Vikan - 24.05.1979, Qupperneq 4
Leiðin til
himna
Frá örófi alda hefur fátt verið jafnsnar þáttur í mannlegu eðli og
trúhneigðin. Fáir eðlisþættir hafa gengið undir eins mörgum
nöfnum, eða birst í jafnmargslungnum og ólíkum myndum og
hún: Trú á stokka og steina, múhameðstrú, búddatrú, kristin trú,
trú á vissa stjórnmálastefnu, og svo mætti endalaust telja.
Allt er þetta þó af líkum toga spunnið enda tilgangurinn sá að
gera mannskepnunni lífsgönguna bærilegri, hvort sem er á jörðu
eða himni.
Fólk hefur greint mikið á um aðferðirnar til að ná þessu markmiði
en eitt er þó sameiginlegt flestum þessara umbótastefna: Áhang-
endur eru þess fullvissir að þeirra leið sé hin eina sanna og rétta.
En hvað um það, í þessari kynningu okkar á trúarstefnum höfum
við kosið að halda okkur eingöngu við kristna trú og kynna nokkra
af þeim trúarflokkum, sem að meira eða minna leyti víkja frá hinni
ríkjandi trú þjóðkirkjunnar.
Hjónavfgsla f Hvftasunnusöfnuðinum
Einar Gíslason vigir.
Hvítasunnusöfnuðurinn
Trúfrelsið er hér
aðeins á yfirborðinu
Einar Gísiason, formaður Hvrtasunnusafnaóar*
ins.
— Hvítasunnusöfnuðurinn byggir á
kenningum Krists og postula hans og við
teljum okkur ekki sértrúarsöfnuð.
— Við förum ekki með trúarjátninguna
eins og þjóðkirkjumenn því við trúum ekki
á heilaga, almenna kirkju. Kirkjan getur
aldrei orðið almenn stofnun þó reynt sé að
troða henni upp á fólk. Fólk verður ekki
virkt í trú sinni á þann hátt. Það sýnir sig
til dæmis í því að á síðastliðnu ári keyptu
íslendingar áfengi fyrir um 18 milljarða
króna og allflestir kaupendurnir eru
meðlimir þjóðkirkjunnar.
— Hvað skirnina snertir trúum við þvi,
samkvæmt orði Guðs, að trú verði að fara
á undan skírn. Og fólk verður að vera
komið til vits til að velja og hafna áður en
það kýs sér trú. Þess vegna skírum við ekki
börn. Hér á landi er fólki frjálst að velja sér
trú þegar það nær 16 ára aldri.
— Annars er trúfrelsið hér yfirborðs-
kennt og ekki sama hvaða flokki fólk
tilheyrir. Ef við í Hvitasunnusöfnuðinum
auglýsum er það hending ef auglýs-
ingarnar koma undir málaflokknum kirkja,
heldur samkomur eða skemmtanir. Og við
borgum 25% hærra auglýsingagjald en
kirkjan. Þetta er trúfrelsið í reynd.
— Við erum í meginefnum sammála
þjóðkirkjunni hvað biblíuna snertir en
leiðir skilja við barnið. Þjóðkirkjan segir
barnið fullt af synd, þó að Jesús hafi sjálfur
sagt að börnunum tilheyri Guðsríki.
— Við vitum að Adam syndgaði og
maðurinn varð því dauðlegur. En hver og
einn er ábyrgur fyrir synd sinni. Og biblían
segir að börn beri ekki ábyrgð á syndum
foreldra sinna. Erfðasyndin er kredda kirkj-
4 Vlkan 21. tbl.