Vikan


Vikan - 16.04.1981, Blaðsíða 67

Vikan - 16.04.1981, Blaðsíða 67
Draumar Allt varð ad klettum Kæri draumráðandi. Ég hef aldrei skrifað þér áðursvo ég vona að bréfið lendi ekki í ruslakörfunni. Mig hefur dreymt tvo drauma sem mig langar til að fá ráðna. Éyrri drauminn dreymdi mig í vetur en hinn seinni partinn í sumar. Mér fannst sem ég, pabbi (hann er dáinn), systir mín og X værum að fara austur yfir heiði. Það voru logandi sígarettur á veginum. Svo vorum við að fara upp brekku en þá breyttist allt umhverfð og það varð að klettum. Ég sá hús uppi á einum klettinum og vildi fara þangað svo við fórum öll. Systir mín sá eitthvað á stalli og sagðist ætla þangað en við hin héldum áfram upp. Ég varð fyrst inn í húsið og eina sem var inni í húsinu var skápur. Ég opnaði skápinn og tók út nagla, skrúfur og alls konar rusl, hvítan haldlausan bolla og hring sem stóð J á. Þá vaknaði ég. Seinni draumurinn: Mamma kom og náði í mig og sagði að ég ætti að koma heim og sjá hvað hún væri búin að breyta I herberginu mínu. Ég fór með henni en þegar ég leit inn í herbergið mitt var allt fullt af bljóðfærum og hátölurum. Ég labbaði alveg inn og þá kom bróðir minn inn og spurði mig hvort herbergið væri ekki orðið flott. Rétt á eftir kom pabbi inn og ég var alveg æðislega fegin þegar ég sá hann. Ég hljóp upp um hálsinn á honum og þá sagði pabbi að hann vœri kominn til að kveðja mig. Þá spurði ég hvert hann væri að fara og hann sagði: Þú veist alveg að ég er að fara. Þá fór ég að gráta og hljóp aftur upp um hálsinn á honum. Þá tók pabbi í höndina á mér og lagði hlut í lófa minn og lokaði honum aftur. Ég fann að þetta var giftingarhringurinn hans. Þá vaknaði ég. S.L.Þ. Allt bendir til þess að betri tímar séu í nánd hvað sjálfa þig varðar og ýmislegt gerist sem þig hefur varla einu sinni dreymt um. Heilbrigði, heimilislán og vinsældir eru aðaltákn draum- anna beggja og líklega ekki langt í það að þú festir ráð þitt. Draumarnir hafa reyndar báðir svo til nákvæmlega sömu merkingu — að gleðilegir atburðir setji svip sinn á tilveruna. Tveir barnavagnar Kæri draumráðandi. Mig langar til að vita hvort þessi stutti draumur táknar eitthvað. Mér fannst ég vera hjá vinkonu minni sem við skulum kalla O. Mér fannst O vera búin að eignast barn (sveinbarn). Það var í gömlum vagni á engum hjólum. Vagninn var dökkgrænn með rósum á hliðunum. Þegar ég leit ofan í vagninn þá lá drengurinn og horfði á mig, hann var með stór brún augu með grænum doppum í. (Ég get ekki almennilega lýst þeim, ég hef aldrei séð svo einkenni- leg augu fyrr.) Barnið var rauð- flekkótt í framan, sennilega með hitabólur. Ég sagði við O að ég gœti reddað henni um vagn ef hún vildi (mér fannst endilega að ég ætti 2 vagna). „Þá getur þú haft þennan vagn fyrir vöggu, ” sagði ég, en 0 vildi það ekki. Þá fór ég að þrátta við hana og sagði hennl ' ■? að hún yrði að fá annan vagninn, þeir væru svo æðis-; lega fallegir og ekki gæti hún v- - farið með barnið út í þessum T vagni sem engin hjól vœru undir. En þá vaknaði ég við • • • * klukkuna. Ég ætla að taka það > fram að vagnarnir sem mér fannst ég eiga eru vagnar sem t ■ ég hef séð og oft keyrt og þeir eru báðir í notkun núna. Með fyrirfram þökk. v *’ D.K.BJ. Táknin í þessum draumi eru 4 fremur ruglingsleg en flest bendir til þess að um einhver veikindi verði að ræða á heimili' ykkar vinkvennanna. Varla* verður of varlega farið I viðskiptum ykkar við hitt kynið ef taka á mark á öðrum táknum þessa draums. Fátt virðist þó með öllu afgerandi í þeim málum og því ekki ástæða til að hafa þungar áhyggjur af framtíðinni. Skop 16. tbl. Vikan 67 ,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.