Vikan - 16.04.1981, Síða 78
Pennavinir
Kannveig Gissurardótlir, Akurgerói,
Hallormsstað, 701 Egilsstöðum, óskar
eftir pennavinum, jafnt strákum sem
stelpum, á aldrinum 9-11 ára. Margvis-
leg áhugamál.
Guðrún Agnes Kriiger, Skólagerði 34,
200 Kópavugi, óskar eftir að skrifast á
við stráka og stelpur á aldrinum 17-20
ára, er sjálf að verða 17 ára.
Áhugamál eru sund, hestar, íþróttir,
skemmtanir, bréfaskriftir, mótorhjól
og bílar. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef
hægt er. Hikið ekki við að skrifa.
Sigurrós Hilmarsdóttir, Bleiksárlilíð
59, 735 Eskifirði, óskar eftir að skrifast
á við stelpur á aldrinum 8-10 ára, er
sjálf 9 ára. Áhugamál eru lestur,
frimerki og fleira. Mynd fylgi fyrsta
bréfi ef hægt er.
Skjalg Petterson, Bromstadveien 72,
7000 Trondheim, Norgc, er 24 ára
norskur strákur og langar að skrifast á
við íslenskar stelpur. Áhugamál eru
dýr. stjörnumerkjafræði (fæddur í
voginni), mikilvæg samfélagsmál svo
sem náttúran og baráttan gegn kjarn-
orkuvopnum o.fl. Sendið mynd ef
hægt er. Skrifið á dönsku eða ensku.
Miss Wendy Taylor, 18 Station Ltake
Kd., Lara, Victoria, Austraiia, 26 ára
stúlka, hefur áhuga á matseld/ijós-
myndun, frímerkjasöfnun, handa-
vinnu, pottablómaræktun, lestri.
fcrðalögum og að skrifa pennavinunt.
Kristbjöm
Tryggvason
ranglega
sagður Ifitinn
í viðtali við Sigríði Björns-
dóttur í 11. tbl. var Kristbjarn-
ar Tryggvasonar getið — að
góðu einu — en af slysni
bættist orðið heitinn aftan við
nafn hans. Sigríður rakst á
þessa villu í handriti og leiðrétti
að sjálfsögðu, þar sem hún
vissi betur. Þessi leiðrétting var
síðan í snatri símuð út í prent-
smiðju, þar sem blaðið var í
vinnslu. Af einhverjum ókunn-
um ástæðum komst leiðréttingin
ekki alla leið og eru hlutaðeig-
andi beðnir velvirðingar á
þessum leiðu mistökum.
Anna Björnsson blaðamaður.
Ekki nóg
poppefni
Kæri Póstur.
Nú ætla ég að skrifa og
kvarta svolítið. Mér finnst alls
ekki hafa verið nóg af „popp-
efni'' í blaðinu að undanförnu.
Getið þið til dæmis ekki komið
með greinar um einhverjar af
þessum hljómsveitum: The
Police, Dire Straits, Madness,
Clash og fleiri? Það vantar
alveg að þessar nýbylgju-
hljómsveitir séu kynntar. Með
bestu kveðju.
Ein sjúk í þessar hljómsveitir.
Þetta kann að vera rétt. Margir
skrifa og kvarta um að ekki sé
gert nóg að hinu eða þessu.
Pósturinn kemur óskunum
áleiðis og síðan er reynt að
verða við þeim eftir bestu getu.
Mig langar að
spyija þig ...
Kæri Póstur
Mig langar að spyrja þig
nokkurra spurninga. Og viltu
vera svo vænn að senda bréfið
ekki í þessa frægu ruslakörfu,
Helgu.
1. Er til eitthvað til þess að
auka hárvöxt?
2. Er hægt að fá eitthvert
krem eða eitthvað til þess að
losna við að fá þessar unglinga-
bólur?
3. Af hverju slitnar hárið á
manni svona?
4. Hvernig fær maður
hreina og fallega húð?
5. Hvernig losnar maður við
freknur?
6. Ég er svo hrœðilega feit,
hvað á ég að gera til að
grennast?
7. Hvernig getur maður
fengið þykkt og fallegt hár?
8. Hvað merkja nöfnin Erla,
Sigrún, Verónika og Jódís?
9. Svo er ein spurning fyrir
vinkonu mína. Hvað getur
maður gert til að komast í
splitt og spígat?
Jæja, elsku Póstur minn, þú
ert sennilega orðinn leiður á
þessum eilífu spurningum. En
ég vona að þú svarir mér eins
fljótt og mögulegt er því ég er
svo lítil.feit og Ijót.
Ein for-forljót.
P.S. Þakka mjöggott blað
með góðu efni.
Eitt hið besta ráð til að auka
hárvöxtinn er að klippa hárið
reglulega. Þetta kann að
hljóma nokkuð þversagnarkennt
en er alveg satt. Þetta kannast
þeir við sem vilja hafa stutt hár
eða stuttan topp. Því oftar sem
þeir klippa sig þvi hraðar
virðist hárið vaxa. Þetta stafar
í stuttu máli af því að hvert
hár er eins og rör i laginu, það
er að segja holt að innan.
Þegar hárið eldist slitnar það
og klofnar og þar með lokast
fyrir opið og hárið getur ekki
vaxið meir. í smásjá lítur slitið
hár svipað út og tóg sem hefur
núist í sundur. Ef menn klippa
sig oft, þó ekki sé nema lítið í
einu, koma þeir í veg fyrir að
hárið nái að slitna. Ef menn
ætla að safna hári eins og
kallað er verður þó að gæta
þess að klippa minna en sem
svarar 1 cm á mánuði, en það
er meðalvaxtarhraði hársins.
Sömuleiðis getur permanent,
mikil notkun krullujárns og
heitra rúlla, mikil sól og sjóböð
og of tíð hárburstun slitið
hárinu. Til þess að koma í veg
fyrir þetta hvimleiða slit er því
best að fara varlega í ofan-
greindum atriðum, klippa hárið
oft, borða B-bætiefnaríkan
mat og nota hárnæringu, að
minnsta kosti annað slagið. Ef
Orð í belg um uppeldi ba
Kæri Póstur.
Nú er ég svo reið að ég œtla að láta til mín heyra um
mál sem mérflnnst lesendum Vikunnar koma við, ekkert
síðuren uppáferðir unglinga ogafleiðingar þeirra. Mitt mál
er kaupþrætur við fóstrur sem nú standa yfir. Það er
skömm að þessu máli vegna þess aðfóstrur ættu að réttu
lagi að vera í hæsta launaflokki. Það eru þær sem annasl
og ala upp börnin meðatt mæður þeirra flykkjast út á
vinnumarkaðinn til þess að ,,auka tekjur heimilanna" og
„vinna þióðfélaginu gagn". En það telst víst ekki til gagns
fyrir þjóðfélagið að sjá um börn. Það sést vel á því að
fjöldi kvenna hefur látið tíðarandann telja sér trú um aö
húsmóðurstarfið og barnauppeldið sé eitthvað sem er lítils
virði og brevta samkvæmt því, ogfóstrur eiga víst að láta
skammta sér skít úr hnefa fyrir að vinna störf mœðranna.
Hvernig væri að snúa þessu við og mæðurnar sæju sjálfar
um börnin sín þessi fáu ár sem það tekur þau að verða
sjálfbjarga og fóstrurnar tækju við þeirra störfum á vinnu-
markaðnum fyrir boðleg kjör? Mér flnnsl atvinnumál
kvenna að ýmsu leyti talsvert öfugsnúin.
En hvað sem því líður er alltaf fjöldi mæðra, já foreldra
ætti ég víst að segja, sem ekki á annars kost en að vinna úti
hörðum höndum fyrir börnum sínum og láta þau í hendur
ókunnugra á meðan. Það verður alltaf þörf J'yrir góðar
fóstrur og þær eiga allt gott skilið, enda trúi ég því ekki að
til sé móðir sem ekki skilur hvers virði góð fóstra er. Og
látum svo útrætt um það.
Af því að ég er nú að létta á hjarta mínu á annað borð
varpa ég hér fram spurningu, ekki bara til Vikunnar heldur
allra fjölmiðla. Af hverju er almenningur úti á landi aldrei
spurður álits um stórmál sem eru á döflnni? Tökum til
dœmis virkjunarmál og togarakaup. Við hér ,.á landsbyggð-
inni" höfum okkar skoðanir og þessi mál koma okkur
sannarlega við. Já, líka fóstrumál!
Með kveðju til Póstsins sem mér flnnst hafa farið mikið
fram í starfl á síðari árum.
Ein spurning til gamans í lokin. Hvað segir skriftin?
Heimakær húsmóðir fyrir norðan
78 Vikan Ifc. tbl.