Vikan - 17.01.1980, Blaðsíða 31
Opnuplakat
i
ER KOMIN
í HÓP
STORHLJOM
SVEITANNA
Hafi einhver vafi verið á því að hljóm-
sveitin Supertramp væri i hópi stærstu
hljómsveita heimsins var hann að engu
gerður er LP platan Breakfast In
America kom út á siðasta ári. Sú plata
hlaut frábærar viðtökur gagnrýnenda
jafnt sem plötukaupenda og vikum
saman var hún i hópi metsöluplatna
hvarvetna um heint.
Fjögur lög af Breakfast ln America
komu út á litlum plötum. Logical Song
hlaut bestar viðtökur. Litlu minni sala
varð í titillagi plötunnar og lagið
Goodbye Stranger seldist prýðilega.
Nokkru fyrir jól kom fjórða lagið, Take
The Long Way Home, út. Það komst í
tiunda sæti vinsældalistans í
Bandaríkjunum en tók síðan að falla
niður.
Stofnendur Supertramp eru Richard
Davies og Roger Hodgson. Hljómsveitin
hefur verið eins skipuð siðan 1973. Til
viðbótar stofnendunum eru i henni John
Anthony Helliwell, Dougie Thompson
og Bob C. Benberg.
í upphafi ferils hljómsveitarinnar
vegnaði henni frekar illa. Hún lifði þó
vegna fjárstyrks milljónamærings sem
hafði trú á liðinu. Það var þó ekki fyrr
en hann gafst upp á hljómsveitinni sem
eitthvað fór að ganga.
Supertramp hefur sent frá sér sex LP
plötur. Supertramp kom út árið 1970 og
Indelibly Stamped ári síðar. Sama ár
kom platan Crime OfThe Century út. Á
henni var lagið Dreamer. sem hlaut
ágætar móttökur. — Fimm árum síðar.
eða 1976, gaf Supertramp út plötuna
Crisis? What Crisis? og fylgdihenni eftir
með Even In The Quitest Momenls. Þá
var hljómsveitin tekin að byggja upp
aðdáendahóp sinn, sem margfaldaðist
með útkomu Breakfast In America.
Sagt er að Supertramp sé með sér-
stæðustu hljómsveitum sem starlandi
eru. Til dæmis hafa leiðtogarnir Richerd
Davies og Roger Hodgson ekki ræðst 'dð
árum saman. Ágreiningur þeirra spratt
upp vegna mismunandi afstiiðu til eitur-
lyfsins LSD. En hvað sem öllum deilum
innan hljómsveitarinnar líður gengur
þeim Hodgson og Davies ágætlega að
semja saman lög. Við slíkt ’úrðist
margra orða ekki þörf.
3. tbl. Vikan 31
i