notið við þá væru heiðingjarnir í Afríku fleiri en þeir eru. Auk þess mun hún koma í góðar þarfir ef sjómannaheimili eiga að risa á hverri verstöð. Við kvöddum Helga og hann sveif upp í loftið á ný eins og engill sem ekki er bundinn við jarðskorpuna eins og við hinir. EJ Góð hugmynd. Hún veit alltaf allt Trippi. Afmœlisdagurinn hennar er í dag. Farðu og pantaðu 12 dýmstu rósimar og settu á reikninginn minnl Það mun kosta þig of fjár, maðurll X7.tbl. Vikang

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.