Vikan - 16.04.1981, Síða 19
Fjölskyldumál
Alltaf heyrist annað slagið í fréttum
um að einhverjir sitji t gæsluvarðhaldi
vegna gruns um eiturlyfjasmygl. Slík
mál upplýsast stundum og í Ijós kemur
að viðkomandi aðilar hafa með ein-
hverjum hætti komið svo og svo miklu
magni af ólögmætri vöru til landsins.
Margir hafa þungar áhyggjur af þvi að
neysla ýmissa eiturlyfja fari i vöxt og að
unglingar ánetjist eiturlyfjum meir og
meir. Vitað er að margir unglingar hafa
prófað eiturlyf og er hass sennilega
algengasta efnið sem þeir neyta.
Unglingar geta að sjálfsögðu ekki neytt
eiturlyfja nema þeir hafi einhverja
möguleika á því að útvega sér efnið.
Slíkt er yfirleitt ekki erfitt víða erlendis
en ætla má að enn sem komið er þurfi að
hafa nokkuð „góð” sambönd til að
nálgast eiturlyf á lslandi. Margar
rannsóknir erlendis frá vitna um að um
helmingur unglinga í elstu bekkjum
grunnskóla segist hafa prófað eitthvert
eiturlyf og enn fleiri segi að þeim hafi
verið boðin eiturlyf. Slíkt er varla til-
fellið hér enn sem komið er, þar sem
tsland má teljast tiltölulega ungt land
þegar eiturlyf eru annats vegar.
Eiturlyfjakóngar
Skipulagðir eiturlyfjahringir eru til
viða erlendis. Þar sitja eiturlyfjakóngar
eins og kóngulær í vef sínum og skipu-
leggja allt starfið í gegnum smákónga og
handlangara sem þjóna þeim í einu og
öllu. Eiturlyfjakóngar eru aldrei sjálfir
háðir eiturlyfjum, þvi að það gætu þeir
ekki verslunarinnar vegna. En „litlu
karlarnir” sem selja fyrir þá eru yfirleitt
alltaf háðir eiturlyfjum. Þeir fjármagna
neyslu siná með því að selja fyrir kóng-
ana. Eiturlyfjakóngarnir koma heldur
aldrei sjálfir nálægt smygli. Það vinna
nánir samstarfsmenn þeirra fyrir þá.
Smyglararnir eru heldur ekki háðir
eiturlyfjum en þeir græða stórar fúlgur á
Unglingar
og
eiturlyf
smyglinu. Það hefur ekki enn heyrst um
að skipulagðir eiturlyfjahringir á borð
við erlenda finnist hér á landi, þó að ætla
megi að einhver skipulögð starfsemi fari
hér fram i sambandi viðeiturlyfjasmygl.
Af hverju byrja unglingar að
neyta eiturlyfja?
Unglingar hafa sjálfir ýmis svör við
spurningunni. Þeir segja meðal annars
að það sé spennandi að prófa eitthvað
nýtt, að þeir vilji prófa hvort þetta sé
eins dásamlegt og lýst sé, að vinirnir hafi
prófað það og þá þurfi þeir einnig að
reyna og einnig að þeir vilji sjálfir vita
hvort það sé eins hættulegt að neyta
eiturlyfja og sagt sé. Margir unglingar
segjast verða ánægðari og upplagðari,
þegar þeir neyta einhverra efna, og þeim
finnst þeir losna við óöryggið, kvíðann
og þunglyndið. Sumir segja einnig að
þeir taki inn efni til að „finna” sjálfa sig.
Eiturlyf geta því verið flótti frá
tilfinningum og vandamálum sem
unglingar þora ekki eða geta ekki unnið
úr sjálfir.
Þeir sem hafa rannsakað þessi mál
hafa ýmsar útskýringar á því af hverju
unglingar ánetjast eiturlyfjum. Þvi er
haldið fram að unglingar, sem sæki í
eiturlyf, eigi oft við vandamál að etja
heima fyrir og slæmt samkomulag sé við
foreldra. Unglingarnir beri ekki traust til
foreldra sinna, geti ekki talað við þá, séu
gjarnan hræddir við þá og finnist úti-
lokað að foreldrarnir geti skilið þá. Bent
er á að langalvarlegustu eiturlyfjaneyt-
endurnir séu unglingar frá mjög erfiðum
heimilum, heimilum þar sem miklir
árekstrar hafi verið, drykkja, fátækt og
ofbeldi. Slíkir unglingar hafi oft fengið
þá tilfinningu að öllum sé sama um þá
og það skipti þvi ekki máli hvað þeir
geri. Þeir leita því burt frá ömurlegri
tilveru yfir i aðra sem þeir finna augna-
bliksfróun í.
Eiturlyfjaneysla er oftast bæði háð
ytri félagslegum áhrifum og innri
sálfræðilegum áhrifum. Víxlverkun
þessara þátta er oft mjög flókin.
Heimilisaðstæður, félags- og efnahags-
leg staða foreldra og skólaganga skipta
unglinga máli þegar eiturlyf eru annars
vegar. Unglingar sem sækja í eiturlyf
eru oftast óánægðir með alla hluti,
heimilið, skólann, kennarana og jafnvel
félagana. Þeir hafa oft þá tilfinningu að
þeir lifi vonlausri tilveru, sem ekki sé
hægt að breyta. Ýmiss konar tauga-
veiklunareinkenni geta gert vart við sig.
Eirðarleysi, óróleiki, erfiðleikar með
svefn og hræðsla eru algeng. Eiturlyfja-
neysla unglinga endurspeglar oft
viðhorfið: „Enginn skilur mig.”
Hassneysla og eiturlyfja-
neysla
Margir foreldrar eru áhyggjufullir ef
þeir vita að börn þeirra hafa prófað hass.
Sumir halda aðef hass er neytt nokkrum
sinnum geti unglingurinn orðið eitur-
lyfjaneytandi. Slik hræðsla var algeng
um 1970 þegar fjöldi af unglingum
viðsvegar um heini byrjaði að neyta hass
og fór siðan yfir i sterkari eitur-
lyf. Það er hins vegar ekki beint
samband á milli þess að neyta hass og
verða eiturlyfjaneytandi. Fjöldamargir
unglingar hafa neytt hass nokkrum
sinnum og hætt siðan og þeim aldrei
dottið i hug að neyta sterkari efna. Hass
telst hins vegar opinberlega til eiturlyfja
og hefur því gjarnan stimpil í hugum
almennings sem eiturlyf.
Skaðsemi hass
Menn greinir á um skaðsemi hass. í
þvi sambandi er oft bent á að hass hafi
verið notað öldum saman bæði í Austur-
löndum og Afríku og þar hafi menn litið
hass svipuðum augum og við höfum litið
á áfengi.
Dr. Olav Branden, sem er forstöðu
maður eiturlyfjastofnunar Sameinuðu
þjóðanna i Washington, kom með opin
bera yfirlýsingu frá rannsóknarstofnun
inni um hass upp úr 1970. Þessi yfir
lýsing kom í kjölfarið á stóraukinni hass
neyslu ungmenna. Olav Bránden sagði að
almennt ríkti sú skoðun meðal vísinda
manna að kannabis (hass og maríhúana)
væru hættuleg efni. 1 þessu sambandi
sagði hann að nú hefðu menn sannanir
fyrir að kannabis innihéldi miklu fleiri
efni en áður hefði verið álitið og þar
kæmu að minnsta kosti um 50 efni við
sögu. Þessi efni væri ekki enn búið að
einangra og rannsaka. Upp úr 1970 voru
cinnig birtar niðurstöður í erlendum
tímaritum þess efnis að hægt væri að
verða háður hassi. Með þessu var átt við
að maður sem neytti hass reglulega
myndi stöðugt þurfa meiri og meiri
skammt til þess að ná vímukenndum
áhrifum. Rannsóknir með dýr höfðu
sýnt fram á að þessu var svona varið og
minnti verkunin á verkun áfengis.
Margt fleira athyglisvert hefur komið
fram i skýrslum. ekki sist frá Sameinuðu
þjóðunum, um hass, meðal annars að
mikil hassneysla geti valdið heila
sköddun. Vísindamenn eru hins vegar
ekki á eitt sáttir um skaðsemi hass og
segja sumir að hassneysla unglinga geti
aldrei orðið neitt svipuð að magni til eins
og það sem pumpað hefur verið í dýr i
tilraunaskyni. Þess vegna sé útilokað að
unglingar geti orðið fyrir sömu skaðsam-
legu áhrifunum. En skýrslur frá
Alþjóðaheilbrigðisstofnun Sameinuðu
þjóðanna hafa hins vegar mikil áhrif á
afstöðu margra þjóða til hass og valda
þvi mcðal annars að hass er enn bannað
á Vcsturlöndum og taliðeiturlyf.
16. tbl. Vikan 19