Vikan - 17.01.1980, Blaðsíða 62
Pósturinn
Blikkar mig
úti á götu
Komdu sæll, kærí Póstur!
Þetta er í annað sinn sem ég
skrifa þér svo ég vonast eftir
svari.
Þannig er mál með vexti að
ég er æðislega hrifin af strák,
en vandamálið er hyort hann
er hrifinn af mér! Á böllum er
hann alltaf ofsa hress og kátur
og er þá alltaf að ffast við mig
og taka utan um mig. Hvað
meinar hann með þessu? Svo
er hann alltaf að blikka mig
þegar ég sé hann úti á götu en
það er mjög sjaldan sem ég sé
hann.
í vetur er hann í skóla í
bænum svo ég sé hann þá
sjaldan.
Góði Póstur, gefðu mér nú
gott ráð, ekki segja mér bara
að gleyma honum, því það get
ég ekki. Getið þið ekki birt
eitthvað um fræga hestamenn?
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Bless, bless.
SKSÁ
Það er alls engin ástæða fyrir þig
að gefa allt upp á bátinn og
reyna að gleyma drengnum á
meðan ekki er útséð um að þér
takist að krækja i hann. Líklega
verður þú samt að biða þess að
hann komi heim úr skólanum,
en þá er tækifærið að grípa til
allra tiltækra ráða. Það hefur
gefist nokkuð vel að rekast á
þann heittelskaða af „tilviljun”
og ýmislegt annað væri einnig
vel nothæft. Um að gera að
gefast ekki upp þótt móti blási
og það er alls ekki ólíklegt að
hann hafi áhuga fyrst hann
blikkar þig úti á götu.
Uppástungan um hestamanna-
greinar er til athugunar.
Ég er f rekar f eit
og enginn vill
mig
Kæri Póstur.
Ég ætla að byrja á því að
þakka Vikunni fyrir allt gamalt
og gott. Hvernig væri að birta
mynd af Dr. Hook? Ég er
frekar feit og enginn vill mig,
af því að ég er svo feit. Hvað á
ég að gera? (Ég hef reynt að
fara í megrun.) Jæja, ég skal
ekki þreyta þig meira, en hvað
heldur þú að ég sé gömul.
Ein forvitin.
Varla getur ástandið verið svo
slæmt að enginn vilji við þér líta
vegna þess að þú ert ekki alveg í
hinni einu sönnu kjörþyngd,
sem allir vilja ná á sem auðveld-
astan máta. En það er ekki
nokkur ástæða fyrir þig að
burðast með aukakíló, sem gera
ekkert annað en að vera þér til
óþæginda bæði á líkama og sál.
Hertu upp hugann og farðu i
leikfimi þar sem einnig er gefið
upp megrunarfæði og svo
gætirðu líka haft samband við
Línuna, ef kílóin eru mörg sem
þú þarft að losna við. Það er alls
ekki ráðlegt fyrir unglinga á
þínum aldri að fara í megrun á
eigin spýtur. Þú ert að vaxa og
þarft nauðsynlega á ýmsum
efnum að halda og því þarf að
fylgjast vel með því sem þú
nærist á. Gefstu ekki upp þótt
þér finnist þetta ganga hægt í
byrjun, það er ekki annað en
eðlilegur gangur mála. Beiðni
þinni um plakat af Dr. Hook er
hér með komið á framfæri.
Langar að
kynnast
einhverju nýju
Kæri Póstur.
Þannig er mál með vexti að
við erum tvær sem langar að
kynnast einhverju nýju. Við
erum 17 og 18 ára og óskum
eftir að komast sem þernur á
hótel einhvers staðar í Evrópu.
Getur þú gefð okkur
upplýsingar um hvert við
eigum að snúa okkur? Vonum
að Helga sé ekki svöng.
Með fyrirfram þökk.
Tvær forvitnar
Slíkar stöður eru auglýstar í dag-
blöðunum af og til og því ættuð
þið að fylgjast með þvi hvort
ekkert slíkt birtist með vorinu.
Einnig væri athugandi fyrir
ykkur að hafa samband við
sendiráð þeirra landa sem þið
hafið mestan áhuga á að
kynnast og biðja um aðstoð.
Aðalatriðið er að gefast ekki upp
og þá hefst þetta með tímanum.
Dagblaðið, gam-
algróið flokks-
blað
Kæri Póstur.
Við erum hér tvær sem ekki
erum á Fróni þessa mánuðina
en viljum fylgjast vel með öllu
sem skeður. Því fáum við Dag-
blaðið sent, gamalgróið fokks-
blað og er ekkert nema gott
um það að segja. En svo er
mál með vexti að önnur okkar
er að norðan og henni fnnst
að það vanti tilfnnanlega bíóin
á Akureyri í blaðið og erum
við báðar alveg sammála um
þetta. Getur þú ekki, elsku
Póstur, sagt okkur hvað við
eigum að gera í þessum vand-
ræðum okkar? Og svo að
lokum, hvernigfara saman asni
og kálfur? Númer hvað notar
Elton John af skóm?
Með fyrirfram þökk.
Flipp '79
Jahérna, alltaf heyrir maður
eitthvað nýtt! Er nú Dagblaðið
orðið gamalgróið flokksblað?
Getur ekki verið að eitthvað
hafi skolast til hjá ykkur vin-
konum í ferðinni frá Fróni?
Og hvað ætlið þið svo að gera
með bíóin á Akureyri á meðan
þið eruð hvergi nærri? Ef ykkur
finnst vanta auglýsingar frá
þessum kvikmyndahúsum
skulið þið koma þvi á framfæri
við forráðamenn þeirra. Öllum
er frjálst að auglýsa og það er
því í þeirra valdi að bæta úr
þessu.
Asni og kálfur falla saman
eins og flís við rass eins og allir
hljóta að gera sér ljóst. Elton
John hefur því miður ekki verið
svo liðlegur að leyfa Póstinum
að máta skó af sér og því er
skónúmer Eltons Póstinum
hulinn leyndardómur.
Pennavinir
Birna Björnsdóttir, Hafnarbraut 10,620
Dalvik, óskar eftir að skrifast á við
stelpur og stráka á aldrinum 9-11 ára.
Hún er sjálf 10 ára. Áhugamál eru dýr,
bækur og íþróttir. Mynd fylgi fyrsta
bréfi ef hægt er.
Ian McGuiern, 5 Grange Road,
Lillington, Leamington-Spa Warks.
cv32 7RU, England, er enskur strákur,
17 ára, sem hefur áhuga á að komast í
bréfasamband við íslenska stelpu á
svipuðum aldri sem skrifar á ensku.
Áhugamál hans eru tungumál,
landafræði og íþróttir.
Vilmundína Lind Kristjánsdóttir,
Selsstöðum, 710 Seyðisfirði, óskar eftir
að skrifast á við 12-14 ára stelpur. Hún
er sjálf 12 ára. Áhugamál hennar eru
badminton, tónlist, dýr og margt fleira.
6Z Vikan 3. tbl.