Vikan


Vikan - 24.05.1979, Qupperneq 51

Vikan - 24.05.1979, Qupperneq 51
birt niðurlag sögunnar, en þennan draum dreymdi hann aðeins einu sinni. Honum urðu sögulokin fullkomið undrunarefni. 1 eftirmála að annarri bók sinni Andivius Hedulio, sögulegri skáldsögu frá dögum keisaratímabilsins í Róm, gerir White mjög glögga grein fyrir draum- rænum uppruna hennar. „Orðalagið er mitt”, segir höfundur, „en á efni hennar ber ég ekki meiri ábyrgð heldur en skrifari sem ritar á blað það sem honum er lesið fyrir. Atburðarásin er ekki hugarsköpun mín. Ég hef aðeins á örfáum stöðum skotið inn einstökum atriðum. Mig dreymdi söguna frá byrjun til enda, og ég man ekki til þess að nein atriði úr efni hennar hafi borist inn i meðvitund mína í vökunni. Þau komu öll i draumum mínum, þegar ég hvildi í værum svefni.” Og hann heldur áfram að gera nánari grein fyrir því með hvaða hætti hann skynjar það sem fyrir hann ber í draumum hans. Hann segir að þetta gerist með þrennu móti: 1 fyrsta lagi, skynjar hann sjálfan sig sem þátttakanda í því sem gerist. Honum finnst hann þá vera ein af persónunum. 1 öðru lagi, skynjar hann sig vera að lesa bók, skáldsögu. 1 þriðja lagi þykir honum sem hann hafi öðlast einhverja yfirskilvitlega þekkingu og þá sé eins og hann skynji þetta þrennt allt samtímis. „Ég vissi mig vera að lesa í bókinni, skynjaði mig sem söguhetjuna og ég gjörþekkti allt sem um var að ræða, án þess að vera háður bókinni, viðburðunum sem voru að gerast. Með einhverjum hætti lá allt opið fyrir mér. En þessi draumur minn þykir mér vera fullkomnastur allra þeirra sem mig hefir dreymt." Sama skoðun kemur fram hjá White og Stevenson, að betur hafi verið haldið á málum í draumskynjun- um þeirra en þeim sjálfum hefði verið fært i vökunni. Og eins og Stevenson var White algjörlega óviss um hver sögulokin yrðu, þangað til hann fékk að vita það i draumnum. En fyrirbæri þessarar tegundar gerast ekki aðeins í lífi listamanna. Vísindamenn þekkja hliðstæð innsæisaugnablik engu siður. 1 bók sinni Anatomv of Inspiration vitnar Rosamund Harding til ummæla hins nafnkunna sálfræðings Dr. W. H. Rivers, en hann hefur komist svo að orði: „Margar þær vísinda- legu myndir og tilgátur sem ég hef mestar mætur á, hafa borist með einhverjum hætti inn í meðvitund mína, þegar ég hef legið milli svefns og vöku.” Það sem hér hefur verið rifjað upp sýnir, að draum- líf manna verður stundum uppspretta skapandi athafna. Einatt sýnist tilefni til að álykta, að einhver sifjabönd liggi milli snilligáfu dreymandans og drauma hans. En eigi að síður er það staðreynd sem ekki verður sniðgengin, að þeim sem slíks innsæis njóta virðist það sem þeir skynja berast utan að inn í meðvitund þeirra, fremur en það sé sköpun eða smíði eigin vitundarlífs. Þetta kemur þeim á óvart, vekur þeim undrun. Hugmyndin reynist þeim vera fersk, glæný. En hvort sem um reynslu andlegra stórmenna er að ræða eða minni spámanna, þá virðist það yfir- leitt einkenna þessa reynslu, að Ijóðið, sagan eða tón- verkið berist tíðar inní meðvitund þeirra í einhvers konar svefni eða leiðsluástandi, heldur en í sjálfu vökulífinu. Það er svo að sjá, að þess konar ástand vitundarlífsins sé hentugast þeim, sem koma með gjafir úr nægtarbúri tilverunnar. Endir 21. tbl. VikanSl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.