Vikan


Vikan - 16.04.1981, Blaðsíða 24

Vikan - 16.04.1981, Blaðsíða 24
Framhaldssaga brugðið skjótt við. Og nú var hun á hans valdi. Loksins mátti hann um frjálst höíuð strjúka. Arild Lange hafði verið hans stærsta yfirsjón um dagana. Hann hafði ræki lega villt á sér heimildir, og Surtur var ekki sá eini, sem farið hafði flatt á því. Enginn hafði þó orðið að liða meira en Linda Ingesvik fyrir að láta blekkjast af fagurgala hans og sannfæringarkrafti. Það gladdi hans vonda hjarta. Hann gróf upp sleggju, sem hann hafði falið í sandhrúgu. — Hvað ertu að gera? kveinaði Linda. — Ég sé ekki neitt. Hvaða dynkir eru þetta? Það hlakkaði í honum. — Ég er að brjóta niður brúna hérna megin, hrópaði hann sigri hrósandi, — svo að þú komist ekki yfir, litla óhræsið. — Nei! Þú getur ekki verið slikur óþokki. Þú stofnar líka sjálfum þér í hættu, þú veist ekki, hvaðer hér undir. — Víst veit ég það. Surtur gerir aldrei neitt að óathuguðu máli. Og óþokki er hann ekki. Þetta er aðeins sjálfsvörn. Allt saman útreiknað og þaulhugsað. Þannig vinnur Surtur, og þess vegna er hann það, sem hann er. Hann talaði um sjálfan sig I þriðju persónu, eins og síngjarnir menn gera oft. — Ég hef notað hverja mínútu þessa daga hér við Mývatn, ferðast um og kannað landið, beðið og skipulagt, hróp- aði hann hlakkandi. — Ég fann þennan stað og skipulagði þennan litla lystitúr okkar upp á mínútu. Duftið, sem þú fékkst framan i þig, er pipar blandaður fínmöluðum hraunsalla. Því pipar veldur skjótum óþægindum, sem hverfa fljótt, en þannig er það ekki með hraun- sallann. Hann nuggast og nýst og ertir augnhimnuna. Er þaðekki notalegt? — í guðanna bænum . . . — Reyndu ekki að hræra mig til meðaumkunar, sagði hann hryssings- lega. — Hvers lags textíllistakona ertu eiginlega? Trúðirðu virkilega þessari lygasögu um blágræna litinn? Það var sannarlega ekki erfitt að narra þig. Svona! Nú er útséð um, að þú komist til baka. Og reyndu bara að halda áfrant yfir brúna. Reyndu það bara! æpti hann og hló svo illkvittnislega, að hún var EITRI BLANDIN AST ekki í vafa um, að þar biði hennar ekkert annað en bráður bani. Hún heyrði það. Smellina i sjóðbull- andi leðjunni. Surtur gróf sleggjuna niður á nýjan leik. Svo lagði hann af stað aftur til baka. Linda stóð ein eftir yfirkomin af sársauka og vonleysi í fúlum gufumekk- inum. TÍMINN leið og varð að klukkustund- um. Með erfiðismunum og ýtrustu var- færni hafði henni tekist að finna nægi- lega breiða syllu á steinbrúnni, þar sem hún vogaði að leggjast niður á magann. En þá var heldur ekki millimetra breidd út að brún hvorum megin. Og undir brúna rann sjóðheitt vatnið. Svoiitil Góð kjör Gæðavara á góðu verði Eigum til m.a. þessi glæsilegu sett í fjórum gerðum. Sendum ípóstkröfu um allt land SjÓn er SÖgU TÍkari INNBÚ HAFNARGÖTU 32, 2. HÆÐ Optfð 9-18 virka daga IfCCI AMÍU Laugardaga kl. 10-18. KtrLAVIK Sunnudaga kl. 13—18. SÍMI 92-3588 Gunnlaugur Hilmarsson læna rann einnig yfir brúna undir fótum hennar, en ef hún hvíldi á tám, komst hún hjá að brenna sig. Hún gat ekki opnað augun. Hún hafði reynt að hreinsa kornin undan augnlokunum, en það hafði aðeins gert illt verra. Ef hún aðeins renndi augun- um til, stundi hún af sársauka. — Öðru hverju hafði hún hrópað á hjálp, heyrt rödd sína drukkna í hvæsinu frá gufustrókunum og dynkjunum í sjóðbullandi hverapyttunum. Enda var þýðingarlaust að hrópa, henni var vel Ijóst. hversu langt frá alfaraleið þessi staður var. Föt hennar voru orðin gegnvot. Hárið klistraðist að höfði hennar, og brenni- steinsfýlan erti lungu hennar og olli henni ógleði. Hún minntist þess. sem hún hafði heyrt um fegrunarmátt brennisteinsins." Nú verð ég þó að minnsta kosti falleg. hugsaði hún hæðnislega. En fyrir hvern? Hún hvíldi höfuðið á höndum sér. og kvíðinn og skelfingin nöguðu hana inn- an. Hún velti fyrir sér, hversu marga daga hún gæti haldið þetta út. Var annars nokkur tilgangur með þessu lífi? Hafði hún eitthvað að lifa fyrir? Hverjum stóð ekki á sama? Eng- inn kærði sig um hana, enginn elskaði hana. Ást! Ástin var Lindu lngesvik óþekkt stærð, ogsvo; ntundi verða um eilifð. AÐ lokum gafst Linda upp á þvi að hrópa á hjálp. Hún megnaði það ekki lengur. Hún reyndi að stytta sér stundir með því að reyna að muna, hvort hún hefði einhvern tima lesið eitthvað um áhrif brennisteinsgufu á innri líffæri manna. En hún mundi ekki einu sinni, að hún hefði nokkurn tíma heyrt, hvort hún væri hættuleg eða ekki. Aftur og aftur skaut upp í huga hennar mynd frá hverasvæði á Suður- landi. Þar hafði þeim verið sýnt, hvernig reynt hafði verið að beisla gufuaflið og leiða það gegnum rör. En menn höfðu orðið að gefast upp, höfðu ekki ráðið við verkefnið vegna of fjölbreyttra málm- efna. Hún sá fyrir sér sundurtært rörið og hryllti við. En efnainnihaldið og hita- stigið var ekki alls staðar eins, svo að hún varð bara að vona það besta. Enn var henni ómögulegt að opna augun, án þess aðfinna til skerandi sárs- auka Henni leið æ verr og átti orðið erfitt meðandardrátt. Stundu síðar lá Linda Ingesvik hreyf- ingarlaus á steinbrúnni. Hún megnaði vart lengur að halda handleggjunum frá sjóðheitu vatninu. Tærnar voru orðnar dofnar, fæturnir sigu án afláts niður í lænuna. Framh. í nœsta blaði. 24 Vikan 16. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.