Vikan


Vikan - 07.02.1985, Side 4

Vikan - 07.02.1985, Side 4
Franskir bílar í eina öld Þótt Frakkar séu ekki voldugustu bílaframleiðendur heims voru þeir verulegir brautryðjendur á sviði bíla- framleiðslu og bílar þeirra hafa alltaf þótt nýstárlegir og „öðruvísi". DELAMARE —DEBOUTTEVILLE 1884: Nákvæm endursmíð fyrsta franska bílsins. En það sem réttlætir þessa nafngift eru tæknilausnir sem enn í dag hafa fullt gildi, svo sem rafkveikja með rafhlöðu, háspennukefli og kerti með notkun rafals (dínamós) í huga; blöndungur með lofts- eða vatnsupp- hitun; háþrýstingur; pústkerfi með hljóðkút; lofts- eða vatnskæling vélar; stjórnun bíls með stýri og fleira. Texti og myndir: Árni Þ. Jónsson Síðastliðið sumar héldu Frakkar upp á eitt hundrað ára afmæli franska bílsins með veglegri yfirlits- sýningu í Grand Palais í París. Sú sýningarhöll hefur verið kynningar- vettvangur nýjunga og tæknifram- fara í bílaframleiðslu þeirra frá alda- mótum til 1961. Heimildarmaður Vikunnar lét þetta gullna tækifæri til að gefa landanum nasa- eða öllu heldur linsusjón af sögu franska bíls- ins ekki ónotað. Óhjákvæmilega verður að stikla á stóru en vonandi kitla þessar síður sjóntaugar áhugamanna um fornbíla og bílaspekúlanta almennt þótt grunnt verði kafað í hyldýpi þeirrar tækniþekkingar sem liggur að baki þessa þarfasta þjóns tuttugustu aldarinnar: bílsins. I þessari Viku og þeirri næstu verður fjallað um „forfeðurna” fram yfir fyrri heimsstyrjöld en síðar munum við líta á ,,afa og ömmur” nútímabílsins frá því um 1920 fram yfir síðari heimsstyrjöldina, og í síðasta áfanga verður litið á ,,for- eldra” nútímabílsins, það er að segja bílafrá 1947 til 1973. Þær frönsku í hundrað ár „Þær frönsku eru ekkert grín” söng Maggi Kjartans hér um árið um margrómaðar dætur Frakklands. En eins og skoöanir manna eru skiptar á þeim frönsku deila menn ekki síður um ágæti franskra bifreiða. Ýmsir benda á að erfitt sé að gera við þær og að varahlutaþjónustunni sé ábótavant hér- lendis. Aðrir segja að þurfi einungis að fara öðruvísi að þeim og þá gangi allt ofur eðlilega og vel fyrir sig. Er ekki fráleitt að þar séum við komin að sameiginlegum einkennum franskra kvenna og bifreiða. DE DION BOUTON 1885: Þessi bíll gerði lengi garðinn frægan og þótti með merkilegri tegundum. Þessi gerð tók meðal annars þátt í hinni ævintýralegu þolraun, kappakstrinum frá Peking til Parísar, en þá var að vísu yngra módel komið til skjalanna. 4 Vlkan 6. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.