Vikan


Vikan - 05.02.1981, Blaðsíða 19

Vikan - 05.02.1981, Blaðsíða 19
Framhaldssaga Ég breiddi úr uppdrættinum á skrif- borðinu. „Hér er inngangurinn í bankann. Ljósnemar stjórna tvöföldum dyrum. Þeir eru einstakir að gerð og ekki hægt að gera þá óvirka nema með tæki sem engir hafa aðrir en ég, Manson og aðal- gjaldkerinn. Það er hættulaust. Þó að einhver kæmist yfir þetta tæki kæmist hann ekki lengra en inn i anddyri bank- ans. Hann kæmist ekki í fjárhirsluna eða upp á aðra hæð, þar sem starfsliðið er. Með tækinu komast menn þínir inn í anddyrið. Það þarf að tímasetja inn- gönguna nákvæmlega þegar vörðurinn er í eftirlitsferð. Dymar renna frá. menn þínir þjóta inn og dyrnar lokast sjálf- krafa á eftir þeim. Það ætti ekki að taka þá lengri tíma en þrjátíu sekúndur. Þeir þurfa að hafa meðferðis lítið logsuðu- tæki svo þeir komist í geymsluhólfin. Það á ekki að valda neinum erfiðleikum að brenna sundur lásana. Það tekur kannski tíma en ætti að vera hægt með logsuðutæki. Vandamálið er auðvitað fyrst og fremst að komast inn i hvelfing- una.” Ég benti á uppdráttinn. „Hér er skrifstofa Mansons. Þarna fylgjast þrír leitarar með anddyrinu. Þeir eiga allir að taka myndir ef ljósgeislinn rofnar. Hér er geislinn. „Ég strikaði með blýanti yfir anddyrið. „Ef menn þínir skriða á fjórum fótum komast þeir að lyftunni án þess að setja leitarana af stað. Ef þeir þeita öðru tæki geta þeir stýrt lyftunni og komist í skrifstofu Mansons á annarri hæðinni.” Ég sýndi honum tækið sem ég hafði gert. „Það er rauður simi á skrif- borði Mansons. Það þarf að rjúfa leiðsl una og tengja þessa tvo víra þar við.” og ég sýndi honum lausu vírana tvo á tækinu. „Síðan verður að snúa fjórum tölum á skífunni á rauða símanum. Tölurnar eru 24-6-8. Þær tölur opna þrjá af lásum hvelfingarinnar. Síðan opnar kassettan með rödd Mansons hina þrjá lásana og þá opnast dyr hvelfingar- innar. Kassettan er i lokuðu hólfi fyrir aftan skrifborð Mansons. Það er undir mönnum þínum sjálfum komið hversu snöggir þeir eru að opna geymsluhólfin. Ef við gerum ráð fyrir því að þeir fari inn í bankann um tvöleytið á laugar- dagsnótt ættu þeir að vera búnir að hreinsa úr hólfunum undir kvöldið.” Ég þagnaði og leit á Klaus. „Eru einhverjar spurningar?” Klaus leit á Harry sem hristi höfuðið. „Þið Harry talið ykkur saman um smáatriðin síðar,” sagði Klaus. „Segðu mér nú hvernig ég kemst burt með peningana.” „Eyrst í stað virtist mér það vera mesti vandinn en ég sá við honum. Það eru eitthvað um fjögur hundruð geymsluhólf í bankanum. Þau eru ekki öll í notkun en menn þínir verða að opna þau öll til að vera vissir í sinni sök. i hólfunum sem eru í notkun eru peningar, skartgripir, verðbréf og skjöl. Þið verðið að hafa pappakassa til að flytja þýfið i. Vörðurinn er nálega þrjár mínútur að fara hringinn sinn um bank- ann áður en hann fer aftur i varðmanna- skýlið við innganginn. Menn þínir þurfa því að hlaupa inn og ekki bara með Iog- suðutæki heldur líka marga saman- brotna pappakassa. Varðmannaskiptin eru á sunnudagsmorgnum klukkan átta. Þá þarf að flytja þýfið. Það er ekki ýkja mikil áhætta því það eru fáir á ferli á götunum og verðirnir rabba saman fyrir framan bankann. Klukkan stundvíslega 7.55 kemur brynvárinn bíll að bakhlið bankans. Brynvarðir bílar koma á hverj- um mánudagsmorgni klukkan átta með varasjóð, fé til launagreiðslna og svo framvegis. Allir Sharnville-búar hafa einhvern tima séð þennan bíl. Það mætti orða það svo að hann sé kunnuglegt kennileiti.” Ég benti með blýanti á upp- dráttinn. „Bíllinn kemur hér að bank- anum og ekur niður þessa braut í kjallar- ann. Þegar hann er kominn inn lokast dyrnar inn i kjallarann sjálfkrafa. Öku- maðurinn er með tæki sem opnar kjallaradyrnar. Þegar hann er kominn inn bíður hann þangað til starfsmaður opnar stáldyr sem liggja beint inn í hvelfinguna. Sá starfsmaður opnar ekki fyrr en bílstjórinn er búinn aðgera grein fyrir þvi hver hann er. Ég get opnað kjallaradyrnar og stáldyrnar inn í bank- ann, en bara innanfrá. Þú verður að sjá um að útvega sams konar bíl og tvo menn í búningi öryggisvarða. Þið setjið kassana í bílinn og akið burt. Svo framarlega sem menn þínir gera engin mistök kemst ekkert upp fyrr en bankinn opnar á rhánudagsmorgni og þeir ættu auðveldlega að geta komist undan.” Klaus Ieit á Harry. „Geturðu útvegað bil og einkennis- búninga?” „Auðvitað. Ég þarf að fá mynd af bílnum og einkennisbúningunum. Ég þekki náunga sem getur reddað þvi. Ekkert mál.” Klaus sneri sér að mér og sagði: „Heldurðu að þessi áætlun þin geti heppnast?” „Ef hún ekki heppnast þá heppnast engin önnur.” Ég benti á tækið og uppdráttinn. „Ég hef gert þetta eins öruggt og mér var unnt. Nú er komið að þínum mönnum.” „Nei, herra Lucas, þetta er undir þér komið. Þú verður í för með þeim:” Hann hallaði sér fram og starði á mig og það glampaði á augu hans. „Ef eitthvað mis- tekst verður þú skotinn. Benny drap Marsh og hann drap Thomson. Hann hefur þau fyrirmæli að skjóta þig ef aðgerðimar mistakast eða ef hann heldur að þú sért að leika á þá. Mundu það.’’ Andlit hans afmyndaðist í grettu. „Og annað ættirðu líka að leggja á minnið. Ég skýt konuna þína með eigin hendi, herra Lucas! Þessi aðgerð verður að heppnast!” FERÐAVIÐTÆKI í MIKLU Verð kr. 1.290,- TRK-5404 E Radio-Recorder TRK-7300 E stereo-Radio-Recorder Verð kr. 1.975,- <Séhitachi TRK-SIOO E Stereo-Radio-Recorder Verð kr. 2.465,- 0HITACHI 1" \' / ——ll —o TOHI Jgj 9 a L^jD ■ TRK-8180 E Stereo-Radio-Recorder Verð kr. 4.160,- Vilberg & Þorsteinn Laugavegi 80 — Sími 10259 ». tbl. Vlkan 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.