Vikan - 16.04.1981, Side 30
TIL
VÆNTANLEGRA
HÚSBYGGJENDA
Stuðlafell sf. hefur síðastliðin 6 dr framleitt hús úr steinsteyptum
einingum og höfum við hingað til ekki getað annað eftirspurn. Erum
við nú fluttir í fullkomið húsnæði og viljum með bæklingi þessum
kynna framleiðslu okkar og þá miklu möguleika fyrir húsbyggjendur
sem hún býður upp á.
Teikningar að einbýlishúsum, sem hér eru sýndar, eru aðeins sýnishorn
en til eru um 40 staðlaðar teikningar, sem hægt er að velja um, og
vegna breytileika, sem getur verið á einingunum, er mjög auðvelt að
sérhanna hús eftir óskum húsbyggjenda eða breyta stöðluðum
teikningum. Steinsteypan er besta byggingarefnið sem völ er á og
bjóðum við ,,steinsteypt hús á stuttri stund" og gerum tilboð í
grunna, fokheld hús, hús tilbúin undir tréverk eða fullbúin.
Eins og áður segir er aðalframleiðsla okkar útveggjaeiningar í einbýlis-
hús en einnig framleiðum við einingar í raðhús, bílgeymslur, gripa-
hús, geymsluhús og fleiri gerðir bygginga. Einnig framleiðum við
kraftsperrur af ýmsum gerðum svo og glugga.
Ekki eru tæmandi upplýsingar í bæklingi þessum en við veitum
fúslega allar upplýsingar og ráðleggjum um val á teikningum og
tilhögun framkvæmda.
Með bestu kveðju
IqQQqHGGQIJ1
DRAUPNISGÖTU 1
AKUREYRI
SÍMI (96)25700
Valur Kristinsson