Vikan - 16.04.1981, Page 8
Cecil keypti bróður sinn þó fljótt út úr
fyrirtækinu, kona Arthurs taldi þaðekki
sæma heiðursmanni að vera bruggari!
Edward stjórnaði Guinness á siðustu
áratugum nítjándu aldar og gerði að
þeim risa sem það er í dag. Árið 1886
varð Guinness svo opinbert fyrirtæki og
höfuðstöðvarnar fluttar til London, þó
Dublin sé auðvitað á sinn hátt
miðpunktur veldisins.
Edward var fyrsti „Lord Iveagh". Frá
Iveagh í Ulster kom Guinness-ættin
upphaflega. Hann er líka höfundur orða
,sem þykja nokkurs konar heimspeki
Guinness. I þeim felst sú stefna að
ágóðinn eigi að fara aftur til uppsprett-
unnar — að minnsta kosti að hluta: „Þú
getur ekki búist við að græða á öðrum ef
þú ert ekki við því búinn að láta aðra
græða á þér." Með mildari orðunt: „Ef
Guinness hefur gert Dublinarbúum gott
þá hafa Dublinarbúar gert Guinness
gott."
Nú er þriðji „Lord lveagh" forstjóri
Guinness, Arthur Francis Benjamin
Guinness, sjötti í beinan karllegg frá
Arthur Guinness hinum fyrsta.
Guinness stækkar líka og eflist. Arthur
(I) hefur vitað viti sinu þegar hann
skrifaði undir leigusamning á landi undir
bjórgerð til 9000 ára með 45 punda
ársleigu!
Á leiöinni í gerjun
Það hljómar ósköp einfalt að segja að
í Guinness sé bygg, humlar, vatn og ger.
En það er bara eitthvað meira. Eitthvað
sem enginn getur með góðu móti skýrt.
Aðferðin við bjórgerðina er ekki svo frá-
brugðin bjórgerð annars staðar — og þó.
Kannski er einhvers staðar leyndarmál i
framleiðslunni, kannski er það bara
Dublin sjálf sem er kryddið sem þarf!
Eitt er víst: Guinness er öðruvísi — með
þetta hvíta froðuhöfuðog þetta lítiðeitt
ramma bragð sem er þó sætt! Það er
annars tilgangslaust að reyna að lýsa því
sem ekki er hægt að lýsa, bara reyna!
lrskir bændur sjá Guinness fyrir
byggi. Meira en 28 þúsund hektara lands
þarf fyrir bjórgerðina. Bygginu er siðan
breytt i malt með þvi að láta það spíra og
kornið þurrkað í ofni. Maltið heldur
áfram í brugghúsið þar sem í það er bætt
örlitlu af brenndu byggi til litunar. Þetta
hráefni fer i nokkurs konar hakkavél,
„kieves", kramið þar og blandað vatni.
Með síun verður til úr þessu sætur vökvi
og tveim fyrri stigum framleiðslu-
ferilsinser lokið.
Á þriðja stigi koma humlarnir til
sögunnar, þetta undur bjórgerðar-
mannsins. Það er engu líkara en
skaparinn hafi ætlað jurtinni „humulus
lupulus” þennan hlut í bjórgerð frá
fyrstu tíð, svo mikið á bjórinn jurtinni
að þakka. Guinness hefur frá upphafi
sótt humla sína til Englands þar sem
skilyrði eru einkar góð fyrir jurtina. Hún
þrífst svo sem á írlandi, sú breska er
einfaldlega betri og það er ameriski
humallinn líka, enda sækir Guinness
sömuleiðis þangað. En hvað gerir
humallinn fyrir Guinness? Jú, hann
gefur bjórnum þetta sérstaka beiska
bragð sem er með öllu ómissandi.
Geymsluþolið er honum sömuleiðis að
þakka. Á þessu þriðja stigi eru
humlarnir soðnir í nokkra klukkutíma
með blöndunni sem áður var fengin.
Eftir aðra síun er loks komin hin endan-
lega bjórlögun, sú sem fer í gerjunar-
tankana.
Mikil lifandis býsn af bjór!
Þeir sem áður hafa aðeins þekkt til
bjórgerjunar í 25 lítra kút undir eldhús-
bekk finna til smæðar sinnar i gerjunar-
húsi Guinness. Þar duga engin smáílát.
Einn gerjunartankanna i St. James’s
Gate er stærstur i heimi. 1 honum eru
bruggaðar 2.304.000 enskar pintur í
einu, hvorki meira né minna! 1
gimaldinu berst úrvals Guinness ger,
jafngamalt fyrirtækinu. harðri baráttu
við að breyta sykrinum í löguninni í
vínanda og „carbon dioxide”. Efst i
tankinn safnast þykkt froðulag,
nokkurra metra jafnvel, sem er skilið frá
hinum gerjaða bjór eftir að gerjun lýkur.
Gerjunin tekur aðeins tvo til þrjá daga,
gerlarnir kunna líka orðið vel til verka
eftir öll þessi ár — svo fá þeir vitanlega
alltaf rétt hitastig sem ekki er lítið mikil
vægt. Verði þeir einhvern tima lasnir og
geti ekki farið í vinnu þá eru varabirgðir
geymdar á rannsóknarstofunni og í
peningaskáp forstjórans!
Greinarhöfundur var svo lánsamur
að hitta á þá stund í framleiðslunni að
þrír gerjunartankanna voru opnir og
gerjun að Ijúka. Inn um kýrauga gat
að líta brúna froðuna. Ég vildi sjá sem
mest, stakk höfðinu inn og andaði djúpt
að mér. Dvölin inni þar varð þó styttri
en til stóð, gasið sá fyrir því! Ég stóð á
öndinni drjúga stund. Billy leiðsögu-
maður Porter (!) brá á það ráð til að
berja á kvefinu sem hann var að fá að
fara að dæmi mínu. Honum leið strax
betur á eftir!
Þó hinn eiginlegi Guinness-bjór sé nú
fenginn er ekki öllu lokið þar með. Áður
8 Vikan 16. tbl