Vikan - 07.02.1985, Blaðsíða 35
Draumar
Áskorun:
Hefur ykkur dreymt merki-
legan draum?
Hallfreður örn Eiríksson hjá Stofnun Árna Magnús-
sonar hafði samband við Vikuna nýverið vegna þjóð-
fræðilegra rannsókna á draumum, sem hann hefur
stundað um margra ára skeið.
Hann hefur áhuga á að komgst í samband við fólk
sem hefur dreymt táknræna drauma, annaðhvort
persónulega eða fyrir einhverjum atvikum í þjóðlífinu
eða jafnvel heimssögunni. Fólk á öllum aldri hefur
skrifað draumráðanda Vikunnar og bréf þess eru að
sjálfsögðu algjört trúnaðarmál en ef þeir sem hafa
skrifað þessum þætti eða eru að búa sig undir að gera
það lesa þessar línur myndu þeir gera rannsóknum
þessum mikið gagn ef þeir skrifuðu til Hallfreðar Arn-
ar Eiríkssonar, Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði
við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Þeir þurfa ekkert frekar
að senda drauma, bara að komast í samband við
hann, senda nafn, heimilisfang og símanúmer, og að
sjálfsögðu yrði farið með allt sem trúnaðarmál. Þeir
sem af einhverjum ástæðum vilja ekki skrifa beint
geta sent draumaþætti Vikunnar leyfi sitt til að gefa
Hallfreði upp nafn þeirra og heimilisfang og/eða síma-
númer. Þið getið líka getið þess, þegar þið sendið inn
drauma, hvort það sé í lagi að gefa Hallfreði upp nöfn
ykkar. Vonandi sjá einhverjir sér fært að verða við
þessari bón um liðveislu.
Eldsvoði í kjallara
Kcera Vika.
Geturðu beðið draum-
ráðningamanninn að ráða
draum fyrir mig? Hann var
á þessa leið:
Mér fannst ég vera á
Hlemmi (það var eins og
þar væri opið torg og sæist
til allra átta) ásamt mann-
inum mínum og tveim
vinum (sennilega hefur
annar þeirra verið F mágur
minn). Við vorum að
athuga með nýju strætis-
vagnaleiðirnar og mér
fannst þessir tveir fara hvor
í sinn vagninn — og mað-
urinn minn með öðr-
um þeirra — en hann kom
út á seinustu stundu
þannig að við stóðum eftir
á torginu og veifuðum
meðan þeir lögðu af stað t
hringferð hvor með stnum
vagni. Við ákváðum að fara
saman á veitingahús á
meðan og fórum inn í hús
þar sem karlmannafata-
verslunin er við Hlemm (á
Laugavegi, við hltðina á
Brunabótafélaginu). Þar
var gengið niður í frekar
vandað veitinga- eða
kaffihús í mildum litum,
komið nokkuð til ára sinna
en samt einhver stíll yfir
því. Við fórum niður
hringstiga. Þar fengum við
okkur sæti og vorum þá
komin með börnin okkar.
Allt t einu fannst mér vera
kominn eldur þar sem við
sátum og við hlupum frá,
svo snerist ég á hæli nokkr-
um skrefum frá og náði í
bömin. Eg þurfti að taka
það yngra ígegnum logana
en ekkert okkar meiddi sig
og það sá ekkert á okkur.
Eg vildi fara beint upp þó
eldurinn væri ekki mikill
og einangraður við stað fyr-
ir aftan þar sem við sátum.
Við fórum sem sagt upp
hringstigann ómeidd. Þar
endaði draumurinn að við
vorum þó eitthvað að snigl-
ast uppi í húsinu.
Með fyrirfram þökk fyrir
ráðningu, B.
Fyrri hluti draumsins
segir tii um framfarir hjá
þessum tveimur vinum
ykkar sem tóku sér far með
vagninum en eins og tíma-
bundna stöðnun hjá ykkur
hjónunum, jafnvel að þínu
frumkvæði þannig að þú
haldir aftur af eigin-
manninum í ákveðnum
málum sem síðan veldur
stöðnun hjá ykkur báðum.
Síðari hlutinn bendir til að
þetta tengist eitthvað fjár-
málum og þið eigið í mikl-
um erfiðleikum með að
gera ykkur grein fyrir í
hvaða átt skal snúa til
lausnar vandanum. Miklar
deilur blossa upp og tekur
það talsvert á ykkur bæði
um tíma. Hins vegar finnst
í lokin lausn, farsæl og ykk-
ur báðum að skapi, en áður
en hún kemur í ljós er mik-
ilvægt að reyna að halda
skapsmununum í skefjum.
Engu skiptir þótt lausnin
virðist að einhverju leyti
hálfgerð endaleysa — hún
nýtist ykkur samt og þið
standið betur að vígi í lok-
in.
6. tbl. Vlkan 35