Vikan - 05.02.1981, Side 48
Myndlist
okkur vísbendingu um þennan skóla.
Við höfðum ekkert fyrir því að sækja
um skólavist. Þess í stað héldum við út i
óvissuna. Tókum okkur far með
Gullfossi i lest og komum til Gauta-
borgar að vorlagi. Ég fékk ekki vinnu í
mínu fagi, vegna atvinnuleysis hjá
prentmyndasmiðum, en við fengum
vinnu í grjótmulningsverksmiðju um
sumarið. Síðan heyri ég illa.
Við sóttum um skólavist í Valland
konstskola. 1 september fengum við bréf
þar sem okkur var heitið skólavist. Við
þökkuðum okkar sæla, en við vorum
meðal 10 umsækjenda sem skólavist
hlutu af 500 umsækjendum. Arthúr
innritaðist í málaradeild, en ég í grafík-
deild. Við vorum báðir ráðnir aðstoðar-
kennarar. Sú ráðning réðst þó ekki af
snilli okkar, heldur af -hinu, að skóla-
stjórinn, Thure Anhoff. vissi að við
fengjum ekki námslán fyrr en á seinni
hluta námstímans. Þess vegna réð hann
okkur aðstoðarkennara, á launum. Við
Valland var ég svo í 5 ár.
Hefðir þú viljað vera lengur?
Satt að segja bauðst mér ýmislegt í
Svíþjóð, meðal annars kennarastaða, en
ég gat ekki hugsað mér að setjast þar að.
Ég vildi fara heim.
Hvað tók við heima?
Ráðinn kennari til
Akureyrar
Ég byrjaði sem handlangari í bygginga-
vinnu í Breiðholti. En jafnframt hafði ég
samband við Hörð Ágústsson, þáver-
andi skólastjóra Handíða- og myndlista-
skólans, og falaðist eftir kennarastarfi.
Hann kvað enga stöðu lausa við HM, en
hringdi til min nokkru seinna og kvað
áhugamenn um myndlist á Akureyri
vanta kennara. Og þar með var það
ráðið.
Síðan ertu Akureyringur?
Já, síðan hef ég búið á Akureyri.
bráðum í tíu ár. Á ýmsu hefur gengið,
sem ég ætla ekki að tíunda hér, en ég
þótti svo háskalegur kommi að ástæða
þótti til að vara við mér í leiðara eins
Akureyrarblaðsins. Ég kenndi ekki lengi
myndlist á Akureyri, en fór þess i stað að
vinna við uppskipun, í slippnum og
Ofnasmiðjunni.
Satt að segja var ég
mjög öfgafullur
Og þóttir harðsnúinn í pólitíkinni?
Já, og var það. Satt að segja var ég
mjög öfgafullur. Maður kynntist mjög
hráum sósíalisma í Svíþjóð og var undir
áhrifum þess i mörg ár eftir heim-
komuna. Hins vegar fannst mér margt
af því sem ég gerði hér og sagði túlkað á
hinn versta veg.
Fýsir þig burt frá Akureyri?
Nei, síður en svo. Ég hef ekkert að
sækja til Reykjavíkur, þó óneitanlega
gerist þar margt á listasviðinu. En það er
þungt á metunum að hér á Akureyri
gefst mér nokkur tími til að sinna
minum áhugamálum.
Að lokum, Guðmundur. Af hverju
gerir þú myndir af fólki?
Rembrandt gerði myndir af málsmet-
andi mönnum síns tíma. Van Gogh
gerði myndir af stritandi mönnum síns
tíma. Courbert af stritandi mönnum síns
tíma og Daumiere af fagmönnum sins
tíma.
Ekki vil ég bera mig saman við þessa
snillinga, en ég vil gera myndir af
dýrlingum okkar tíma.
L3
Þessar dúkristur eru úr möppu sem Guðmundur gaf út i 100 tölusettum
og árituðum eintökum. Myndirnareru allar úr gamla innbænum á
Akureyri.
Hlíðarshús
og fleiri.
Tulinius
og Höpfner.
Hafnarstræti
33-45.
Gudmannsminde,
öðru nafni
Gamli spítal
inn.
48 Vikan 6. tbl.