Vikan - 27.11.1980, Síða 55
En þá hafði hann líka skrifað
„Leiftur yfir Kwaifljótinu”.
Hann hafði tröllatrú á því hand-
riti.
— Þetta hérna, sagði Sam
Goldwasser, þegar hann hafði
blaðað aðeins í handritinu. —
Ég get alveg sagt þér hvað
vantar í það. Love! Það er ekki
ein einasta ástarsena í allri
myndinni. Hvernig í ósköpun-
um heldurðu að við getum
lokkað kvenfólkið á þessa
mynd? Og ef við náum því ekki
þá er hún fallin, það get ég sagt
þér. Nei, við verðum að fá love
story, eins og í „Konunni frá
Miami Beach”, þar sem
elskendurnir ná saman í brim-
löðrinu á ströndinni, hún grípur
andann á lofti og þau veltast um
í sandinum meðan öldurnar
leika um . . . þú veist hvernig
þetta á að vera, Dick. Farðu nú
heim og skrifaðu svona handrit.
Það slær í gegn. Ég skyldi ekki
hika við að fjárfesta 20 milljónir
dollara í svoleiðis fyrirtæki . . . í
Superramacine-O-Scope.
Dick fór heim og skrifaði
ástarsöguhandritið sitt.
Kvenhetjan var andstutt svo að
segja alla myndina út í gegn og
hetjan hélt henni í örmum sér
meðan brimlöðrið vætti hár
hennar, nákvæmlega eftir
formúlu Sam Goldwasser.
Sam las handritið vendilega
yfir.
— Það er margt hér sem ég
kann vel að meta, sagði hann. —
bað var einmitt eitthvað í
bessum dúr sem ég hafði í huga.
En getur þú sagt mér hvernig í
ósköpunum við eigum að koma
svona stóru verkefni fyrir í
kvikmyndaverunum okkar í
nánustu framtíð? Eins og þú
veist erum við nýbyrjaðir á
stóru heimskautakvikmyndinni
°kkar, „Synir snjóbreiðunnar”!
Við ljúkum ekki tökum á henni
næstu tvö árin. Nei, ég er
hræddur um að við verðum að
hætta við þetta, Dick. Mér er
bölvanlega við það, Dick, því
niáttu trúa, en ...
Dick leit ráðvilltur á
kvikmyndakónginn mikla.
— Já, en Sam, sagði hann, —
er bá ekkert hægt að gera við öll
handritin mín?
Sam Goldwasser tók góðan
sopa af eggjamjólkinni sinni og
andaði að sér fersku sjávar-
loftinu. Hann var greinilega að
hugsa svo stíft að brakaði í
kvörnunum.
— Þarna kom það, Dick!
sagði hann og smellti með
fingrunum.
— Þarna kom það! Það væri
glæpur gagnvart jafnefnilegum
ungum höfundi og þér að láta
allan þennan pappír fara til
spillis. Veistu hvað við getum
gert? Við klippum öll handritin í
snifsi og notum þau í snjó í stór-
myndinni „Synir snjó-
breiðunnar”.
Þýð.iaób.
48. tbl. Vlkan »