Vikan - 16.04.1981, Blaðsíða 17
Við víkingaskipið í Blómasalnum: Framreiðslumennirnir Bjarni
Vilhjálmsson og ísleifur Jónsson og Soffía Pétursdóttir veitingastjóri.
Fyllt smálúðuflök með humarsósu og
sveppum voru á fastaseðlinum. Þau
voru of þurr. en það hvarf í skugga
hinnar frábæru sósu. Þess má líka geta,
að hvítu kartöflurnar voru lítið soðnar
og þess vegna hæfilega stinnar.
Hrásalatið, sem fylgdi aðalréttum
Blómasalar var að þessu sinni einfalt og
gott. Það var ekkert annað en ísberg og
tvær tómatskifur með bandariskri
„dressingu”. Hrásalöt hafa sem beturfer
sigraðá íslenskum veitingamarkaði.
Minnti á andakjöt
Bökuð lambabuffsteik i smjördeigi,
fyllt rjómasoðnum fjallagrösum og borin
fram með rauðvínssósu, olli vonbrigðum
að þessu sinni, ekki sist vegna þess að
hún hafði veriðsvofrábæráriðáður.
Réttir sem þessi eru ákaflega
viðkvæmir i matreiðslu. Það kom líka í
ljós, að lambakjötið var allt of steikt.
bragðlaust og innan í allt of mikilli deig-
húð. Satt að segja minnti það á þurra
önd, hvernig sem á því stendur.
Glóðarsteiktur turnbauti með
béarnaisesósu og rauðvínssósu var alveg
ágætur, svona eins og maður á að geta
búist við, þegar svo dýr réttur er
pantaður. Og rauðvínssósan var ágæt
tilbreytni frá hinni hefðbundnu
béarnaisesósu.
Ísar eftirréttaseðilsins voru góðir cins
og yfirleitt gerist hér á landi.
Ostabakkinn var hins vegar ekki
merkilegur. enda hráefnin ekki i lagi og
þar að auki beint úr ísskáp. Kiwi og
ferskur ananas á bakkanum björguðu
málum.
Verðið hefur lækkað
Hinn fjögurra rétta sjávarseðill
kostaði aðeins 105 krónur og eru það
góð kaup. Miðjuverð forrétta á fasta
seðli var 45 krónur, súpa 23 krónur, fisk
rétta 69 krónur, kjötrétta 107 krónur.
sæturétta 26 krónurogostsál króna.
Þriggja rétta máltið af faslaseðli með
hálfri flösku af ódýru víni, kaffi og fata
gjaldi ætti að kosta að meðaltali 195
krónur i Blómasal. Það er svipað og á
Hliðarenda og orðiðaðeins ódýrara en i
Nausti, Grilli og Holti.
Matareinkunn Blómasalar Loftleiða
var að þessu sinni átta, vínlistaeinkunn
tíu, þjónustueinkunn níu og umhverfis
einkunn sjö. Ef matareinkunnin er
margfölduð með fimm, þjónustu- og um
hverfiseinkunnirnar með tveimur. koma
út 82 stig af 100 mögulegum.
Vegin heildareinkunn Blómasalar er
þvi átta. , _
Jónas Kristjánsson I________A
16. tbl. Vikati 17