Vikan - 05.02.1981, Blaðsíða 10
Texti: Álfheiöur Steinþórsdóttir
Þunglyndi
„Jóna er fertug, gift og á 2 stálpuð böm.
Hún vinnur hálfan daginn í verslun og
þjáist af þunglyndi. Hún lýsir leiða og
vonleysi og hefur stundum hugsað um
sjálfsmorð sem leið út úr ógöngunum.
Hún segist hafa misst allan áhuga á
vinum og ættingjum, sem sé ekki líkt
henni. Hún grætur af minnsta tilefni og
það eina sem hún hugsar stöðugt um er
hvað hún sé ómöguleg og hafi alltaf
verið, sem móðir, í vinnunni og alls
staðar. Nú er hún að hugast af áhyggj-
um, vaknar 5-6 á morgnana. getur ekki
sofnað aftur og hefur á stuttum tíma lést
um 6 kg.”
Þunglyndi, eins og hér er lýst, er þekkt
frá örófi alda og er með algengustu
vandamálum sem fólk leitar hjálpar við
hér á landi. En þar sem þunglyndi er
mjög vítt hugtak er rétt að skilgreina
nánar hvað það felur i sér.
„Að vera langt niðri"
Ýmis áföll koma fyrir alla á ævinni,
svo sem lát ástvina, skilnaður og
atvinnumissir. Það eru eðlileg viðbrögð
við þær aðstæður að syrgja og líða illa i
lengri eða skemmri tima. Sorgin er
sársaukafullur kveðjutimi sem fara
verður i gegnum til þess að lifið geti
haldið áfram á óskertum kröftum.
Að vera niðurdreginn við og við
þekkja allir og sýna rannsóknir að fólk
reynir ýmsar leiðir til að bæta liðan sina.
Ein aðferð er að bæta við sig vinnu eða
áhugamálum til að leiða hugann að
öðru, önnur að „gera eitthvað fyrir
sjálfan sig”, t.d. að kaupa ný föt, breyta
um hárgreiðslu eða fara í leikhús. Enn
aðrir vilja eiga vini sína að á slíkum
stundum og leita hjálpar hjá þeim.
Þunglyndiseinkenni
Almennt má segja að um þunglyndi sé
að ræða þegar maður er svo niður-
dreginn að viðbrögð hans og dómgreind
eru greinilega frábrugðin þvi sem hann á
vanda til.
Þunglyndi hefur lamandi áhrif. Af
útlitsbreytingum má nefna svipbrigða-
leysi í andliti, lífsneisti slokknar í
augum, líkami stífnar og röddin er lág og
blæbrigðalitil. öll líkamsstarfsemi
hægist og það sem annars hefur veitt
ánægju, svo sem góður matur, kynlif
eða samneyti við annað fólk, hefJf
engan tilgang lengur. Þráhyggja er al-
geng. það er að hugsa stöðugt um það
sama, yfirleitt áhyggjur sem eru íþyngd-
ar sjálfsásökunum.
Almennt má segja að
um þunglyndi sé að
ræða þegar maður er
svo niðurdreginn að
viðbrögð hans og
dómgreind eru greini-
lega frábrugðin því
sem hann á vanda til.
Maður sem er haldinn þunglyndi á i
erfiðleikum meðeinbeitingu og minni og
getur því illa leyst af hendi ýmis dagleg
störf. Þá er einnig algengt að svefn
breytist, þannig að vaknað er mjög
snemma morguns og vanlíðan er mest
fram eftir degi, en dregur aðeins úr
seinni hluta dags og á kvöldin.
Svefn virðist oft veita litla hvíld en
þróttleysi og þreyta er yfirþyrmandi. Sá
þunglyndi hefur litla trú á að nokkuð
geti breyst til hins betra og virðist leggja
allt sem er sagt út á versta veg.
Varðandi öll þau einkenni, sem hér
eru talin, gildir að þau geta verið af mjög
mismunandi styrkleika, allt frá
skammtíma erfiðleikum, þar sem
einungis hluti þessara einkenna sýnir
sig, og til mjög alvarlegs þunglyndis, sem
lamar einstaklinginn gersamlega og þar
sem sjálfsmorðshætta er mikil. í siðast
nefndu tilvikunum þarf oft innlögn á
sjúkrastofnun.
Hverjir verða þunglyndir?
Til að líða vel þarf maðurinn að hafa
stöðugleika, öryggi og traust á sjálfum
sér.
Alexander Lowen, bandariskur sér-
fræðingur í meðferð þunglyndis, telur að
þann þunglynda skorti þennan innri
stöðugleika og sjálfstraust. 1 stað þess
treystir hann um of á að aðrir uppfylli
þarfir hans fyrir ást og viðurkenningu.
Þannig verði hann mjög háður öðrum
og viðkvæmur fyrir vonbrigðum á öllum
sviðum. Þegar stuðningur bregst verður
hann þunglyndur. Hægt er að rekja
orsakir til áfalla i barnæsku. Barnið
hefur af einhverjum ástæðum átt i þeirri
erfiðu lífsreynslu að missa eða ná ekki
nánum tilfinningalegum tengslum við
foreldra sína. Þess vegna getur það ekki
öðlast öryggi og sjálfstraust heldur fyllist
vonleysi yfir því að fá ekki þörfum
sinum fullnægt. Þar sem barnið í
frumbernsku er algjörlega háð for-
eldrum finnur það til vanmáttar síns.
Á fullorðinsárum reynir maðurinn
svo að verja sig fyrir áföllum og bæta sér
missinn með því að stefna að framtið þar
sem hann hefur sjálfur stjórn og völd.
Mikil sálarorka getur farið i hugmyndir
og plön um framtíðina en þessar ráða-
gerðir eru oft óraunhæfar miðað við
aðstæður og væntingar á aðra. Þegar í
Ijós kemur að ómögulegt er að fram-
kvæma þær þá þyrmir aftur yfir.
Maðurinn finnur aftur til einangrunar
sinnar og þunglyndis.
Meðferð
Þegar leitað er aðstoðar vegna
þunglyndis er rétt að spyrja:
1. Hvað hefur komið þunglyndi af stað
nú?
2. Hvað gerðist áður í lífi þessa manns
sem gerði hann næman fyrir þung-
lyndi?
3. Hver eru tengslin milli þess sem
áður gerðist og nú?
Meðferð er tviþætt. Fyrsta skrefið er að
minnka vanlíðan þess þunglynda og
hjálpa honum til að fá lífskraftinn aftur.
Læknar nota fyrst og fremst lyf af
ýmsum gerðum sem fram hafa komið á
síðustu áratugum. Þegar um alvarlegri
tilfelli er að ræða er á einstöku stofn-
unum gefið rafmagnssjokk. Sálfræðing-
ar hafa einnig ýmsar meðferðarleiðir á
þessu fyrsta stigi, sem eiga það
sameiginlegt að koma þeim þunglynda i
gang aftur. t.d. með þvi að skipuleggja
verkefni sem miðuð eru við getu
mannsins á hverjum tíma. Á þessu
fyrsta stigi þarf einnig oft að gera ýmsar
ráðstafanir vegna aðstæðna, atvinnu,
húsnæðis og fjölskyldu.
Þegar þunglyndinu fer að létta og
kraftarnir koma aftur er næsta skref að
leiða i Ijós hvað veldur. Það er nauðsyn-
legt að maðurinn öðlist skilning á því af
hverju hann hegðar sér eins og hann
gerir, í tengslum við atburði fortíðar-
innar, og einnig hvernig hann á i
framtiðinni að takast á við þennan
vanda, en til þess þarf hann að læra
nýjar aðferðir til að takast á við lífið.
Þó ekki sé farið i þennan hluta
meðferðarinnar er hægt að ná árangri en
þá er líklegt að þeir kraftar sem losna úr
viðjum verði nýttir til að halda áfram i
gamla hegðunarmunstrinu og áður en
við er litið er komið að næsta
þunglyndistímabili.
10 Vikan 6. tbl