Vikan - 05.02.1981, Blaðsíða 45
Myndlist
annarri bernskuminningu upp í hug-
ann. Hann þverneitaði að fara til
rakarans. Palli frændi hafði sagt honum,
að rakarar klipptu hausinn af óþekkum
strákum. Hann var óþekkur strákur.
Eldri systur gættu hans og þeim tókst,
með fullum poka af sælgæti, að lokka
hann inn á rakarastofu í miðbænum.
Næstur á undan honum i stólinn var
strákur á hans aldri. Rakarinn setti fjöl á
stólarmana og strákinn á fjölina. Síðan
setti rakarinn hvítt lak yfir strákinn
nema hvað hausinn stóð upp úr. Þá var
honum nóg boðið og flýði sem fætur
toguðu. Hann gleymdi þó ekki sælgætis-
pokanum, át úr honum á heimleiðinni,
og ekkert varð úr klippingu í það sinn.
1 Langholtinu fjölgaði fólki óðum.
Strákarnir léku fótbolta, dag út og dag
inn. í fyrstu var ekki um annan skóla að
ræða en Laugarnesskólann. Krakkarnir
úr holtinu fóru í og úr skólanum með
skólabíl. Kennarinn hans hét Jónas,
ágætur karl, en strangur.
Hann hafði átt að teikna
skip
Eitt sinn var hann rekinn heim.
Ástæðan var sú, að Jónas sagði nemend-
unum að teikna skip. Hann hafði séð
skipin úr Langholtinu. Þaðan að sjá
voru þau örsmá á stóru hafinu. Hann
þakti þvi pappirinn með öldum og
teiknaði síðan örlítið skip í öldurnar.
Hann var rekinn heim. Hann hafði átt
Skúringakarlinn.
mannholinu.
Sýningar Guðmundar Ármanns
Sýning á Mokkakaffi í Reykjavik 1961.
Samsýningin „Ungir myndlistarmenn" i Laugardalshöll 1966.
Samsýningar nemenda Vailandsskólans á námstimabilinu.
Þátttaka í Ungdomsbiennal i Osló, ásamt Arthúri Ólafssyni, en þar
sýndu þeir félagar sem fulltrúar Svíþjóðar.
Þátttaka i þrem alþjóðlegum grafiksýningum á meginlandinu.
Þátttaka i alþjóðlegri teiknisýningu á Italiu.
Þátttaka i stórri samsýningu sœnskra myndlistarmanna í Gauta-
borg, en þar fókk Guðmundur þá dóma, að myndir hans væru hvað
athyglisverðastar á sýningunni.
Einkasýning í Gallery Súm í Reykjavik.
Þátttaka i fjölda annarra samsýninga, heima og erlendis.
7. febrúar 1981 opnar Guðmundur sýningu að Kjarvalsstöðum, en
þar sýnir hann ásamt Sigurði Þóri Sigurðssyni.
að teikna skip. Þetta var í eina skiptið
sem hann var rekinn úr tíma. Hann
skildi ekki hvers vegna og það var mjög
langt að labba heim. Þessari sáru reynslu
hefur hann ekki gleymt. Hann var ekki
nema einn vetur í Laugarnesskólanum.
annað barnaskólanám stundaði hann i
Langholtsskólanum.
Hann var 10 ára þegar hann var fyrst
sendur í sveit. Það var að Björnskoti á
Skeiðum, en þar var hann fjögur sumur
við kúasmölun og flórmokstur. Honum
er það minnisstætt hve stór fjósaskóflan
var.
Þetta eru í stórum dráttum bernsku-
minningar Guðmundar Ármanns
Sigurjónssonar, listmálara á Akureyri.
Seldi mynd á 500
krónur
En hver voru fyrstu kynni þín af
myndlist, Guðmundur?
Þau voru í föðurgarði. Pabbi var
Fæddur í gamla
Doktorshúsinu
Hann er Reykvíkingur, af skaftfellsk-
um ættum, fæddur að Ránargötu 13,
eða nánar tiltekið í gamla Doktorshús-
inu. 3. janúar 1944.
Þess vegna átti hann danskan kóng í
nokkra mánuði.
En hann var ekki lengi vestur-
bæingur. Samt lengur en hann átti kóng.
1949 eða '50 flutti hann á Langholtsveg
104. en þar höfðu foreldrar hans reist
eitt af svonefndum sænskum húsum.
Það þótti ansi gott að búa á Langholts-
veginum í þann tíð. Þetta var hálfvegis
uppi i sveit. Einstaka hús stóð i Laugar-
ásnum, en byggðin náði ekki nema að
Teigunum. Síðan byggðust Vogarnir.
Þetta voru merkilegir tímar fyrir hann,
þaðan eru fyrstu heillegu bernsku-
minningarnar.
Einn atburður er honum minnis-
stæður af Ránargötunni, en það var
þegar hann missti framan af litlafingri
vinstri handar. Lítill, danskur prakkari
fékk hann til að halda um læsingu á
hliði. Síðan skellti sá danski hliðinu
aftur. Við nánari umhugsun skýtur
Guflmundur Ármann vinnur afl mál-
verki af Króksstöflum í Eyjafirfli.
Akureyri í baksýn. Ljósm. Hildur
Pedersen.
Guðmundur vinnur afl þrykkingu
grafikmynda frá innbænum á
Akureyri. Ljósm. Hiidur Pedersen.
6. tbl. Vikan 45