Vikan - 17.01.1980, Blaðsíða 57
Labbakútarnir Bud Blake
■
Völvuspá
Vikunnar
vekur
stórathygli
Völvuspá Vikunnar fyrir árið
1980 hefur vakið óskipta
athygli, enda hafa nokkrir spá-
dóma hennar þegar ræst. Margir
af lesendum Vikunnar átta sig
sennilega ekki á því, að vinnslu-
tími blaðsins er langur og því tók
ritstjóri við spánni í nóvember-
lok. Frá þeim tíma hefur m.a.
komið fram, að hörmulegir
atburðir hafa orðið á sjó,
Karolína prinsessa á von á sér,
einkamál Kennedys valda
honum miklum erfiðleikum í
kosningabaráttunni, o.s.frv.
Vegna þessa hafa margir
hringt og lagt áherslu á að fá að
vita, hver spákonan er. Það
verður ekki gefið upp, en hins
vegar skal það tekið fram, að hér
er um nýja spákonu að ræða.
Það átti að koma fram í
inngangi að völvuspánni, en
fyrir mistök, sem verða að
skrifast á reikning ritstjóra, er
því haldið fram, að um sama
aðila, þ.e. völvu Vikunnar, sé að
ræða. Svo er sem sagt ekki.
Ritstj.
3. tbl. Vikan 57