Vikan - 27.12.1979, Page 30
Draumar
Flugslys og fyllirí
Kæri draumráðandi.
Mig langar að biðja þig að
ráða fyrir mig drauma. Hér
koma þeir.
Ég var að fljúga með ömmu
og pabba og kona benti okkur
á aðra flugvél og sagði: Sjáið
þið, hún er að hrapa. Fyrst
flaug hún alveg beint og síðan
hrapaði hún. Þá var ég allt í
einu komin í bíl með mömmu
og pabba og pabbi var að
athuga hvert flugvélin hafði
lent. Við mamma báðum hann
að fara ekki, en hann fór samt.
Þá hafði flugvélin lent á húsi
einnar bekkjarsystur minnar og
við sáum föt og líkamstœtlur
út um allt.
Næsti draumur er svona:
Mamma og pabbi voru ekki
heima og ég ogfimm
vinkonur mínar ætluðum á
fyllirí. Fyrst fórum við til að
athuga hvort það væri partí
hjá W, en þar voru bara
ókunnugir krakkar og við
nenntum ekki. Svo ætluðum
við að kaupa vínið og þurftum
að troða okkur fram hjá ein-
hverri skrúðgöngu. En við
gátum það ekki svo við fórum í
einhvern kjallara og svo
komumst við ekki út aftur. Þá
fór ég sömu leið til baka og
tróð mér fram hjá skrúðgöng-
unni og fór niður i búð. Ég
þekki fólkið, sem á búðina, og
þorði ekki að kaupa. Vinur
bróður míns var þarna og ég
bað hann nokkrum sinnum um
að kaupa en hann vildi það
ekki. Svo man ég ekki meir.
Þriðji draumurinn: W kemur
á bíl bróður míns og nœr í mig.
Þegar ég ætla að loka hurðinni
dettur hún af og W segir: Þetta
er allt í lagi, hún er bara
svolítið biluð. Svoförum við til
Á ogZ og sækjum þá. Þegar
við erum búin að keyra dálitla
stund kemur Ó hlaupandi og
spyr hvort hún megi koma
með. Síðan fórum við öll í
bíltúr upp í sveit og stoppuðum
við einhvern fjörð og fórum að
hlaupa um. Síðan þurftu strák-
arnir að pissa. Þeir fela sig og
gera þarfir sínar en koma svo
aftur og segja að nú megum
við pissa.
5x
Fyrsti og jafnframt hinir
draumarnir tveir benda til þess
að betra væri fyrir þig og vin-
konur þínar að reyna að hægja
aðeins á ferðinni og huga að
framtiðinni. Þér hættir til að
framkvæma í fljótfærni ýmis-
legt, sem ekki getur talist þér til
framdráttar og verður því oft-
lega að súpa seyðið af því
síðar. Líkur eru á að þú þurfir
að fresta einhverju, sem þú
hafðir ætlað þér að fram-
kvæma og einhverjir fjárhags-
örðugleikar valda þér hugar-
angri.
Tveir draumar
Kæri draumráðandi.
Mig langar að senda þér tvo
drauma sem mig dreymdi fyrir
nokkru og vona að þú getir
ráðið þá fyrir mig. Fyrri
draumurinn var svona:
Mér fannst ég vera að leggja
á borðið hvítan dúk, því mér
fannst vera margt fólk komið
til mín. Þegar ég var búin að
leggja á borðið fannst mér ég
endilega þurfa að finna kerta-
stjaka og kerti til að hafa á
borðinu. Ég fer að leita og finn
frekar gamlan en fallegan
brúnan stjaka með fimm
álmum fyrir kerti og ég finn
líka fimm blá kerti, en endinn
á þeim öllum hefur runnið
eitthvað til. Ég lagaði þau til
að koma þeim öllum fyrir í
stjakanum og kveikti svo á
þeim öilum. Ég lét þau á
borðið og þetta var ákafega
fallegt.
Seinni draumurinn var
svona:
Mér fannst ég vera á
skemmtun og allt í einu sá ég
einn söngvarann okkar vera að
veltast um gólfið allsberan og
svo svartan um kroppinn. Svo
veltist kvenfólkið yfir hann. Ég
horfði nú lítið á þetta og hélt
áfram og sá þá mann, eitthvað
illa á sig kominn. Hann var í
dökkum jakka með gylltum
hnöppum. Þegar ég sneri mér
að honum spurði ég hvort við
ættum ekki að fá okkur kaffi.
Hann tók vel í það svo við
fórum og fengum okkur kaffi.
Þá voru þar fyrir stúlkur og
vildu þær stela handa okkur
kaffi. Þá varð ég vond og
sagðist ekki vilja stolið kaffi.
Þá kom þar að stór og mikill
kokkur og lét okkur hafa
kaffið. Allt í einu lít ég upp í
himininn og sé stóra rottu sem
varð að Ijóni. Það fór geyst en
breyttist síðan og varð eins og
teppi. Ég sá mikinn mannfjölda
á teppinu, en það var eitthvað
sem deyddi fólkið jafnóðum.
Allt í einu lágu allir í valnum,
en upp úr einu horninu á
teppinu steig ung stúlka og
ungur piltur og þau voru í
hvítum kyrtlum, stuttum með
belti um mittið. Stúlkan var
með krans um höfuðið. Þau
gengu síðan bæði úr þessum
óhugnaði, en þetta skeði allt
uppi í himninum. Ég og
maðurinn horfðum á þetta og
grét ég allan tímann og kallaði
í sífellu: Jesús, Jesús.
Draumspök
Fyrri draumurinn merkir mikla
gleði og velgengni. Borðdúkur-
inn, kertin og litur kertanna,
allt merkir þetta mikla gleði og
ánægju. Gleðin mun ekki síður
verða að þinni eigin tilstuðlan
og eitthvað sem þú hefur lengi
þráð verður að veruleika. Síðari
draumurinn er öllu óljósari, en
þó eru ýmis tákn sem vara þig
við að trúa of mikið á einhvern
einn mann, þvi enginn er full-
kominn. Allt ofstæki tengt ein-
hverju einu (og þó sérstaklega
einum manni) getur valdið þér
sorg og erfiðleikum. Margt í
þeim draumi gefur þó í skyn að
þér verði ekki mikið átak að
vinna bug á þeim erfiðleikum og
fátt verður til að þregða skugga
á ánægju þína og velgengni í
hugðarmálum þínum. Einhver
upphefð fellur þér siðar í skaut
og óeigingjarnt starf þitt á
ákveðnu sviði ber ríkulegan
ávöxt.
Norskir fánar á
tslandi
Kæri draumráðandi!
Ég vona að þú getir hjálpað
mér með þennan draum, sem
mig dreymdi á milli hálf sjö og
hálf átta í morgun.
Mér fannst ég standa við
Austurbœjarskólann og horfa á
norska skrúðgöngu, það sá ég
greinilega því allir fánarnir
voru norskir. Mér fannst skrúð-
gangan fara niður eftir
Bergþórugötunni og að Austur-
bæjarbíó, en allt í einu leystist
hún upp og allt var orðið fullt
af lögreglu- og slökkviliðs-
mönnum. Svo fannst mér einn
slökkviliðsmannanna koma á
fullri ferð á hvítum fólksvagni
inn portið við Iðnskólann en
þar sprakk bíllinn í háaloft. Þá
kom einn lögreglumaður með
slökkvitæki og sagði um leið
við slökkviliðsmanninn: Þetta
hefur bjargað 4000 þúsundum
norskum. Við þetta vaknaði ég.
Ég skal taka það fram að ég er
Islendingur en hef búið í
Noregi síðastliðin 3 ár, en flutti
síðan til Svíþjóðar fyrir
mánuði. Ég hef ekki komið til
íslands á þessum árum.
Virðingarfyllst.
AMS
Að sjá blaktandi fána við stöng
boðar i draumi að dreym-
andinn hljóti nýja og betri
atvinnu. Það eru fleiri tákn í
draumnum sem boða þér betri
daga, svo sem skrúðgangan, og
því ekki úr vegi að ætla að þér
muni ganga mjög vel að koma
undir þig fótunum í nýju landi.
Ekkert slæmt tákn fyrirfinnst í
draumnum og því getur þú
búist við mjög góðri framtíð
fyrir þig og þína.
30 Vikan 52. tbl.