Vikan - 05.02.1981, Page 13
Inni á Manhattan aést ekki mikið af
börnum. En á útimarkaði eru þau
með í ferðum og setja sinn
afslappaða, fjölskyldulega blœ á
„samkomurnar".
►
Blússur eins og Grace prinsessa
gangur í og peysur eins og Bo Derek
notar, sjampó eins og Diana Ross
< notar og ....
◄
Hann var kátur þessi surtur og
þeegilegur við viðskiptavinina.
Lengst tíl hægri er „gjaldkerinn"
hans, sennilega litíl döttír, og hún er
öfeimin að telja dollarana frammi
fyrir öllum, þött fölki sé tekinn vari
fyrir að láta sjá að það eigi nokkum
pening.
Vikan kynnir stórborgir
Hvítir leggja sitt af mörítum
En hinn eðli hvíti stofn hefur ekki
látið sitt eftir liggja í glæpunum. Gjarn-
an er hann þó í þægilegri stjórnunar-
aðstöðu og lætur ræflalýðinn mislita
vinna skítverkin fyrir sig. Svo eru líka
eiturlyfjaneytendurnir, sem skarta
öllum litum mannkynsins og fremja sín
afbrot af margvíslegu tagi, bæði til að
afla sér fjár til að geta haldið áfram að
komast yfir gúmúlaðið og einnig af
handahófi í þvi óráðsæði sem á þá
rennur undir áhrifum eiturefnanna. Enn
aðrir finna upp lymskulegt skálkaskjól
og meira að segja spaugilegt: Ekki er
ýkja langt síðan komst upp um skipulagt
símavændi sem rekið var af starfs-
mönnum líkhúss í borginni. Þjónustu-
simi fyrirtækisins var sími líkhússins.
Sem sagt: ef einhvern vantaði lúxus-
mellu var ekki annað að gera en hringja
i líkhúsið og þá fékk maður verslunar-
vöruna heimsenda. Líkhús þótti svo
ólíklegt í þessu sambandi að starfsmenn-
irnir komust upp með þetta svo árum
skipti áður en yfirvöldin duttu ofan á
miðstöðina af tilviljun.
Snýr lítt að ferðafólki
Venjulegur gestur í New York verður
ekki var við þetta — ekki beinlínis.
Hann verður var við strangt eftirlit í
búðum og hann verður var við þjófa-
varnarkerfi í húsum, og hann er varaður
við ýmsum hlutum, svo sem að fara ekki
í ákveðin hverfi nema með sérstökum
viðbúnaði, vera ekki á ákveðnum
stöðum eftir ákveðinn tima að kvöldi.
6. tbl. Vikan 13