Vikan - 27.12.1979, Qupperneq 36
Hver ákveður hvernig heimilið
okkar á að líta út? Við neytendur
erum aldr^j.spurðir álits, og þess
veana hTTóta það að vera
húsgagnaframleiðendur, sem
ákveða þaðfyrir okkur. Og hvert
sækja þeir hugmyndir sínar?
Sumir halda því fram, að fram-
leiðendur og hönnuðir heimsæki
bara stórar vörusýningar víða í
Evrópu, fái nasasjón af því sem
koma skal og fari síðan heim til
að framleiða eftirlíkingar. Sé
þetta rétt, er fundin skýringin á
því að hinn svokallaöi skan-
dinavíski stíll, eins og við
þekktum hann, er að hverfa.
Ríkjandi stíll náði fótfestu á
mörkuðum Vestur-Evrópu fyrir
nokkrum árum. Borgara-
legur miðstéttarstíll, eins og
hann gerðist bestur á megin-
landinu.
húsgOgn i
LANGÚMMU
STiL
Úrvalið af vagghúsgögnum ar
mikið, en ef við Iftum nánar á þau
komumst við fljótt að raun um, að
þau henta hvorki sem bókahHkir
eða geymsluskápar.
Nútíma húsgögn minna ekki svo Iftið á húsbúnaðinn hennar
langömmu. Þau eru með piussóklæði í gamaklags litum og
með kögri. Mikið af borðstofuhúsgögnunum er í sama stfl,
þó þar sé einnig um eftirlHcingar frá öðrum tfmum að rœða.
Þau em samt mun minni en fyrirmyndimar, því hætt er við
að stofumar okkar þyldu ekki upprunalegu stærðina, sem
hentaði fólki á öðmm tlmum og við aðrar aðstæður.
„Nýja" húsgagnatískan stingur í stúf við þau húsgögn,
sem fyrir em, og brýtur stflinn hvað teppi, veggfóður,
gluggatjöid og lampa snertir — jafnvel rammana á mynd-
unum okkar.
Er þetta kannski nýtt sölubragð?
Húsgögnin
hennar langömmu
Fyrir skömmu var haldin
húsgagnasýning í Osló, og hún
einkenndist af þessari stefnu.
Það sem húsgagnaverslanir
munu hafa á boöstólum á næst-
unni minnir helst á húsgögnin
hennar langömmu. Húsgögn með
plussáklæði og kögri, litir í sama
stíl, fölbleikt, karamellubrúnt og
olívugrænt.
Þessi húsgögn eru líka ákafiega
viðhafnarmikil, og hvergi má
sjást í við. Sófar og stólar eru
allt of d júpir og verða ekkert
þægilegri sæti, þó aðfram-
leiðendur reyni að grynna þá
svolítið með þykkum púðum.
Límd við skerminn
Síðan sjónvarpið varð mikil-
36 Vlkan SZ. tbl.