Vikan - 01.03.1984, Síða 35
15
Draumar
Frétt um
bílslys í síma
Kcen draumráðandi.
Mig dreymdi tvo drauma fynr
nokkru og mig langar að biðja
þig að ráða þá fyrir mig. Og hér
kemur sá fyrri: Ég fór til Noregs
með vinkonu minni og þá komu
strákar að heimscekja okkur í
búðina sem við vorum í. Við
þekktum þá ekki neinn en við
fengum okkur íglas og allt í einu
datt mér í hug að hnngja i X
sem býráH.
Ég talaði við hann smátíma og
vinkona min líka. Á meðan
hann var að tala við hana bað
hann hana um að fá að tala við
mig aftur. Já, ég tók tólið og þá
sagði hann við mig að Z hefði
lent í bilslysi og dáið. Eg trúði
honum ekki og sagði þá: Þú
lýgur. En hann sagði að þetta
vceri alveg satt. Eg henti tólinu i
vinkonu mina og kastaði mér i
rúmið og grenjaði og þá vaknaði
ég-
Seinni draumurinn:
Ég var heima hjá mér og þá
hringdi síminn. Eg svara og þá er
Þ, bróðir Z, í símanum. Þ segir
að Z hafi beðið hann um að
hringja í mig og segja mér að
hann hafi lent i bílslysi og sé
dáinn. Eg var mjög sár en sagði
ekkert. Þá spurði hann hvort ég
cetlaði ekki að koma. Jú, segi ég,
eins fljótt og ég get.
Eg hringdi á leigubíl þvi að
það var klukkutíma keyrsla
þangað. Þegar við komum
þangað faðmaði ég foreldra
hans, sem ég hef aldrei séð áður,
og bróðir hans sagði: ég sam-
hryggist ykkur öllum. Svo
settumst við öll inn i eldhús og
töluðum saman. Svo sagðt Þ,
bróðir Z, við mig: Þú mátt sofa
inni í herberginu hans Z. Eg
sagði þá: Já, allt i lagi. Þá sný ég
mér að vinkonu minni og segi að
hún megi sofa hjá mér ef hún
vilji. Ég fer inn í herbergi og
hátta mig. Þegar ég er háttuð
kemur vinkona mín og leggst vtð
hliðina á mér. Við gátum ekki
sofnað og töluðum saman allt
kvöldið. Um morguninn fórum
við svo á fætur. Þá bað ég Þ um
að fá að sjá likið og hann segir:
Allt i lagi, og við keyrum af
stað. Við stoppuðum i sjoppu á
leiðinni og keyptum okkur eitt-
hvað að borða. Þá kynnti Þ fyrtr
mér fyrrverandi kærustu Z en
sagði ekki nafnið.
Svo var ég bara allt i etnu
komin heim og vaknaði.
Eg vona að þú birtir þessa
drauma fyrir mig. Með fyrtrfram
þökk fyrir birtinguna,
Ein sorgmædd.
Draumarnir eru báðir alveg
sérlega farsælir, það er varla hægt
að óska vinum sínum betra en að
deyja í draumi, það er nefnilega
talið boða langlífi hins látna.
Sennilega er draumurinn fyrir-
boði einhverra frétta eða heim-
sóknar einhvers sem er í ein-
hverri fjarlægð og sá eða sú gerir
sér ansi títt um þig og er sérlega
forvitin(n). Heillatákn eru mörg
á lofti og eitthvert rót gæti
komið á þína tilveru en það
verður frekar til góðs en ills.
Draumanöfnin eru mjög góð,
flest og jafnvel öll tákn benda til
að þú eigir góða vini, góða að og
lifir mjög gleðilegu lífí.
Grátur er eitt besta tákn sem
hægt er að fá í draumi.
Það er þó rétt að taka fram að
alltaf þegar bílslys kemur fram í
draumi er ástæða til að benda
fólki á að fara mjög varlega í allri
umferð og með öll farartæki. Það
gæti jafnvel verið hyggilegt að
varast langar bílferðir. En í
draumum sem í er svo mikið af
heillatáknum er alveg ástæðu-
laust að sjá neitt misjafnt þó eitt
tákn sé erfítt. Hins vegar ætti
maður alltaf að taka mark á
aðvörunum í draumi, það sakar
ekki þó að draumarnir séu góðir.
Úrval
EYKUR
VÍÐSÝNIÞÍNA
ASKRIFTARSÍMINN ER
27022
Brotin tönn
og kónguló
Kæri draumráðandi.
Okkur langar að biðja þig að
ráða fyrir okkur tvo drauma. Sá
fyrri er svona.
Mig dreymdi að ég væri búin
að gifta mig (en ég er ógift) og
einhverra hluta vegna varð það
að gerast. Eundinn var handa
mér strákur til að giftast. Við
elskuðum bceði aðra aðila en þó
sættum við okkur viðþað að gift-
ast. Eg var alklædd í hvítt og
með slöngulokka. Þennan dag
brotnaði í mér tönn og var ég
með mikið kul i brotinu sem
eftir varð, síðan vaknaði ég.
Seinni draumurinn er svona.
Mig dreymdi að ég sœti og var
ég djúpt hugsi og horfði niður á
gólf. Kom þá i Ijós kónguló og
lyfti ég upp fótunum. Komu svo
alltaf fleiri og fleiri í Ijós uns þær
voru orðnar sjö. Þessar kóngulœr
voru mjög óvenjulegar þvi þær
voru litskrúðugar. Siðan strauk
ég vinstri fæti undir hægri fót og
fann ég þá að ein kóngulóin var
búin að spinna vefvið löppina á
mér og þurfti ég að beita hörku
til þess að slíta hann frá mér og
þar með var draumurinn búinn.
B- ogj.
Fyrri draumurinn er fyrir ein-
hvers konar missi, jafnvel vina-
missi (þarf ekki að vera dauðsfall
þó) og jafnframt í því sambandi
einhverjum sigri (draumanafnið
á brúðgumanum). Þrátt fyrir
erfið tákn sem tvímælalaust boða
þerinan missi má því ætla að
þetta verði annaðhvort til góðs
eða ef um dauðsfall er að ræða þá
sé það endir á löngu veikinda-
stríði. Þetta mætti kalla já-
kvæðan draum um neikvætt
efni.
í seinni draumnum er heldur
betur ábatavon og jafnvel rífandi
peningar. í kringum þá er tals-
vert bjástur, öfund og jafnvel
samkeppni og þú þarft að rífa þig
út úr draumaheimi og beita
miklu raunsæi til að valda mjög
óvenjulegri stöðu. Draumurinn
bendir til að þú getir það vel og
þá er bara að kunna að njóta
góðu daganna.
Amma
og langur
stigi
Kæn draumráðandil
Mig langar að biðja þig að ráða
fyrir mig draum sem mig
dreymdi fyrir stuttu.
Það var þannig að mér fannst
ég vera stödd úti í skógi. Svo
heyrði ég að amma var að kalla á
mig (amma er dáin). Eg fór til
hennar og settist hjá henni við
stórt tré. Svo sagði amma mér að
sjá allt fólkið (ég þekkti þetta
fólk ekki). Eg sá það en fólkið
gat ekki séð okkur ömmu.
Amma bað mig um að koma
með sér niður stiga (þetta var
mjög brattur og langur stigi'). Eg
vildi ekki fara niður en þorði
samt ekki að segja það við
ömmu. Ég leiddi ömmu að
stiganum. Þegar við vorum
komnar að honum fannst mér ég
hrinda ömmu eða detta á hana,
en hún datt ekki.
Og við það vaknaði ég. Með
fyrirfram þökk fyrir birtinguna.
Ein áhyggjufull.
Þessi draumur er hreint ekki
eins afleitur og dulnefnið, sem
þú kýst þér, gefur til kynna að
þú teljir. Vissulega eru í honum
leiðindatákn, ferðin niður
stigann, sem er þér svo á móti
skapi, merkir samkvæmt hefð-
bundinni ráðningu að þú munir
missa eitthvað (venjulega eitt-
hvað veraldlegt, hlut eða eitt-
hvað þér hagstætt) og samskipti
ykkar ömmu þinnar benda til
þess að þú megir athuga þinn
gang í lífinu, sért kannski ekki á
réttri leið. En ýmislegt í draumn-
um bendir einnig til þess að í
þínu lífi séu að verða umtalsverð-
ar breytingar til batnaðar, jafn-
vel svo að hægt sé að kalla algjöra
kúvendingu. Þú skalt sem sagt
hugsa út í einstaka þætti lífsins
og athuga hvort eitthvað má bet-
ur fara. Þú gætir þurft að færa
einhverja fórn, glata einhverju
sem þér þykir mikilvægt núna
eða brjóta odd af oflæti þínu, en
margt bendir til þess að það
muni leiða þig á mjög góða
braut.
9. tbl. Víkan 35