Vikan - 05.02.1981, Page 5
Utvarp
útlendingar sem ekki skilja bofs i
íslensku vera að ómaka sig að hlusta á
þessar sendingar? Jú, um allan heim er
hópur áhugahlustara, fólk sem safnar
löndum á þann hátt að það reynir að ná
sem allra flestum útvarpsstöðvum á
tækin sin, rétt eins og aðrir safna frí-
merkjum eða mynt. Og takist þeim að
ná nýrri stöð gefa þeir því vel gaum sem
þar fer fram, reyna að gera sér grein
fyrir hvaða stöð þeir eru að hlusta á og
senda síðan upplýsingar um hlustunina
til viðkomandi stöðvar. Þar er að finna
lýsingu á dagskránni, eins og hún kemur
þeim fyrir eyru, upplýsingar um styrk ag
allt mögulegt sem við kynnumst lítillesa
síðar í greininni.
Síðan fá þeir staðfestingu stöðvar-
innar á því að það hafi verið rétt
útvarpsstöð sem þeir heyrðu i og nýtt
land hefur bæst í hópinn.
Hver hefur ekki lent á annarlegum
röddum þegar hann er að reyna að stilla
á ákveðna stöð úti i heimi eða jafnvel að
reyna að ná Útvarpi Reykjavík á nýtt
tæki? Ekki þarf mikið hugmyndaflug til
að gera sér grein fyrir hvers vegna fólk
fær þessa dellu frekar en aðra. Það er að
segja þeir sem hafa á annað borð tíma til
að leggja rakt viðeinhvers konar dellu.
Kanadcmaflurinn KMdand, sam raaktar rósir og hlustar á útvarp.
tækin hans
. . . og fjalltfl hans.
6. tbl. Vikan 5