Vikan - 05.02.1981, Síða 21
Framhaldssaga
OLUTION
»***t r»*«k
INNOXA
„Ég vildi að ég ætti það líka. Saman
gætum við — þú og ég — séð um Benny
ef hann ætlaði að reyna eitthvað.”
Joegapti.
„Hvað meinarðu, maður?”
„Hvorugur okkar þyrfti að hafa
áhyggjur af Benny ef ég ætti byssu. Ég
gæti fylgst með honum meðan þú gerir
þitt og þú gætir fylgst með honum
meðan ég geri mitt.”
Hann ranghvolfdi augunum meðan
hann velti þessu fyrir sér.
„En Harry myndi fylgjast með hon-
um.”
„Ég ætla að tala við Harry, Joe. Ef
við fylgjumst allir þrír með Benny hefur
hann enga möguleika á að svíkja okk-
ur.”
Hann hugsaði lengur, kinkaði svo
kolli.
„Já, það er rétt.” Hann stakk hend-
inni í rassvasann og dró upp .38 lög-
reglubyssu. „Taktu þessa, maður. Ég á
aðra heima. Já, ef við erum þrír um
Benny getum við séð um hann.”
Ég tók við byssunni og trúði naumast
að þetta væri svona auðvelt.
„Ennþá eitt, Joe: Ekki treysta Harry í
blindni. Þetta eru miklir peningar.
Harry gæti kálað Benny. Hann gæti líka
kálað okkur tveimur.”
Joe ranghvolfdi aftur augunum en
hristi svo höfuðið.
„Égfila þaðekki... ekki Harry.”
„Þetta er mikil fúlga.”
Hann hugleiddi það og kinkaði svo
kolli.
„Já, það er það sannarlega.”
„Sjáðu nú til, Joe, þú verður að gæta
þín sjálfur. Þrjár milljónir dollara! Þú
verður að vera viss um að fá þinn hlut.
Ég þarf ekki að hafa neinar áhyggjur.
Eins og ég sagði þér var ég búinn að taka
minn skerf fyrirfram en þú þarft að hafa
áhyggjur af Benny og Harry. Ég fylgist
með þér og þú með mér. Ekki segja neitt
við Harry. Maður veit aldrei.”
„Einmitt.” Hann hristi höfuðið.
„Hver veit svo sem nokkuð? Veistu
nokkuð, maður? Ég er búinn að drekka
of mikið.” Hann var reikull á fótunum
þegar hann stóð upp. „Ég ætla heim.”
„Viltu að ég aki þér, Joe?”
Hann slagaði fram að dyrum, stað-
næmdist og leit á mig.
„Mundirðu gera það?”
„Við erum samstarfsmenn, Joe. Ég
kæri mig ekki um að einhver lögga taki
þig fastan. Ég skal keyra þig heim.”
„Takk, maður. Sjálfsagt var sjúss-
inn ...”
Ég hjálpaði honum að lyftunni og
niður að bílnum.
„Hvert viltu fara?” spurði ég þegar
við vorum sestir inn í bílinn.
„Beint áfram. Tíundu til hægri.
Númer 45,” tautaði hann og höfuðið féll
niður á bringu.
Eftir tíu mínútna akstur staðnæmdist
ég fyrir utan fjölbýlishús, hristi Joe og
vakti hann.
„Við erum komnir, Joe.”
Hann strauk á mér handlegginn.
„Þú ert sannur vinur, maður,” tuldr-
aði hann. „Taktu bílinn. Ég sæki hann á
morgun. Maður lifandi! Þetta var sko
sjúss I lagi!”
Þegar hann gerði sig líklegan til að
fara út greip ég í handlegg hans.
„Joe ... hvar er Glenda?”
Hann horfði á mig drukknum augum.
„En hjá foringjanum, maður. Hvar
hélstu? 1 notalegheitunum með Benny
andandi á hálsinn á sér.”
Hann slagaði út úr bílnum og yfir
gangstéttina. Ég horfði á hann opna úti-
dyrnar og hverfa. Svo dró ég djúpt að
mér andann.
Mér virtist sem spilin ætluðu að fær-
ast yfir á mína hönd.
„Bíllinn verður tilbúinn i næstu
viku,” sagði Harry. „Ég er búinn að
bjarga einkennisbúningunum.”
Við sátum I kofa númer sex i Golden
Rose mótelinu. Herbergið var þægilega
búið húsgögnum, með hjónarúm við
vegginn fjærst dyrunum, fjóra hæginda-
stóla, sjónvarp og vínskáp. Við vorum
báðir með viskísjússa og sátum hvor
gegnt öðrum.
„Ég sæki bílinn um miðnættið til
Frisco,” hélt Harry áfram. „Það er ekk-
ert mál. Ég er með tvo náunga sem
verða verðirnir.” Framh. í næsta blaði.
FJÖLSKYLDA BÖLUMORÐINGJANS
Solution 41, sem oft hefur verið nefndur „Bólumorðinginn", tyrir þann eiginleika
að ,,drepa” bólur.
Solution 41 áJíka góða ættingja, sem eru allar vörur frá Innoxa merktar 41. Innoxa
41 vörurnar eru sérstakiega gerðar fyrir táninga og aðra þá sem hafa mjögjeita húð
og bólótta.
Innoxa 41 eru sótthreinsandi vörur.
Skin shampoo 41
Clompexion milk 41
Medicated soap 41
Moisturistng milk 41
Ante acne cream 41
Solution 41
Face mask 41
Foundation 41
Cover Stick 41
Hair shampoo 41
Spray deodorant 41
INNOXA
medicated
soap
tínted foundatioo
• THE MHrfCT MATT UAKÍ-Uf
. ÖRÉASY OtffiCWSKiNS i
tnoisturislng milk
complííjc/oö miík
amtHáajadruft
proteín coodtriootng
hair shampoo
skin shampoo
INNOXA
Innoxa 41 er framleitt fyrir
alla sem vilja stemma stigu
við hinu alkunna húð-
yandamáli.
Heildsölubirgðir
KRISTJÁNSSON HF.
Sími: 12800, 14878.
Leitið nánari upplýsinga í snyrtivöruverslunum og aþötékum.
6. tbl. Vikan 21