Vikan


Vikan - 26.04.1979, Síða 45

Vikan - 26.04.1979, Síða 45
Sáriö á fætinum greri hægt, það var eins og það væri brennt, en sársaukinn og stirðleikinn var horfinn og fóturinn angraði hana ekki þegar hún gekk. Hún varð undrandi þegar hún kom auga á lága bryggju, sem lá út í skjól- góða víkina en það var enginn bátur bundinn við hana. Þegar Jan kom aftur í kofann fór hún i bikiní-baðföt og teygði úr sér í hitanum til þess að baða sig í sólinni. Hún hafði ekki séð Gerald síðan hann hafði látið hana úr við kofann með fyrir- mælum um að hugsa um hann til til- breytingar. Það heyrðust hlátrar og raddir þegar sex fiskimannabörn komu hlaupandi út úr skóginum og niður á ströndina, ekki langt frá kofanum. Þau stönsuðu snögglega, þegar þau komu augu á hana, og stóðu kyrr, feimin og á báðum áttum. Jan brosti til þeirra. Börnin endur- guldu ekki brosið en þau hlupu ekki heldur í burtu. „Komið,” kallaði Jan. „Ég skal gefa ykkur sælgæti.” Þau nálguðust hana, flissuðu feimnislega og hún brosti hvetj- andi. Það væri ágætt að vingast aftur við nágrannana. Inni í kofanum tók hún brjóstsykurs- dós ofan af hillu. Hún rak augun í myndavélina. Hún var enn opin eins og þegar hún hafði fundið hana. „Halló,” kallaði hún til barnanna. „Ég fékk góða hugmynd. Ég ætla að taka mynd af ykkur.” Hún gaf þeim sælgætið og tók upp myndavélina. Það lágu tvær filmur hjá vélinni og hún setti aðra þeirra í, ánægð með hugmyndina. Hún var með öll tæki til framköllunar og pappírsprentunar. Myndir af börnun- um myndu svo sannarlega mýkja for- eldrana. Börnin brostu og klöppuðu saman höndunum meðan Jan tók mynd af hverju fyrir sig. „Komið á morgun og náið í myndirn- ar,” kallaði hún um leið og þau flýttu sér í burtu. Jan blandaði strax saman efnunum og vafði filmunni varlega inn í framköllun- arbrúsann. Hún tók nákvæmlega tímann á hverju þrepi framköllunarinnar og hellti þolinmóð mörgum lítrum af vatni í gegnum brúsann til þess að hreinsa film- una. Hana vantaði rafmagn fyrir prentun- artækin en hún var viss um að Gerald myndi leyfa henni að nota eldhúsið sitt. Það myndi ekki taka langan tíma. Hún opnaði brúsann og tók filmuna varlega út. Hún var alveg svört. Jan hélt henni upp í ljósið en það var ekkert á henni — ekki minnsti vottur um nokkr- ar útlinur. Hún kastaði filmunni á borðið í ör- vinglan. Hún athugaði myndavélina, það virtist vera allt í lagi með hana og líka brúsann. Hún var viss um að hún hefði blandað framköllunarvökvann rétt. Hún hafði gert það svo oft áður. Hún tók nýja filmu úr tækjakassan- um, setti hana í myndavélina og tók myndir af því sem fyrir augu bar. Síðan fór hún þolinmóð í gegnum alla framköllunina aftur. Þegar hún tók filmuna úr brúsanum voru skarpar myndir á henni hver ein- asta lína skýr. Jan starði á hana. Hvað var að fyrstu filmunni? Hún hafði verið á hillunni, ekki í kassanum, en hún hafði verið inn- pökkuð og umbúðirnar voru ekki skemmdar. Þá mundi hún að hún hafði sett tvær filmur í vasann þegar hún fór út að taka myndir af skjaldbökunni Hún leitaði að hinni og fann hana í vas anum á buxunum sem hún hafði verið þennan dag. Hún framkallaði hana eins og hún hafði gert við hinar. Þegar þriðja filman kom út úr brúsanum, kolsvört, var hún gagntekin ísköldum grun. Hún lagði hana hjá hinum og starði á þær. Hún rifjaði vandlega upp atburðina í huganum, raðaði öllu saman og neitaði að samþykkja svarið, sem nú var degin- Enskir fótboltaskór WINIT - Malarskór Júpiter stærðir 34-38 kr. 5.950. Grasskór m/skrúfuðum tökkum Comet stærðir 36-42 kr. 6.980. Otrúlegt verð Grasskór m/skrúfuðum tökkum Wolf stærðir 39-44 kr. 9.500 EINNIG: Æfingaskór Æfingagallar Æfingapeysur Æfingabolir Æfingabuxur. ’nsTuno & sportvöruverzlur AUSTURVERI Háaleitisbraut 68 Sími 8-42-40 Næg bílastæði Póstsendum X7. tbl. Vlkan 45

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.