Vikan - 05.02.1981, Side 37
r
Eiríkur á Brúnum og Paradísarheimt
Frœgasta bygging monnóna er án afa Tabemade i Sah Laka City.
Upprunalega er þetta hof reist til þakkargjörðar fyrir mávager sem barst
þarna langt inn i land og bjargaði uppskeru frumherjanna frá algerri eyði-
leggingu af völdum engisprettufaraldurs árið 1848. Tabernacle er víðfrœgt
fyrir frábœran hljómburð og hvolfþakið er enn hið stærsta í heimi. — Á
svarthvítu myndinni er verið að reisa húsið.
ískyggilegt orð
„Ég var í staðnum Spanish Fork. sem
að er álíka stór og Reykjavík. og í
honum eru allir mormónar, nema svo
sem tíundi partur fólks, sem eru
Presbyterianar, Metódistar, Jósepítar, 2
flokkar Lútherana, og þeir kristnu
bræður, er sig kalla svo, en þessi flokkar
eru mannfáir. Þennan tíma, sem að ég
var í Utah, sá ég engin hryðjuverk og
heyrði ekki talað um þau. nema tvisvar
kom það fyrir að kvenmenn köstuðu út
þörnum og hefur það skeð, þæði hér og
annars staðar í heiminum, annað komst
upp, og var faðir og móðir dæmd í langt
fangelsi, en hitt komst ekki upp. Flest-
allir mormónar er ég kynntist við, eru
skikkanlegir og vænir menn, og
viðkynningargóðir, en var þar óhætt að
vera á gangi í björtu og dimmu, utan-
bæjar og innan, og þó að maður væri
þúinn að segja sig úr þeirra trúar-
brögðum. En fyrir svo sem 10-20 árum
var það í mæli, að þeir hafi ekki þurft að
þinda um skeinu, sem þá köstuðu þeirra
trú, og sú athöfn var kölluð
blóðforsonining, og er það nokkuð
iskyggilegt orð. En síðan að fleiri trúar-
flokkar komu þangað, hefur ekkert á þvi
borið, og ekki vissi ég til að nein gömul
kona væri deydd þar, þó það væri sagt
hér. En sumstaðar, þegar að yngri
konan kom, stukku þær eldri i burtu,
eða þá í annað hús, þvi þær gátu ekki
verið saman fyrir vonsku og hatri, og
sögðu sumar að þær gæti ekki horft á,
þegar að maðurinn sinn færi niður undir
hjá hinni konunni, en hjá stöku
mönnum fór það þó allvel og frið-
samlega. þó að þeir ætti 2 og 3 konur;
það er ekki meira en sem svarar þriðji
partur af mormónum, sem eiga fleiri en
eina konu; sumir menn trúa fleirkvæni
ekki og sumra konur forþanna það, og
sumir fá enga. Það var og er þvi nær
almenn trú hjá þeim, að
þeir, sem ættu flestar konur, fengi mesta
upphefð í guðsríki. og byggja sitt fleir-
kvæni mest á Salómon, Davíð.
Abraham og Jakob; og Þórði Diðriks-
syni tókst að láta mig trúa því um tíma,
og það er það eina sem ég tók feil á I bók
minni, útgefinni 1882. og sé ég eftir að
ég hélt með því i þókinni.”
Síðar í ritinu segir hann um fjöl-
kvænið:
„Á meðan ég var í Utah var fjöldi af
fleirkvænismönnum settir I fangelsi.
allir, sem þeir náðu til að handsama, en
þeir voru mjög varir um sig og sumir
flúðu í önnur lönd og voru þar lengi og
voru sumar ungu konurnar óánægðar
yfir því. Það voru 7 Islendingar, sem
áttu fleiri en eina konu, en engan var
þúið að setja í fangelsi af þeim nema
Þórð Diðriksson, og varðist hann þeim
þó lengi, en stjórnarmenn voru útséðir
og slægir að veiða þændur, og fengu stór
laun fyrir hvern mann, er þeir náðu.
Þegar að þeir voru látnir inn í
fangelsið, var rakað af þeim allt skegg og
hár; allvel hafði farið um þá í
fangelsinu, en er þeir enduðu fangelsið,
urðu þeir allir að sverja eið að koma
aldrei framar nærri nema fyrstu konunni.
þó að hún væri afgömul en hinar ungar;
en i mæli var það, að það hafi dottið
skörð í þann eið hjá sumum og komið
nærri þeim yngri.”
Annað var þó verra
Ekki var þó fjölkvænið það atriði, sem
vinslitum olli milli Eiríks og mormóna.
heldur það sem Eiríkur kallaði „Adams
trúarvilluna”, en það var þegar postular
mormóna ákváðu að taka upp trúnað á
Adam sáluga sem væri hann guð. Það
var hiti sem Eiríkur gat ekki kyngt.
Sömuleiðis voru æðstu prestar mormóna
með einhvers konar innsta hring sem
iðkaði laumuathafnir I leynihúsi. ein-
hvers konar launhelgar. Ekki kemur
fram í þessari Sögu Eiríks á Brúnum
hvernig þeim hefur verið háttað, en þó
virðist hann hafa haft veður af því og
haft skömm á: „Musteri þeirra og vígslu-
hús eru ekki annað en háskólar, þar sem
mönnum gefst kostur á að læra guðlast
og afguðadýrkun og landráð, sem er að
sverja á móti sínum landstjórum. í
vígsluhúsunum troða menn undir
fótunum allt heilagt, göfugt og hreint...
Verst og skaðlegast er þó af öllu, að þeir
sverja þessa mörgu og heimskulegu eiða
og með þeim bjánalegu fingraflækjum í
þessum vigsluhúsum . . . Eða hvenær
hefur guð skipað að skera menn á háls,
slíta úr þeim tunguna, skera þá á
kviðinn og taka innýflin úr þeim (þetta
eru launin, ef þeir segja frá nokkru, er í
þessu óheilaga húsi gjörist).”
Samt mun Eiríkur ekki hafa verið
óðfús að stökkva frá Utah, því þar var
lífvænlegt og veðursælt:
Besta uppskeruland í Banda-
ríkjunum
„Lítið eitt vil ég tala frekar um Utah.
Og byrjar þá fyrst á Brigham. Það var í
almæli um Ameríku. að hann hafi verið
einhver hinn mesti stjórnfræðingur í
öllum veraldlegum framförum, og
engum mundi hafa gengið betur en
honum að uppfæra mormóna til eflingar
og auðsuppsprettu í eyðimörkinni, og
allir segja að Utah beri hans fyrir-
skipuðu menjar á meðan veröld stendur,
til mikillar uppbyggingar, og hann hafði
verið ráðhollur og vænn við þá, er
hlýddu honum, en strangur og miskunn-
arlaus við þá, er ekki vildu trúa honum
og hlýða. Utah er nú eitt besta uppskeru-
pláss I Bandarikjunum. Það er óhætt að
fullyrða það, að menn græða þar á tá og
fingri, hvaða stands eða stöðu sem eru
og nokkur ráðdeild er í. Margir landeignar-
bændur þar leggja fyrir í banka l til 2
þúsund dollara um árið. Þar er fjöldi
manna, sem á í kringum 10 þúsundir
sauðfjár. Ég og margir fleiri íslendingar
klipptum fyrir einn ógiftan enskan
mann, Elliot. 13 þúsundir sauða og að
auki 260 hrúta afbragðs fallega, allir
hvítir; hann sagðist mundi fá fyrir sína
ull 50 þúsundir dollara. hátt upp í 200
þúsund króna. Þó eiga sumir fleira fé.
allt að 20 þús. Þar þvær enginn sína ull.
Þar er ekkert pund látið í búðir, öll seld í
faktorí, fyrir 'peninga út í hönd. Þar er
hún þvegin, kembd, spunnin og ofin. Þar
er engin ær skorin, allar deyja sjálfar út
af í elli, upp á, fjölgunina, en sauðir
hundruðum saman sendir á vögnum dl
stórstaðanna, á 3 dollara hver.
I Utah er allt af yndisblíðu veður og
sjaldan vetur, nema 2 mánuði. janúar og
febrúar. Nautpeningur gengur þar úti.
máske fleygt rudda í sumt, en mjög
margt er horað og holdlaust á vorin.
Margir eiga frá 5 til 100 og líka margir
frá 100 til 500 nautkindur. Þarerenginn
kálfur skorinn. Þeir ganga með kúnum
eins og dilkar, nema fáar kýr heima að
mjólka. Mér þótti plássið þar víðahvar
skemmtilegt og mér leiddist þar aldrei.
Þaðan fór samt fjöldi mormóna suður til
Mexikó og líka norður til Kanada."
En þrátt fyrir þetta var ekki yndi að
festa vestur þar. Atferli og kenningar
æðstu presta mormóna voru sá
höggormur sem gerði Edensgarð óbyggi-
legan þessum einlæga og sjálfum sér
samkvæma bónda úr Rangárþingi.
Hann hélt heim til lslands og var trúr
því sem honum þótti best úr lúthersku
og mormónsku, eignaðist konu sem var
47 árum yngri en hann og lést í Reykja-
vik árið 1900. Þá hefur hann vonandi
heimtsína paradís.
6. tbl. Vikan 37