Vikan - 24.05.1979, Blaðsíða 38
Helgi að vinna mynd af Mývatni i grófflos.
loöaö af
grófleika og hentar vel í flos. Oft
er svo notað erlent garn til
uppfyllingar í litrófið og verð á
garnhespunum er frá 300
krónum og upp í 700 krónur. í
myndirnar fer mismunandi
mikið af garni, en þó má reikna
með minnst 31 hespu. Þórunn
segist ekki klippa upp grófflos.
Þó kembir hún stundum upp
feld á dýrum og hár á fólki i fín-
flosinu og annað sem hæfir
myndforminu.
Eins og áður er getið er engin
skipting á milli kynja, þegar
um flosun er að ræða, og
einn áhugasamasti nemandi
Þórunnar er Helgi Pálmarsson.
Hann taldi það af og frá að
karlmenn gætu ekki unnið að
slíkum verkefnum og leyfði
okkur að mynda nokkur af verk-
um sínum. Hann lagði áherslu á
áhuga Þórunnar við kennsluna,
því áhugi hennar væri bæði
ódrepandi og bráðsmitandi og
hún vekti með nemendum gífur-
legan áhuga á verkefninu.
Við heimsóttum einnig
Þórunni sem á ótrúlegt safn
handavinnu af ýmsu tagi, sem
hún hefur unnið um ævina.
Hún segir fátt skemmtilegra en
vinna að slíkri handavinnu og
finnst ekki síst jákvætt að sjá
ánægju nemendanna, þegar þeir
finna að þeir ráða við verk-
efnið og geta komið með
eitthvað frá sjálfum sér. En að
sjálfsögðu er þessu best lýst með
myndunum sjálfum.
baj
Frans, Hrísateigi 36 hefur kennt
flosun á námskeiðum, sem hafa
verið mjög vel sótt og vinsæl
tómstundaiðja. Þar er engin
mismunun mitli kynja þvi þar
hafa bæði konur og karlar
numið flosun og algengt er að
hjón fari saman á námskeið.
Þórunn hefur alltaf verið
mikið fyrir alls konar mynd-
saum og vefnað og lærði fyrst að
flosa af eigin rammleik. Síðan
hefur hún kynnt sér flos á
Norðurlöndunum og kennt á
námskeiðum í 15-16 ár. Gefjun
í Kirkjustræti flutti fyrst inn
áteiknaða botna fyrir flos á
árunum ’49 og ’50. Þá voru
notaðar svokallaðar pottnálar,
en síðar komu aladdínnálar úr
stáli. Pottnálarnar gömlu voru
úr stökku og frekar lélegu efni
og stóðu aladdínnálinni langt
að baki. Nú eru næstum ein-
göngu notaðar aladdínnálar og
fínflosnálar.
Námskeið hjá Þórunni kostar
7.500 krónur á mánuði og er
kennt einu sinni í viku. Þórunn
Myndin af Mývatni óunnin.
flytur sjálf inn myndir, sem eru
þá tilbúnar til vinnslu og allt
garn fylgir. Verð á myndunum
er frá 8000-24000, en einnig er
hægt að fá pantaðar myndir upp
i á annað hundrað þúsund. Vilji
viðkomandi hins vegar eitthvað
alveg nýtt eða persónulegt, svo
sem „fjallið heima”, getur hann
leitað aðstoðar Þórunnar sem
teiknar myndina á striga og
aðstoðar síðan við vinnslu
myndarinnar. Einnig hefur hún
haft góða samvinnu við lista-
mennina Hring Jóhannesson,
Bjarna Jónsson, Halldór
Pétursson og Eggert
Guðmundsson, sem hafa látið
henni i té myndir og skissur til
notkunar í flosun. Yfirleitt er
notað Grillon Merino garn i
myndirnar, en það hefur réttan
Gamall floslár úr Þjóðminjasafninu.
Þarna er um vefnað eftir gamalli
fyrirmynd að ræða, en myndirnar
sem greininni fylgja eru af flosi
skyldara útsaumi. \
38 Vikan 21. tbl.