Vikan - 07.02.1985, Blaðsíða 30
Einkaafmælisspá
fyrir hvern dag vikunnar
7. febrúar:
Afmælisbam dagsins hefur eðli
grúskara og rannsóknarmanns.
Vísindi eru því mjög hugstæð og
það leitast við að skilgreina út í
æsar allt sem á vegi þess verður.
Hlédrægni er því í blóð borin en
jafnframt hlýtt hjartaþel svo vinir
laðast að því fremur en hitt. Hætt-
an er sú að afmælisbarn dagsins
gangi of langt í skilgreiningum
sínum á eðlisþáttum vinanna og
átti sig ekki á því að mannshug-
urinn hefur meiri möguleika en
nokkurt tæknilegt fyrirbæri. Þetta
leiðir jafnframt til nokkurrar böl-
sýni hjá afmælisbarninu þar sem
það teíur allt sem ekki er hægt að
setja upp í kerfi og hluta niður í
markvissa búta vera hverfult og
óstöðugt og treystir því ekki.
Það leiðir að líkum að öll kerfis-
bundin rannsóknarstörf láta þessu
afmælisbarni best. Það ætti helst
að snúa sér að verkfræði,
tæknifræði eða tölvufræði, eða
þeim vísindum sem auðveldast er
að setja upp í kerfi og rannsaka á
formfastan hátt.
Hið skilgreinandi eðli afmælis-
barnsins í dag gerir það að
verkum að það lætur tilfinning-
arnar aldrei hlaupa með sig í
gönur. Það, ásamt tilhneigingu
þess til að skilgreina til hlítar
hvaðeina sem á vegi þess verður,
leiðir tU þess að fólk mun álíta það
tilfinningalega kalt. Það er rangt,
afmælisbarnið hefur einmitt mjög
ríkar tilfinningar og þegar það
hefur skilgreint sig til vináttu viö
einhvern þarf mikið til að hrófla
við því.
Könnunareðlið leiöir til þess að
ástalífið hefst snemma. Trygg-
lyndið verður til þess að afmælis-
barnið velur sér framtíðarmaka á
ungum aldri og heldur við hann
farsæla tryggð uns yfir lýkur,
enda er afmælisbarnið mjög
heimakært og vinnur heimili sínu
af heilum hug.
Heilsufarið er yfirleitt fremur
gott og lítið um tilfallandi kvilla.
Þó ættu þeir að gæta að fótum
sínum sem eru kannski ívið
þybbnari en gott þykir.
Happatölur eru 7 og 8.
8. febrúar:
Einkenni þess sem á afmæli í
dag er óvenjuleg námsgreind.
Hann hefur líka óvenju sterka rétt-
lætiskennd, svo sterka að hún getur
á köflum kallast ósveigjanleg.
Almennt eru afmælisböm þessa
dags félagshneigð og hafa ánægju
af aö starfa í félögum en engu að
síður eru sum þeirra hlédræg og
hafa sig lítt í frammi. Þau verða
gjarnan það sem kallað er „vinnu-
dýr” í félögum — en einmitt það á
mjög vel við þau og þar njóta þau
sín.
Fólki dagsins hentar vel að
vinna við áþreifanlega hluti, svo
sem smíðar og annað það sem á-
kveðið efni þarf til í ákveðnum
mæli. Það er mjög hagsýnt, nýtir
vel bæði efni og tíma í vinnu sinni,
og á erfitt með að umbera
hirðuleysi og slóðaskap. Það er of
félagslynt til þess að kunna við sig
eitt í starfi og gjarnan of hlédrægt
og hógvært til þess að henta vel
sem yfirmenn.
Þeir sem fæddir eru í dag eru
líklegir til að efnast vel. Þó getur
gengið á ýmsu áður en það verður
og stundum hættir þessu fólki til
að gleyma sannleiksgildi þeirra
orða að „það kostar peninga að
græða”. Félagshneigð afmælis-
barnsins kann og að leiða til þess
að það velji sér ekki viðskipta-
nauta sem skyldi og fái oftar en
einu sinni að súpa seyðið af því að
ekki eru allir jafnáreiðanlegir og
það sjálft.
Ástamálin geta orðið býsna
fjölskrúðug og litrík þar sem fyrir-
varalítið skiptast á brunafuni og
nístingskuldi. Oftraust afmælis-
barnsins á öðrum getur leitt til
ýmiss konar vandamála á þessu
sviði sem öðrum en félagshneigð
og elja afmælisbarnsins valda því
að það er í rauninni mjög trygg-
lynt að eðlisfari. Hentast væri því
að leita sér lífsförunautar í hópi
þeirra sem eru talsvert eldri en
það sjálft og mun vel fara ef réttur
maki finnst.
Almennt séð er afmælisbarn
dagsins mesti þrekskrokkur en
þó væri því rétt að leggja ekki vís-
vitandi of mikið á hjarta og æða-
kerfið.
Happatalan er 8.
9. febrúar:
Sá sem fæddur er í dag hefur
góðar, hagnýtar gáfur og gaman
af hvers konar vangaveltum,
hvort heldur um er að ræða á-
þreifanlega hluti eða óáþreif-
anlega, og getur oft komið auga á
ýmislegt sem öðrum finnst ekki
liggja í augum uppi. Hins vegar er
viðbúið að hann eigi í dálitlum
bágindum með að notfæra sér
gáfur sínar. Sjálfsagi er af-
mælisbarni dagsins mjög
nauðsynlegur ef það ætlar að nota
gáfurnar. Félagslynt er afmælis-
barnið í eðli sínu en á stundum
erfitt með aö aðlagast hópnum
þótt fullur vilji sé fyrir hendi.
Hvers konar tæknileg og verk-
fræðileg störf, þar með taldar
smíðar af ýmsu tagi og skipulags-
vinna, svo sem húsateikningar og
annað af því tagi, gætu hentað
börnum dagsins mætavel. Þar
getur hyggjuvitið og frumleikinn
fengið að njóta sín ásamt út-
sjónarseminni sem er aðalsmerki
afmælisbarnsins. Það á auðvelt
með að vinna eitt út af fyrir sig ef
það hefur náð tökum á sjálfsag-
anum en getur líka lukkast
prýðilega við verkstjórn eða yfir-
umsjón á vinnustað. Líklegt er að
fjárhagur þess sem á afmæli í dag
verði oftast bærilegur og stundum
mjög góður ef vel til tekst.
Ekki er víst að afmælisbarnið
eignist nokkum tíma maka eða
finni hjá sér þörf til þess. Það
hefur gjarnan ekki mikla
ásthneigð og orkar alla jafna
meira á hitt kynið en það á af-
mælisbarnið. En ef ástin grípur
afmælisbarn dagsins á annað
borð verður hún að meiri háttar
báli og líklegast aö hjónabandið
verði hamingjusamt.
Heldur er fólk dagsins
veikbyggt, án þess þó að vera
heilsuveilt. Ef það gætir þess að
ætla sér ekki um of mun allt verða
með felldu á því sviði.
Happatölur eru 9 og 8.
10. febrúar:
Fólk fætt þennan dag er
aðlaðandi og einlægt. Það er þolin-
mótt, einbeitt og á auðvelt með að
ávinna sér virðingu og vináttu
samferðamannanna. Það hefur
mikið mannvit, er ríkt af skilningi
á öðru fólki og á auðvelt með að
setja sig í þess spor. Nokkurrar
tilhneigingar verður vart hjá því
til aö drepa djúpum tilfinningum á
dreif með kaldhæðni en það af-
mælisbam dagsins sem hefur
gert sér grein fyrir þeim þætti
eðlis síns hefur yfirleitt nógan
sjálfsaga til að sneiða fram hjá
þeirri hegðun.
Áhugasvið afmælisbama
dagsins skiptast nokkuð jafnt milli
raungreina og hugvísinda. Þau
geta orðið fyrirtaks tölvufræðing-
ar, símvirkjar, radíóvirkjar, raf-
virkjar eða annað sem tengist
þessum störfum. Þau geta alveg
eins orðið góðir sálfræðingar eða
prestar. Þau virðast hafa ein-
kennilegt aðdráttarafl á peninga
en sjaldnast er hægt að segja að
þau séu rík heldur hafi þægilega
nóg fyrir sig.
í ástamálum hættir afmælis-
börnum dagsins til að vera nokkuð
fjöllynd og leggja framan af þó
nokkuð meira upp úr leik en al-
vöru. Enda mun rétt vera að ást
kemur þessu fólki seinna en ást-
hrifni. En þegar að ástinni sjálfri
kemur verður hún varanleg og
trygg, kannski meðfram vegna
þess að fólk dagsins hefur þá að
öðru jöfnu hlaupið af sér hornin og
gengur vitandi vits í faðm ástar-
innar.
Að upplagi eru afmælisböm
dagsins ekki sterk til heilsunnar.
Einkum eru það ýmiss konar
beina- og vöðvasjúkdómar sem
hafa tilhneigingu tU að hrjá þau en
rétt umhverfi og góð meðferð á
sjálfum sér getur dregið verulega
úr öllum hættum á þessu sviði.
Sérstaklega ætti þetta fólk að gæta
þess að verða ekki fyrir kulda —
hita þolir það vel.
Happatölur em 1 og 8.
30 Vlkan 6. tbl.