Vikan


Vikan - 17.01.1980, Side 30

Vikan - 17.01.1980, Side 30
Draumar Dauöar kindur í sjávarmálinu Kæri draumráðandi! Mig langar að biðja þig að ráða þennan draum fyrir mig. Hann er svona: Ég og kærastinn minn vorum úti að labba. Mér fannst við vera að koma af diskóteki. Við löbbuðum svolitla stund og mér varð litið niður að sjó. Þá sé ég svona 5-6 dauðar kindur I sjávarmálinu. Svospyrég strákinn, sem ég var með, hvað klukkan sé. Hann sagði að klukkan væri orðin sex. En rétt I því kom vinkona mín til okkar og þá vaknaði ég. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. H.M. Það er fátt um góð tákn í draumnum, og hann verður að teljast mjög slæmur fyrirboði. í miðri Viku Aðallega boðar hann þó kröggur á næstunni og einnig einhverja mikla sorg eða söknuð sem hefur nokkuð afgerandi áhrif á framtíð þína. „Ég varð að drepa hann...” Kæri draumráðandi! Mig langar til að skrifa um draum sem mig dreymdi síðast- liðinn vetur í von um að þú getir ráðið hann. Mér fannst að ég væri í herbergi með stiga og að ég væri með strák, N, sem var fullur eða eitthvað, þvíhann átti erfitt með að tala. Hann gat varla staðið heldur. Svo kemur annar strákur niður stigann og er að þukla á hníf, sem er í brjóstvasa hans, og segir: „Ég varð að drepa hann! Ég þoldi hann ekki lengur. ” Ég vissi strax hvern hann var að tala um því hann þoldi N ekki I raun og veru. Ég varð voða taugaóstyrk yfir þessu. Svo er ég hjá vinkonu minni og þá kemur Á allt í einu í herbergið grátandi og segir: „Ég var svo skotin í N, ” og allt í svipuðum dúr. Þá gaf ég henni skær- bleika hálsfesti. Hún brosti þá og allt varð í lagi. Ég þekki N ekkert, nema ég er í sama bekk og hann, en ég þekki hina krakkana í draumn- um nokkuð vel. Með fyrirfram þökk. SH Langlíklegast er að draumur þessi sé þegar kominn fram án þess þó að þú gerir þér grein fyrir því. Flest tákn í draumnum eru afleitur fyrirboði og er það ekki eingöngu þér fyrir ein- hverju slæmu heldur einnig kunningjum þínum. Til þess að geta sagt nákvæmlega til um hvað draumurinn boðar ykkur þarf draumráðandi að vita meira um ýmis atriði ykkur tengd, svo sem nafn N. Þó er ekki úr vegi að nefna að hnífur í draumi er mjög slæmt tákn, boðar sundur- þykkju, misgerðir og svik — og getur verið um að ræða allt þetta eða hluta þess. En sem áður sagði er draumurinn sennilega þegar kominn fram og þá með einhverjum atvikum meðal þin og kunningja þinna, en N þarf ekkert frekar að tengjast þvi á neinn máta. Kæri draumráðandi! Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig þessa drauma. Fyrstu nóttina dreymdi mig að ég vœri stödd milli kirkju- garðsins og sjúkraskýlisins. (Það eru ekki nema nokkrir metrar á milli.) Mér fannst vera mjög mikill snjór og það var verið að ryðja götuna. Þá fannst mér snjórinn hvolfast yfir mig. Ég komst þó loks út úr þessu. Þá var ég komin á bílnum mínum inn á pláss. Hann er grænn. Hann bilaði og ég var komin í annan bíl, gulan. Hann bilaði líka. Ég hélt nú áfram gangandi og ætlaði mér að komast í bókabúð en þar var ekkert nema klaki og snjór og var búið að höggva geil inn í klakann. Ég átti í miklum erfiðleikum með að komast þarna upp og var ekki komin upp þegar ég vaknaði. Aðra nótt dreymdi mig að ég var stödd í kirkjugarðinum og fór ég að leiði foreldra minna og systursonar. Þá fannst mér leiði föður míns svo lítið og illa frá gengið og mikil mold í kring (hann er nýlega dáinn). Labbaði ég nú yfir I hinn enda garðsins að leiði tengdaföður míns. Þar er skiptur veggur og sá ég mikið af hvítum fötum sem lágu upp með veggnum. Ég fór að tína þau saman og labbaði upp með veggnum og fann meira af hvítum fötum og allt upp I heila stranga af hvítu efni. Þriðju nóttina dreymdi mig að ég væri stödd hjá systur minni og við vorum að þrœta út af veðrinu. Ég var alltaf að segja að það væri komið logn. Hún vildi ekki viðurkenna það og sagði ég henni þá að hún skyldi bara koma og sjá og benti ég henni fram fjörðinn. Þá fannst mér ég sjá að fjörðurinn var fullur af ís en þó sást í sjóinn á milli. Hann var mjög Ijótur og úfinn. Lengri varð draumurinn ekki. Mig langar að biðja þig um að ráða þetta sem fyrst, en aðeins birta svarið. M. Þvi miður, það er regla að birta aldrei aðeins svörin og því tók draumráðandi þann kostinn að birta bréfið þitt. Ekki er auðvelt að ráða í frá hverjum bréfið er og því var þessi leið valin og vonar draumráðandi að það komi ekki að sök. Allir þrír draumarnir tákna þér nokkurn veginn sömu atburði, þó ekki eingöngu það sama en mjög mörg atvik samtengd. Fyrsti draumurinn boðar mikla erfiðleika, jafnvel veikindi, og þér mun happa- drýgst að forðast illindi og fljót- færnislegar ákvarðanir. Annar draumurinn er fyrirboði margra góðra atvika og sagt er að dreymi mann að hann sé einn á ferð í kirkjugarði muni hann verða langlífur og hlotnast virðing samferðarmanna. Hvítu fötin og strangarnir boða einnig það sama og jafnvel happ — sem þér fellur í skaut. Þriðji draumurinn táknar ein- hverja erfiðleika innan fjölskyld- unnar og þar er ykkur systrun- um bent á að láta ekki fljótfærni verða ykkur til tjóns. Að öðru leyti er hann nokkuð góður og gæti jafnvel verið til marks um að þér takist að inna af höndum mikið trúnaðarstarf. Hafðu þó í huga að ekki er sama tákn ævin- lega öllum mönnum fyrir því sama og ýmislegt, sem draum- ráðandi ekki veit um dreym- andanum viðkomandi getur breytt miklu í ráðningu. Þrír vetrardraumar 30 Vikan 3. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.