Vikan - 05.02.1981, Síða 20
„Ég heyrði það," sagði ég.
Klaus leit á Harry.
„Drífðu í þessu, Harry: billinn.
einkennisbúningarnir, logsuðutækið og
kassarnir. Ég vil að aðgerðir hefjist á
laugardaginn eftir viku, klukkan þrjú að
morgni. Þú ræðir öll nauðsynleg smá-
atriði við herra Lucas annað kvöld.
Hvar ætlarðu að hitta hann?"
Harry klóraði sér i skegginu meðan
liann hugsaði.
„Klukkan niu annað kvöld i Golden
Rose mótelinu við hraðbrautina til
Frisco." Hann leit á mig. „Þekkirðu
það?”
„Ég finn það."
„Spurðu um kofa sex." Hann glotti
undirfurðulega. „Þeir þekkja mig þar.”
Hann stóð upp og fór út.
„Ertu ánægður?" spurði ég Klaus.
„Ef Harry hefur ekkert við þetta að
athuga færðu greiðsluna eins og um var
samið.” Hann dró þykkt umslag upp úr
skúffu. Svo opnaði hann umslagið og
tók upp skuldabréfin. „Tvö hundruðog
fimmtíu þúsund dollarar. herra Lucas.
Skoðaðu þau." Hann ýtti bréfunum yfir
skrifborðið. „Þau ættu að verða þér
hvatning."
Ég tók upp bréfin. Upphæðin á þeim
öllum var tultugu og fimm þúsund
dollarar. Tiu stykki. margir virtust hafa
handfjatlað þau. Ég setti þau aftur á
skrifborðiðog Klaus tók þau upp.
„Þú færð þessi bréf á skrifstofuna
þina i næstu viku ef Harry getur full-
vissað mig um að það verði engin vand-
kvæði á aðgerðinni."
Ég tók upp skjalatöskuna rnina og
stóð upp.
„Engir peningar. . . . engar aðgerðir,"
sagði ég.
„Þú færð peningana ef ekkert er að.
Ég býst ekki við neinum erfiðleikum af
því að dæma sem þú segir mér. Farðu
varlega þegar þú færð bréfin. Ef þú
skyldir ákveða að fórna lífi kven-
mannsins og stinga af þá skaltu láta það
ógert.” Aftur afmyndaðist andlit hans i
grettu. „Héðan i frá verður fylgst með
þér. Ég hef heilt kerfi á mínum snærum.
ekki bara þrjá menn. Þú kemst ekki
langt ef þú reynir að stinga af og endalok
þín verða ekki skemmtileg.” Dökkgrá
augun glömpuðu. „Þeir skera af þér
hendurnar. blinda þig og skera úr þér
tunguna. Svo verðurðu skilinn eftir og
látið blæða út. Svo þú skalt ekki reyna
nein brögð, herra Lucas."
Þá vissi ég að hann var fullkomlega
geðveikur.
„Ég heyri til þín," sagði ég og yfirgaf
liann. Éggekk fram i anddyrið.
Benny stóð við útidyrnar og urraði að
mér.
„Við sjáumst, skepna,” sagði hann.
Ég fór út. Joe sat í bílnum sínum og
lék á munnhörpuna.
Um leið og ég settist við hlið hans i
framsætinu hugsaði ég þakklátur um
það að Klaus væri ekki jafnsnjall og Joe
sagði hann vera. Ég tók áhættu. Hvorki
Klaus, Harry né Joe höfðu hugmynd um
að ég væri með segulbandstæki byggt
inn i lokið á skjalatöskunni minni og að
nú hefði ég segulbandsupptöku af hverju
orði þeirra.
Joe var þögull meðan hann ók að
hraðbrautinni. Ég leit á hann og sá svart
og sveitt andlitið í skímunni frá mæla-
borðinu. Hann leit út eins og ég hafði
vonast eftir, likt og maður t þungum
þönkum. Þegar við vorum komnir á
hraðbrautina og á leiðinni til Sharnville
sagði ég: „Foringinn þinn er ánægður,
Joe. Við brjótumst inn i bankann klukk-
an þrjú næsta laugardagsmorgun.”
Hann rumdi, áhyggjusvipurinn á and-
liti hans jókst en hann sagði ekkert.
Það var ekki fyrr en við nálguðumst
húsið sem ég bjó í að ég sagði: „Komdu
inn og fáðu þér sjúss með mér, Joe, eða
áttu stefnumót?”
Hann starði andartak á mig. Ég sá
hvítuna i augum hans.
„Ertu að bjóða mér að drekka með
þér, herra Lucas?” Það var undrun í
rödd hans.
„Sjáðu nú til, Joe. Við erum allir i
þessu máli. Með heppni verðum við
ríkir.” Ég lagði áherslu á orðið heppni.
„Hættu þessari þvælu, ekki kalla mig
herra .. . kallaðu mig Larry.”
Hann staðnæmdist fyrir utan húsið
mitt.
„Harry hefur aldrei boðið mér að
drekka með sér,” tautaði hann.
„Svona, komdu nú, Joe.” Ég fór út úr
bílnum. „Ekki láta eins og einhver hvít-
ingjasleikja.”
Ég gekk yfir gangstéttina og bað þess
að hann elti mig. Þegar ég var i þann
mund að ýta upp glerhurðinni í and-
dyrinu slóst hann í för með mér. Við
fórum upp I lyftunnk Ég aflæsti útidyr-
unum og steig til hliðar svo hann kæmist
framhjá. Hann tvísté méðan ég lokaði
og læsti.
„Viskí og kók, er það í lagi?” sagði ég
og gekk yfir að vínskápnum.
„Flott, maður.” Hann litaðist um i
herberginu og strauk svita af andlitinu
með handarbakinu. „Ég næ þessu ekki.
Til hvers viltu endilega gefa mér sjúss?”
„Vertu ekki með þrælslund, Joe,”
sagði ég óþolinmóður. „Þú ert maður
eins og ég og við eigum að vinna saman.
Sestu niður, í almáttugs bænum!”
Hann tuldraði eitthvað við sjálfan sig,
settist í hægindastól og hvíldi olnbogana
á hnjánum.
Ég blandaði handa honum sjúss sem
hefði getað rotað múlasna. Ég gætti þess
að snúa við honum baki, hellti kóki í glas
Sá hlœr
best...
handa sjálfum mér en sleppti viskíinu.
Ég rétti honum glasið hans og settist
gegnt honum.
Ég sagði honum kæruleysislega frá
því hvernig við myndum brjótast inn i
bankann, sagði honum frá öllum tækj-
unum og hvernig Harry væri að útvega
bíl til að komast undan í. Ég fræddi
hann á öllum smáatriðum og hann hall-
aði sér fram og hlustaði af athygli
meðan hann saup sjússinn sinn.
„Þannig er það, Joe,” lauk ég máli
mínu og tók eftir því að glasið hans var
næstum orðið tómt. „Ef heppnin er með
verðurðu kannski ríkur næsta mánu-
dagsmorgun.”
Hann pírði augun.
„Sagði ég þér ekki að ég er aldrei
heppinn, maður? Ég er búinn að vera að
hugsa um það sem þú sagðir. Ég er ekki
einu sinni viss um Harry lengur.”
„Svona, láttu ekki svona, Joe. Þú
sagðist geta treyst Harry.”
„Já." Hann lauk við sjússinn og gretti
sig. „Við Harry vorum i sama klefa í
þrjú ár. Það er skrambi langur tími.
Okkur samdi vel. Hann kom mér í sam-
band við foringjann.”
„Fyrir hvað sat hann inni, Joe?”
„Harry? Kallinn pabbi hans var einn
besti skuldabréfafalsari sem uppi hefur
verið. Harry sá um skuldabréfin fyrir
hann. Harry sagði mér að kallinn hefði
ekki verið nógu gætinn og að þeir hefðu
nappað hann og Harry. Harry fékk sex
ár.”
Skuldabréfafalsari!
Það kom heim og saman.
Ég skildi hvers vegna Klaus hafði
samþykkt að borga mér með skuldabréf-
um. Nú var ég þess fullviss að faðir
Harrys hefði falsað bréfin!
Eg leit á Joe og sá að vínið var farið
að hafa sín áhrif. Nú var hann orðinn
sljólegur til augnanna og strauk sér
óþarflega oft um munninn með handar-
bakinu.
„Mér líst ágætlega á Harry,” sagði ég,
„en ég er hræddur við Benny. Ég hef
það á tilfinningunni að hann drepi mig
um leið og peningarnir eru komnir i bíl-
inn. Hann gæti líka drepið ykkur
Harry.”
Joe hristi höfuðið eins og hann væri
að reyna að hugsa skýrar. Hann starði á
mig.
„Já, maður, ég fíla Benny ekki neitt.”
„Áttu byssu, Joe?”
„Auðvitað á ég byssu.”
NolVöll
IÝSGÖTU I
SÍMI-10450
PÓSTHÓLF-1071
REYKJAVÍK
ICELAND.
MARK
10
Sjónvarps- og
útvarpsloftnet
fyrir skip og báta,
með og
án magnara. —
Sænsk
gæðavara.
PearlcorderSD
Pearlcordcr, smásnældu-upptökutækið
frá Olympus. er sannkallað undratæki og
vitnisburður frábærrar tækni.
Model „SD" getur
tekið upp ýmist 60
minútur (tíðnisvið
300—7.000 Hz) eða
upp í 120 minútur
(tíðnisvið 300—
4.000 Hz) og er þvi
sérlega hentugt til að
taka upp löng sam-
töl, ræður, fyrir-
lestra, umræður, o.fl.
Fjölda aukahluta er hægt að fá með tækinij
Allir möguleikar fyrir hendi.
Komið og skoðið Pearlcorderinn i verslun
okkar, og þér munið sannfærast um gæði
tækisinsog notagildi.
Hirsthmann
LJtvarps -og
sjónvarpsloftnet fyrir
litsjónvarpstæki,
maénarakerfi oé
tilheyrandi'
loftnetscfni.
Ódýr loftnet
og gód.
Aratuga
reynsla.
Heildsala-
Smasala.
Sendum l
póstkröfu.
20 Vikatt 6. tbl.