Vikan - 08.05.1980, Blaðsíða 28
Jónas Kristjánsson skrifar um íslensk veitingahús
Vondur matur
á dýru verði
Súlnaberg undir Hótel KEA á
Akureyri er gott dæmi um tilfinning^-
snauða færibandamatstofu, sem gefur
gestum fóður á garðann, svo að þeir
hætti að vera svangir. Engu máli skiptir,
hvernig fóðrið er, ef það bera seður.
Þannig er hinn íslenski einkennismat-
staður. Annars vegar er ausið upp úr
hitadunkum sundurtættum mat, sem
haldið hefur verið heitum allt of lengi.
Hins vegar er grillað og djúpsteikt eftir
pöntunum í steikarbúluhorni.
Meira að segja börnin, sem elska
tómatsósu, hamborgara og franskar
meíra en annan mat, sögðu, að þetta
væri vondur matur og raunar verri
matur en enginn matur. Súlnaberg getur
semsagt keppt við verstu matstofur
Reykjavíkur.
Sjálfur staðurinn er fremur snyrti-
legur og virðist vel við haldið. Lita-
samsetningar eru góðar. Brúnir rimla-
veggir brjóta niður flötinn, einkum á
efra gólfi, þar sem rólegra er að vera.
Niðri er meiri annrikisblær yfir öllu.
Fastamatseðillinn er fremur stuttur.
með sex forréttum, þremur fiskréttum,
átta kjötréttum og sjö eftirréttum, þar af
fimm ísum. Matseðill dagsins er aftur á
móti langur og þar að auki miklum mun
ódýrari en fastaseðillinn.
Daginn, sem Vikan prófaði Súlna-
berg, var boðið upp á blómkálssúpu á
650 krónur, djúpsteikt ýsuflök með
remoulade á 2.250 krónur, grísasultu
með rauðrófum á 1.900 krónur.
vínarpylsur með kartöflusalati á 2.680
krónur, fylltan dilkabóg með rauðrófum
á 2.530 krónur, lambasnitsel með
grænmeti á 2.980 krónur. fromage á 650
krónur, sveskjukompot á 500 krónur,
rjómaís á 500 krónur, skyr með rjóma-
blandi á 800 krónur og ávaxtagraut á
950 krónur.
Djúpsteikt ýsa
Djúpsteikt ýsuflök á matseðli dagsins
voru köld upp úr hitapottinum. Þau
voru bragðlaus að mestu. Remúlaði-
sósan var ómerkileg. Hvitu kartöflurnar
voru hins vegar frambærilegar, svo og
léttsýrðu gúrkurnar. Verðið var 2.250
krónur, sem fyrr segir.
Lambasnitsel
Lambasnitsel með grænmeti á
matseðli dagsins hafði verið lamið
(ótæpilega og var því meyrt og nánast
sundurlaust, en næstum alveg bragð-
28 Vikan 19. tbl.