Vikan - 16.04.1981, Page 7
Vikan í brugghúsi
«*
Patricia Guinn-
as&, annað af
tveim bjórflutn-
ingaskipum
Guinness, á
Uffey fijótinu.
Myndin er
raunar tekin af
skut hins, Lady
Mirande. Tank-
bilarnir sjá um
afl ferja bjórinn
Úr bjórgerflinni
til skips.
Arthur Guinness
Árið 1756 hefur Arthur fest kaup á
bjórgerð í Leixlip í County Kildare.
Hann sá fljótt að þar var engin framtíð
fyrir stórveldi og flutti því til Dublinar
1759. Það ár markar upphaf Guinness-
bjórs sem ekki aðeins hefur sett sinn
óafmáanlega stimpil á lra og írskt þjóðlif
heldur meira og minna á fjölmargar aðrar
þjóðir. Það var auðvitað byrjað smátt,
enda við ramman reip að draga. Iðn-
bylting í fullum gangi yfir á Englandi.
Irar þekktu lítið annað en fátækt og áttu
allt sitt undir kartöflunni. Sveitafólkið
drakk viskí og gin og var sælt með það.
Samt var bjórgerð á írlandi talsverð og
raunar arðvænlegasti iðnaðurinn þar.
Gæðin voru hins vegar ekki að sama
skapi merkileg — og svo nutu enskir
bjórgerðarmenn skattfriðinda á lrlandi.
Slíkt gerði írskri bjórgerð erfitt fyrir.
Þessi enski bjór var aðallega „porter" frá
London.
Þannig var írskum bjórmálum háttað
þegar Arthur Guinness reið fáki sinum
inn á bjórmarkaðinn. Hann barðist
hatramlega gegn friðindum enskra og
hótaði að byggja verksmiðju i Norður-
Wales til að framleiða fyrir Dublinar-
markaðinn ef réttlætinu yrði ekki
fullnægt. Þvi var fullnægt 1795 en þá
var hætt að skattleggja innlendan bjór.
Og Arthur þurfti aðberjast við fleiri.
Frá upphafi hafði hann tekið vatnið
í bjórinn úr skurði rétt við St. James's
Gate. En borgin óx og þurfti á þvi svæði
að halda. Úr þessu varð deila milli
borgarstjórnar og Arthurs. Ákveðið var
að fylla upp í skurðinn og borgarstjórinn
mætti með flokk manna til að fylgja
ákvörðuninni eftir. Þeir hittu fyrir
Arthur Guinness í vígahug. Hann greip
öxi af einum verkamannanna og
hrópaði ókvæðisorð. Við það glúpnuðu
komumenn og hurfu á braut. 1 það
skipti varð ekkert úr samningum. 1785
var hins vegar skrifað undir samning um
vatnsréttindi. Hann fól i sér 10 punda
leigugjald á ári. Vatnið skyldi nú tekið
nokkru fjær verksmiðjunni, úr stiflum 5
og 8. Þetta hélst fram á sjötta áratug
þessarar aldar. Síðan er vatnið tekið úr
síðarnefndu stiflunni. Þannig hefur
sama uppsprettan, St. James’s Well i
County Kildare, þjónað Guinness allt
frá upphafi.
Arthur Guinness stjórnaði fyrirtæki
sínu í 44 ár. Vegna afnáms bjórskattsins
og svo auðvitað vinsælda bjórsins tókst
honum að brjóta veldi Englendinga á
bak aftur. Á þessum hveitibrauðsdögum
fyrirtækisins hafði Guinness aðeins
bruggað „ale” og „borðbjór”. 1 dagbók
Guinness frá þessum árum má lesa: „1
dag, 1. aprrl 1799, var bruggaður siðasti
„ale" bjórinn.” Þessari ákvörðun. að
brugga aðeins „porter”, er þökkuð
óslitin velgengni Guinness. (Það sem
áður kallaðist „porter” heitir nú
„stout”.)
Frá Guinness föflur til
Guinness sonar
Arthur Guinness og Olavia Whitmore
kona hanseignuðust 21 barn, lOkomust
á legg. Þeirra elst var sonur og nafni
frumherjans. Arthur Guinness (II) tók
viðafföðursinum 1803.
Þessi Arthur lét sér ekki nægja að
stjórna vaxandi bjórgerð. Aukavinna
hans var að vera bankastjóri Irlands-
banka. Flestum hefði verið það fullt
starf. Sömuleiðis studdi Arthur (11)
baráttu frelsishetjunnar Daniels
O’Connell, baráttu fyrir réttindum
kaþólskra. Þetta er athyglisvert vegna
þess að Guinness-fjölskyldan hefur alltaf
verið mótmælendatrúar og fylgjendur
sambands við Breta á jteim timum.
Þrátt fyrir erfiðleika um miðja
nitjándu öldina tókst Guinness að halda
velli og vel það, vaxa talsvert. Hungrið
mikla 1845-1849 felldi um milljón íra og
landflótti var gífurlegur en upp úr miðri
öldinni rétti þjóðin að nokkru úr
kútnum. Járnbrautir voru byggðar um
landið og þorp sprutlu upp, hvort
tveggja hafði mikla þýðingu fyrir
Guinness.
Arthur Guinness (II) lést 1855 og við
tók Benjamin Guinness. Fyrirtækið var
nú orðið allsráðandi í Dublin og hafði
sömuleiðis náð sterkum tökum i
i.iverpool, Bristol og London.
Hafinn var stórfelldur útflutningur á
bjór frá trlandi.
Benjamin lét sér annt um fleira en
bjórgerðina eins og fyrirrennari hans.
Hann var um skeið borgarstjóri I Dublin
og seinna þingmaður, vellauðugur, enda
bjórinn farinn að gefa drjúgt af sér. En
Benjamin sat ekki á peningunum. Allt
frá upphafi hafði Guinness-fjölskyldan
verið tengd St. Patrick's-kirkjunni í
Dublin. Um miðja nitjándu öldina var
600 ára saga hennar farin að setja mark
sitt á þetta tignarlega guðshús.
Benjamin réð sér arkitekt til að gera
lillögur um endurbyggingu sem hann
var síðan sárlega óánægður mcð. Hann
settist því niður og gerði sjálfur áætlun.
Kirkjan var síðan lagfærð samkvæmt
henni, undir stjórn hans og fyrir fé hans.
Þjálfun i húsateikningu hafði Benjamin
auðvitað aldrei fengið. Verkið kostaði
lítil 150 þúsund pund!
Það er kaldhæðnislegt að á sama tíma
og Benjamin malaði gull með
framleiðslu sinni var annar af Guinness-
ættinni. Henry Grattan Guinness, á
þönum um götur Dublinar að predika
lýðnum skaðsemi alkóhóls og drykkju.
Þetta hafði þó harla lítil áhrif og Henry
fluttist til Afríku í guðsorðasáningu. Í
þeirri krossferð munaði minnstu að
hann yrði notaður í „írska kjötkássu’’ —
■ stað kindakjöts!
Lord Iveagh l-lll — Leiga í
9000 ár
Sir Arthur Edward Guinness og
Edward Cecil Guinness tóku í
sameiningu við af föður sínum. Edward
lfe. tbl. Vikan 7