Vikan - 16.04.1981, Page 10
Anna tók saman
Páskarnir eru á næsta leiti og
frítími hjá flestum í þjóð-
félaginu. Kvikmyndahúsin
dusta rykið af gömlu teikni-
myndunum sínum, því smá-
borgararnir (sem eiga hreint
ekkert skylt við smáborgara-
skap) vilja ólmir fara á bíó.
Stundum eru meira að segja
glænýjar teiknimyndir á
boðstólum.
Fæstum blandast víst hugur
um vinsældir teiknimynda og
sjónvarpið hefur átt sinn þátt í
því að gera þær enn vinsælli, ef
eitthvað. Tommi og Jenni með
öllu sínu ofbeldi, blíði góði
Barbapabbi, Herramenn
ýmsum ókostum búnir og
Tékkarnir Sponni og Sparði
eru vinir margra barna.
Að láta myndir hreyfast hratt
Teiknimyndir eiga eldri
rætur en kvikmyndir og strax
árið 1831 var farið að gera
tilraunir með þess konar lifandi
myndir. Joseph Antoine
Plateau hét maður nokkur sem
fann upp undratækið
„phenakistoscope” sem nú er
jafnframandlegt og nafnið.
Fleiri fylgdu í kjölfarið með
endurbætt tæki og öllum var
þeim það sammerkt að þau
byggðust á aðferðum til að láta
myndir hreyfast hratt. Svipað
gera krakkar enn í dag, þeir
geta teiknað einfaldar myndir,
tekið þær í gegn og breytt
einföldum atriðum, svo sem
stöðu handa og fóta. Með því
að brjóta renning saman og
láta myndir standast á á efri og
neðri helmingi rennings geta
þeir útbúið einfalt bíó, frum-
stætt að vísu en byggt á sömu
hugsun og „alvöru” teikni-
myndir.
Fyrirmyndirnar úr
dagblöðunum
Þróun teiknimynda komst
verulega á skrið þegar farið var
að framleiða teiknaðar kvik-
myndir. Mikið var um að
teiknimyndahetjur dag-
blaðanna væru dubbaðar upp á
filmu og þannig látnar öðlast
nýttlíf.
Walt Disney er sennilega
frægastur allra einstaklinga
sem fengist hafa við teikni-
myndagerð. Hann hóf feril
sinn í Hollywood 1923 og gerði
teiknimyndir eftir sögunni Lísu
í Undralandi og Ástvaldi
kanínu. Hann hefur gert
ótaldar teiknimyndir þótt rétt
sé að geta þess að hann hafði
fjölda manns í vinnu hjá sér við
að teikna stjörnurnar sínar.
Mikki mús er frægastur allra
handaverka Disneys þótt
geðvonda öndin hann Andrés
hafi einhvern veginn náð meiri
alþýðuhylli hér á landi.
Kannski megi þar greina dönsk
„Andrés-blaða” áhrif.
Ekki bara barnaefni
Teiknimyndir eru löngum
taldar barnaefni þótt slíkt sé í
rauninni mesti misskilningur.
Svona geta teiknimyndir Ifka verið: úr bandarískri
verðlaunamynd.
Þessi mynd sýnir að ekki er
þörf að kvíða þótt ekki séu
allar teiknimyndir teiknaðar.
Teiknimyndir
— eldri rætur en kvikmyndir
Fullorðnir sitja alveg jafn-
stjarfir yfir ævintýrum Tomma
og Jenna á mörgum heimilum
og sakna þeirra alveg jafnmikið
þegar þeir týnast af
skerminum.
Walt Disney er einn þeirra
sem tekist hefur að skapa
klassíska teiknimynd sem
fremur verður að teljast eiga
erindi við fullorðna. Það er
auðvitað Fantasía, þar sem
hann leikur sér með sígilda
tónlist og teikningar.
Hér á landi hefur lítið verið
fengist við teiknimyndagerð
enda er það allrar kvikmynda-
gerðar seinlegust vinna, segja
fróðir menn. Þó hefur
Þrymskviða Sigurðar Arnar
Brynjólfssonar náð að líta
dagsins ljós, mest fyrir seiglu
höfundar.
Tuttugu og fjórar myndir á
sekúndu
Teiknimyndin hefur verið
notuð í auglýsingamyndir í
mörg ár og greinilegt að
teiknaðar auglýsingamyndir
standa í miklum blóma.
Framleiðsla teiknimynda er
hins vegar svo dýr að farnar
hafa verið ýmsar leiðir til að
sneiða hjá því að teikna allar
þær myndir sem með réttu lagi
þurfa að birtast á sekúndu til
að hreyfingar allar verði
eðlilegar. Hvorki meira né
minna en 24 myndir þurfa að
renna í gegnum vélina á hverri
10 Vlkan 16. tbl.