Vikan - 24.05.1979, Síða 50
ÚR
DRAUMLÍFI
SKÁLDA
Þegar viö lesum góða sögu eða fagurt Ijóð hlýtur
stundum að gripa mann undrun yfir list skáld-ins og
oft næstum takmarkalausu hugarflugi. Algengast er
að lala um innblástur i þessu sambandi. þótt fæstir
brjóti frekar heilann um það hvað hann sé i rauninni.
Vitanlega er fróðlegast að heyra skáldin sjálf skýra frá
þessu, þótt það sé fremur fátítt. Eitt af þvi sem mjög
er athyglivert i þessu sambandi er hve mörgskáld hafa
rakiðefni skáldverka sinna til drauma. Margir segjast
beinlínis hafa dreymt efni sögunnar eða ljóðsins, orð
fyrir orð, og sé listaverkið þannig í rauninni frá öðrum
komið en þeim sjálfum.
Svo dæmi sé nefnt úr íslenskum bókmenntum vil ég
til dæmis minnast þess hvernig skáldið Einar H.
Kvaran sagði vini sínum Einari Loftssyni frá tildrög-
um þess að hann samdi leiktirið Hallstein og Dóru.
Skáldið sagði nafna sínum frá því, að það hefði losað
svefninn á fjórða timanum morgun einn, hefði sig
dreymt persónurnar, sem koma fram i leikritinu.
Hann hefði lifað með þeim, tekið þátt í sorgum þeirra
og gleði og fylgst með örlögum þeirra frá upphafi til
enda. En skáldið kvaðst hafa vaknað laust fyrir
klukkan átta þennan minnisstæða morgun.
í ritgerðasafni Roberts Louis Stevensons 11850-
1894) hins fræga skoska skáldsagnahöfundar, sem
nefnist Yfir slétturnar (Across the Plains) segir hann
frá því hvernig sögur sínar verði til og hvaðan efni
þeirra sé komið. Skýringar hans eru mjög forvitni-
legar, því margir okkar íslendinga munu telja sig
standa í ógoldinni skuld við þetta frábæra sagnaskáld
fyrir ritverk hans. Stevenson segir okkur að efnið í
sögur sínar, persónurnar i þeim, lyndiseinkunnir
þeirra og skapgerð. örlagavefurinn i rás viðburðanna,
þetta sé allt komið frá álfunum sínum, sem hann
venjulega nefnir „litla fólkið mitt”. „Það hefur sýnt
mér allt þetta i draumum mínum,” segir Stevenson.
Það virtist hafa hið sama fyrir stafni og hann. leit að
hentugu viðfangsefni og vék ekki úr draumum hans
næturlangt; sýndi honum eitt atriðið af öðru á eins
UNDARLEG ATVIK XXX
ÆVAR R. KVARAN
konar litlu upplýstu leiksviði. Allan tímann meðan
Stevenson horfði á rás viðburðanna á leiksviði „litla
fólksins.” kvað hann sér hafa verið ómögulegt að geta
til um, hvernig fara mundi, hver leikslokin yrðu.
Honum var gjörsamlega hulið hvernig greiðast myndi
úr örlagaflækju persónanna i sýningunum. Hann
segir til dæmis. að hátterni einnar kvenpersónunnar
hafi verið þannig, að sér hafi verið ómögulegt að ráða
i hvað fyrir henni hefði vakað, að hverju hún stefndi.
„En að lokum varð mér þetta skiljanlegt, þegar hún
skýrði tilgang sinn í snjallri ræðu," sagði þessi frægi
höfundur. En hvað um þetta litla fólk, sem bjargar
öllu með þessum dularfulla hætti? Um það segir
Stevenson: „Það sýnist vera í nánum tengslum við
mig, en ég held hins vegar. að þaðsé meiri gáfum gætt
og fjölþættari hæfileikum heldur en ég veit mig eiga.”
Það getur sagt honum sögur, hvern kapítulann af
öðrum, án þess að samhengið i rás viðburðanna slitni
nokkurn tima í sundur, og án þess að hann sjálfur fái
rennt grun i hvernig fara muni um leikslokin, eða
hvað fyrir persónunum vaki. Sjálfur lýsir Stevenson
þessu fólki svo: „En hvað á ég að segja um álfana
mina? Ja, ég get bara sagt, að þeir eru „álfarnir
mínir” og guð blessi þá! Þeir vinna helminginn af
starfi mínu meðan ég hvíli í værum svefni, og senni-
lega fylgjast þeir með mér i vökunni og vinna í raun
og veru það, sem ég stundum hugsa með hrifningu að
ég hafi sjálfur afrekað. Það er að minnsta kosti hafið
yfir allan efa, að það sem gerist í draumum mínum er
þeirra verk, og það er engan veginn sjálfsagt, að sá
þáttur sem fram fer í vökunni sé eingöngu minn. Allt
hnigur fremur að þvi, að þar hafi þeir einnig hönd í
bagga.”
Allur heimurinn kannast við hina frægu sögu
Roberts Louis Stevensons Dr. Jekyll og Mr. Hyde.
sem hefur verið margsinnis kvikmynduð og aðalhlut-
verkið leikið af frægustu skapgerðarleikurum
kvikmyndanna. Stevenson segir í þessari áðurnefndu
ritgerð sinni hvernig þessi saga hafi orðið til. 1 tvo
daga hafði hann verið að velta fyrir sér hvaða efni
hann gæti fundið í nýja skáldsögu, en honum datt
ekkert nýtilegt í hug. En svo dreymir hann þrjá
meginþætti söguefnisins nótt eina, og meginatriðið,
sem veldur straumhvörfum i rás viðburðanna kom
ósjálfrátt.
Það er þvi ekki furða þótt Stevenson spyrji í þessari
ritgerð „Hverjir eru þessir litlu næturgestir mínir?”
En hvorki honum né öðrum hefur tekist að svara
þeirri spurningu á fullnægjandi hátt.
Reynsla rithöfundarins Edwards Lucas Whites á
þessu sviði er mjög athyglisverð og að sumu leyti jafn-
vel furðulegri en Stevensons. En draumskynjanir
bárust inní vitundarlíf þessa manns með nokkuð
öðrum hætti. Hann var kennari i latínu og grisku við
skóla i Baltimore í Bandarikjunum, en þrátt fyrir
kennslustörf sín vannst honum timi til að skrifa sögu-
legar skáldsögur. 1 löngum formála að The Song of
the Sirens segir hann nokkuð frá draumareynslu sinni.
Hann segir svo um sjálfan sig: „Mig dreymir mikið, og
jafnvel á daginn sækja ýmsar hugmyndir að mér,
hvernig sem störfum minum þá kann að vera háttað."
En þá fyrst þegar hann var fallinn í svefn á kvöldin
fékk hann efnið í sögurnar sinar. Suma þessa drauma
mundi hann óglöggt þegar hann vaknaði, en um aðra
segir hann: „Þeir höfðu brennt sig inn i meðvitund
mína." Þannig var um drauminn, sem hann dreymdi
17. febrúar 1906, en hann varð honum efni í
fyrrnefnda sögu. Hann dreymdi ekki að hann sæi
mynd eða málverk í draumnum, en segir að sér hafi
virst að hann væri staddur uppá siglutoppi á skipi og
sæi þaðan niður á töfraeyna og ibúa hennar. Stundum
kvaðst hann vakna sannfærður um að hann hefði
verið að lesa sögu í bók. Hann kvaðst muna mjög
skýrt eftir útliti bókarinnar, muna töluna á siðustu
blaðsiðunni, þekkja pappirinn og leturgerðina í
minnstu smáatriðum.
Annað athyglisvert atriði í reynslu hans var að
hann dreymdi stundum upp aftur og aftur sama
drauminn. Stundum leið að visu nokkur timi milli þess
að draumurinn endurtæki sig, einatt fáeinar nætur, en
stundum vikur, mánuðir og jafnvel ár. Þannig sagði
hann að saga sín Dislova hafi verið rituð nær óbreytt
frá því sem hann dreymdi hana. Fyrri hluti hennar
kom i draumum, sem endurtóku sig stundum tvisvar i
viku, stundum aðeins einn draumur með sex mánaða
millibili. Draumar hans sem höfðu aðgeyma efni þess-
arar sögu stóðu yfir i tólf ár, byrjuðu í febrúarmánuði
1899 en lauk 20. febrúar 1911. Þessa nótt var honum
50 Vikan 21. tbl.