Vikan - 17.01.1980, Blaðsíða 23
Erlent
Rússnesk nýjung:
Erlent
ÓÞÆGILEG EFTIRKÖST
Fólk er yfirleitt litt hrifið af því að
vera stöðugt minnt á fortíð sina, að
maður tali nú ekki um ef hún birtist
manni allsnakin. Fyrir nokkrum árum
átti Jacqueline Bisset i fjárhagsörðug-
leikum og féllst þá á að koma fram nakin
i kvikmynd sem kölluð var Leyndarmál.
Þessa mynd má nú kaupa á myndsegul-
bandi fyrir 79,95 dollara. Það nægir að
hringja til fyrirtækisins „Tele-Cine” í San
Francisco. Heyrst hefur að Jacqueline
eigi nú von á upphringingu frá þeim
manni sem keypti öll eintökin ....
Bisset Nakin fortíð.
FÆÐING
í VATNI
Á myndunum sem hér fylgja má sjá
rússneskan dreng, lvan að nafni,
nýkominn í heiminn. Það merkilegasta
við fæðingu hans er líkast til það að
móðir hans var á kafi í vatni meðan at-
burðurinn átti sér stað ásamt Ijósmóður
sem var henni til aðstoðar. Aðferð þessi
er ný af nálinni og kennd við doktor
Tjarkovsky sem er Rússi.
Samkvæmt kenningum hans er tilvon-
andi móðir látin vera í kafi í vatni þegar
hún væntir sín og fær ekki að stinga
hausnum upp úr nema rétt til að anda.
Vatnið í lauginni er nákvæmlega 37
gráða heitt, eða sama hitastig og barnið
bjó við á meðan það enn var inni í
móðurinni. Með þessu móti verða
viðbrigðin hjá barninu miklu minni en
undir venjulegum kringumstæðum þar
sem hefðbundnar aðferðir eru notaðar.
Auk þess þurfa mæðurnar að reyna
minna á sig við fæðinguna þar sem þær
fljóta um í vatninu. Athyglisvert þykir
að börn sem fæðast á þennan hátt eiga
ekki í minnstu erfiðleikum með að synda
upp á yfirborðið — þau synda reyndar
eins og fiskar. Þegar höfuðið skýst svo
upp á yfirborðið taka reyndar hendur
fæðingarlæknisins við nýfæddu barninu
— og lífið hefst fyrir alvöru á þurru
landi eins og vera ber.
Barnið nýkomið úr móðurkviði.
Engan skelfingarsvip er að merkja á
andliti þess þó svo það sé á kafi f
vatni.
Ivan litli litur rólega i kringum sig
þegar honum skýtur upp á yfir-
borðið þar sem hendur læknisins
taka á móti honum.
3. tbl. Vikan 23