Vikan - 27.12.1979, Side 17
VIKAN og Félag húsgagna- og innanhússarkitekta:
„í landi þar sem húsakynni manna
eru sneydd feguröarskyni og nothæfis i
senn, er ekkert líklegra en þjóðina skorti
menningu, betri upplýsingu. Bakka-
braeður, sem sagðir eru bera sólskinið
inn í húfum sínum, mundu sennilega
ekki mikið lagast við það þótt hið opin-
bera léti setja glugga á hús þeirra.
Þannig er baráttan fyrir betri húsa-
kynnum þáttur af almennri menningar-
baráttu, fullkominn húsakostur
almennings árangur sigursællar
menningarbaráttu. Um leið og
almenningi gefst kostur á að afla sér
betri skilnings á notagildi hlutanna i
kring um sig og efla skyn sitt á fegurð og
yndisþokka, þá munu hús einstakl-
inganna af sjálfu sér verða hentugri og
fegurri.”
Þannig farast Halldóri Laxness orð í
bókinni Húsakostur og híbýli sem gefin
var út af Máli og menningu árið 1939.
Tilgangur þeirrar bókar var aðallega sá
að auka upplýsingu fólks um húsakost
og híbýli svo og að bæta smekk manna
um sömu hluti. Þætti þeim sem hefur
göngu sína í næstu Viku er ætlað svipað
hlutverk. Hann verður unninn i fullu
samráði við félaga í Félagi húsgagna- og
innanhússarkitekta og er ætlunin að
hver félagi sjái um í það minnsta einn
þátt eða fleiri — allt eftir atvikum.
VIKAN væntir þess að lesendur sendi
okkur fyrirspurnir um hvaðeina sem
lýtur að húsakosti og híbýlum og
Em« Ragiwdóttlr, formaður FHagt
húsgagna- og innanhúasarkKakta,
og Halgl Pétursson, rrtstjóH Vikunrv
ar, takast i hsndur eftir undirskrift
tvsggja aðHa um garð vikulegra
þétta um hús, húsnæði og alh þar á
milli.
NYR ÞÁTTUR
munum við reyna að koma þeim áfram
til þeirra sem best vit hafa á og birta
svörin I þætti þessum.
En gefum Halldóri Laxness orðið á
ný. Eftirfarandi hefur hann að segja um
drabbarana sem fresta öllu en búa þó I
húsum:
„Menn halda að það sé fátæktarmerki
að ganga skitugur og I rifnum druslum, en
fjarri fer því. það er aðeins ytra merki
sorglegs sálarlífs. Það starf er ekki til,
sem ekki má vinna bæði þokkalega og
óþokkalega. Það er dýrara að láta þakið
á húsinu sínu ryðbrenna en mála það.
Það borgar sig betur að gera við sprungu
i vegg en láta veður og vatn grafa sig
gegnum húsið. Bilaðar tröppur, brotin
handrið, ónýtar læsingar eöa hjarir,
bilaöir hurðarhúnar, ryðgað járn, rifinn
pappi, skældar eða ónýtar hurðir,
brostnar rúður, hriktandi stólar, hurðar-
lausir kamrar, skemmdir ofnar, ónýtar
girðingar, klasturslega tjösluð girðingar-
hlið — ekkert af þessu ber vott um
fátækt, heldur spillingu sálarinnar,
skemmd á þeim fegurðarsmekk, sem er
heilbrigðum manni náttúrlegur,
sljóleika, virðingarleysi fyrir eigin
persónuleik, drabbarinn er maður, sem
er óvandur að virðingu sinni. Á
fátækustu heimilum getur maður oft
séð, hvernig allir hlutir lýsa þokka,
þrifnaði og umhirðu, tjá mannlegan
virðuleik hvar sem auga lítur.”
Upp með pennann — út i póst-
hús!
Svo mörg voru þau orð. 1 næstu Viku
mun Vikan byrja að leggja sitt af
mörkum til að auka hibýlamenningu
íslendinga — og við væntum þess að
þið, lesendur góðir, skrifið okkur linu
um vandamál ykkar á þessu sviði, því
við vitum ekki hvar skórinn kreppir
mest á hverju heimili á landinu.
Sjaldgæfur sjúkdómur:
IIMDVERSKT GUMMI
Hvernig litist ykkur á að geta teygt
skinnið á brjóstkassanum yfir höfuðið,
eða þá að geta sveigt puttana aftur
þannig að þeir lægju flatir á handar-
bakinu? Það er til fólk sem getur fram-
kvæmt slíka hluti án þess að finna til
nokkurs sársauka. Slíkt fólk þjáist af
sjúkdómi sem nefndur er „cutis hyper-
elastica” og leggst á 1 af hverjum
500.000 þeirra sem byggja plánetu
okkar.
Sjúkdómur þessi gengur einnig undir
nafninu indverskt gúmmí eða teygjan-
legt hörund. Einkennin eru þau að
viðkomandi sjúklingur getur teygt á sér
hörundið eins og um teygju væri að
ræða, og ef hann sleppir skýst það til
baka. Teygjanlegast verður hörundið á
olnbogunum, hnakka og kjálkum. Það
er bleiklitað og viðkomu llkt og þunn
leöurpjatla. Sjúkdómurinn er arfgengur
og fyrr á tímum var fólk sem þjáðist af
sjúkdómnum gjarnan látið koma fram i
Gatur þú þetta?
fjölleikahúsum, ættlið eftir ættlið. Ekki
skorti nafngiftir á þessi skemmtiatriði:
Indverski gúmmimaðurinn —
Teygjumaðurinn o.s.frv. Sá frægasti af
þessum trúðum var vafalítið James
Morris en hann var einmitt kynntur sem
Teygjumaðurinn i dagskrá Barnum &
Bailey fjölleikahússins. Helsta númer
hans var að teygja skinnið af vinstri fæti
sínum yfir þann hægri þannig að þeir
runnu sanan í einn. Þegar hann var
klappaður upp þá dró hann brjóstkass-
ann yfir höfuðið við mikil fagnaðarlæti.
James Morris var eitt helsta skemmti-
atriðið í fjölleikahúsi þeirra Barnum &
Bailey i fjöldamörg ár og varð flugrikur
fyrir bragðið.
V , •
.
f
Þú færó vinnuna l-ii það væri gott
ef þú gætir létt þig um svona 5 kg
af því ég er slæmur í fótunum.
Fyrsti uppskurðurinn sem þú
gengur undir? Skemmtileg tilviljun,
þetta er lika fyrsti uppskurðurinn
sem ég framkvæmi!
52. tbl. Vikan 17