Vikan


Vikan - 16.04.1981, Blaðsíða 3

Vikan - 16.04.1981, Blaðsíða 3
Hann syngur kántrí-lög frá sjávarsíðunni LS wiajv í þessari Viku 16. tbl. 43. árg. 16. apríl 1981. Verö 18. kr. ,,Ég syng alíslenska kántrí-tón- list,” sagði Hallbjörn Hjartar- son þegar hann leit inn á rit- stjórn Vikunnar fyrir skemmstu með nýbakaða plötu undir hendinni. Svo sannarlega er það íslenskt kántrí, því hvergi annars staðar í heiminum gæti hreinræktuð kántrítónlist verið sungin um örlög sjómanna og söng lóunnar sem boðar vorið. Vorstemmningin er sannar- lega viðeigandi þegar menn eru orðnir langþreyttir eftir veturinn. Hallbjörn er verslunarmaður frá Skagaströnd en hefur sungið lengi. ,,Allt frá því ég var innan við fermingu söng ég og spilaði gamanvísur á kvöld- vökum.” Hann hefur numið söng hjá ýmsum góðum mönnum og síðastliðin tvö sumur hefur hann einnig verið við enskunám á suðurströnd Englands.” Hallbjörn hefur verið með eigin búð á Skagaströnd í sex ár og var áður verslunarstjóri hjá kaupfélaginu í fimm ár. Hann verslar líka með listmuni og blóm, ,,. . . blómin bara á sumrin, því það eru erfiðar samgöngur á veturna,” segir hann. Hallbjörn sótti konuna sína, Amy, til Færeyja og hún og krakkarnir þrír eru öll hrifin af músikinni sem Hallbjörn syngur og ánægð með framtakið. Hallbjörn gefur plötuna sjálfur út og þetta er önnur platan hans. Hann hefur sannarlega í nógu að snúast, því plötuna á að kynna i sjálfri vöggu kántrí-tónlistarinnar, Bandaríkjunum, og heima á Skagaströnd er hann bíóstjóri, í kirkjukórnum og leikfélaginu, auk verslunarrekstursins. Oðruvísi skotasögur Hefurðu heyrt um Aberdeenbúann sem var að bvo gluggana á risibúðinni sinni? Hann niissti fimmtíu eyring og var svo fljótur niður stigana að hann fékk peninginn í hausinn. Tveir Aberdeenbúar veðjuðu tikalli um hvor þeirra gæti lengur verið í kafi. Báðir drukknuðu. Kona kom í kirkjugarð að heimsækja gröf eiginmannsins. ..Hvað hét hann? spurði kirkjugarðs- vörðurinn. — Angus McSporran. sagði ekkian. — Því ntiður. svaraði vörðurinn. — það er bara Jessie McSporran hér. ekki Angus McSporran. — Það er hann. sagði ekkjan. — Hann setti alltaf allt á mitt nafn. Þetta var hræðilegur vetur — þriggja mánaða stöðugir stormar. Enginn i þorpinu hafði séð McTavish í tnargar vikur svo björgunarsveit frá Rauða krossinum braust alla leið að afskekktu hreysi hans. Það var alveg grafið i fönn, allt nema skorsteinninn. — McTavish. kölluðu þeir niður strompinn. — Ertu þarna? — Hvað var það? var svarið. — Rauði krossinn. kölluðu þeir. — Burtu. kallaði McTavish. — ég kaupi ekki merki. Aðdáendur Celtic rugluðu öllu kerfi flugfélaganna þegar þeir voru á leið heim eftir Evrópubikarmeistaramót í Mílanó. Gripið var til þess ráðs að koma mönnum í vélarnar eftir því í hvað röð þeir komu á flugvöllinn. Einn fannst sof- andi á flugstöðinni og hann var borinn um borð i eina af fyrstu vélunum. Hann varð ekki eins þakklátur og menn ætluðu þegar hann vaknaði við það að vélin hringsólaði yfir Glasgow. Hann hafði nefnilega ekið alla leið til Milanó á bílnum sínum. Óánægður launþegi: Hér hef ég verið i fimm ár og unnið þriggja manna starf á eins manns kaupi. Þaðer kominn tími til að ég fái kauphækkun. Vinnuveitandi: Hana skaltu fá ef þú bara segir mér hvað hinir tveir heita svo ég geti rekið þá. Maður frá Aberdeen kom auga á penny á Piccadilly. Hann hljóp út á torgið og nældi i það en varð fyrir strætisvagni í sömu andrá. Dánarorsök var skráð: Eðlileg. VIÐTÖL OG GREINAR: 4 Guinness — Bjórveldi á bökkum Liffey. Athyglisverö grein eftir Jón Baldvin Halldórsson. 10 Teiknimyndir — eldri rætur en kvikmyndir. 16 Kominn á toppinn. Grein Jónasar Kristjánssonar um Blómasalinn. 18 Unglingar og eiturlyf, Guðfinna Eydal skrifar um fjöl- skyldumál. 28 Passíusálmarnir eru ekki upplestrarljóð — þeir eru söng- textar. Viðtal við Smára Ölason um gömul lög við Passíu- sálmana og varðveislu þeirra. 60 Landakynning Vikunnar: Þýskaland. SÖGUR: 20 Eitri blandin ást — hin spennandi framhaldssaga eftir Margit Sandemo, 7. hluti. 26 Könnun geimsins — Willy Breinholst. ÝMISLEGT: 2 Margt smátt. 14 Páskaíöndur í faðmi fjölskyldunnar. — Einfalt páskaskraut. 64 Eldhús Vikunnar og Klúbbs matreiðslumeistara. Innbökuð páskakæfa. 67 Drauinar. 78 Póstur. VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Sigurður Hreiðar Hreiðarsson. Blaðanienn: Anna Qlafsdóttir Björnsson, Borghildur Anna Jónsdóttir, Jón Ásgeir Sigurðsson, Þórey Einarsdóttir. Útlitsteiknari Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Ragnar Th. Sigurðsson. RITSTJÓRN í SIÐUMÚLA 23, sími 27022. AUGLÝSINGAR: Birna Kristjánsdóttir, sími 85320. AFGREIÐSLA OG DREIFING i Þverholti 11, simi 27022. Pósthólf 533. Verð i lausasölu 18,00 nýkr. Áskriftarverð 60,00 nýkr. á mánuði, 180,00 nýkr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega eða 360,00 nýkr. fyrir 26 blöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram, gjalddagar nóvember, febrúar, mai og ágúst. Áskrift i Reykjavík og Kópavogi greiðist mánaðarlega. Um málefni neytenda er fjallað í samráði við Neytendasamtökin. Forsíða Egg og ungar eru veraldleg tákn páskanna. Þetta eru áhrif frá fornum sið þegar páskarnir voru frjósemis- og fagnaðarhátið. Litlu krilin sem prýða páskaforsiðuna höfðu aðeins lifað einn sólarhring þegar Ragnar Th. tók af þeim myndina. Ungarnir eru ættaðir frá fuglakynbótabúinu á Reykjum. 16. tbl. Vikan 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.