Vikan


Vikan - 07.02.1985, Side 26

Vikan - 07.02.1985, Side 26
VÍDEÓ- VIKAN Hangar 18 (Flugskýli 18) Mannaðar geimferjur eða geim- skutlur, eins og loftför þau eru kölluð sem notuð eru til að kanna hin ytri loftlög og koma gervihnöttum á braut umhverfis jörðu, eru löngu orðnar að veruleika. Eitt sinn voru slíkir gripir hluti af ímyndunarafli höfunda vísindaskáldsagna. Þessi mynd hefst á því er áhöfn einnar geimferju nútímans er að koma fyrir gervitungli úti í geimn- um. Hún verður fyrir því óhappi að missa einn af mönnunum út í geiminn og samtímis rekst gervi- tunglið á loftfar, eitt af þeim sem ýmsir telja sig sjá af og til hér á jörðu niðri. Eftir óhappiö er áhöfn geim- ferjunnar skipaö að snúa við til jarðar. 1 stjórnstöð geimferjunnar á jörðu niðri verða menn varir við óþekkta loftfarið sem var í návist geimferjunnar. Þegar flugmenn geimferjunnar koma úr ferðinni taka þeir að grennslast fyrir um hvort stjórn- stöðin hafi orðið vör við það sama og þeir, en fá engin svör. Hins vegar verður maður nokkur á ferð í bO sínum vitni að því er geimfar lendir á jörðinni og tilkynnir það til lögreglunnar. Hæstráðendur í bandaríska flug- hemum láta kanna sannleiks- gildið og senda þyrluflugmenn til staðarins sem hafði verið gefinn upp sem lendingarstaður. Þeir sjá greinilega óþekktan hringlaga hlut úr þyrlunni og hverfa frá til að gefa skýrslu. I stjómmálalífinu er það að Byggð á sögu Tom Chapman og James L. Conway. Framleiðandi: Charles E. Sellier jr. Leikstjóri: James L. Conway. Tónlist: John Cacavas. Aðalleikarar: Gary Coll- ins, Robert Vaughn, James Hampton, Philip Abbott, Joseph Campanella og Pamela Bellwood. gerast í sömu andrá að kosningar til forseta standa fyrir dyrum og ekki þykir heppilegt að vekja for- vitni landsmanna með furðufréttum af lendingu loftfars utan úr geimnum. Það er því allt reynt til að þagga málið niður. Hið óþekkta loftfar er síðan tekið og flutt til geymslu í flugskýli 18 — og þar er sögusvið mynd- arinnar að mestu leyti eftir það. Og nú hefst rannsókn á loftfarinu og þar finnast menn sem eru fluttir til rannsóknar og kemur þá í ljós að þeim svipar að mestu til manna nútímans. Þessi mynd er í mörgu ólík öðrum myndum af þessum toga því hér er byggt á öðrum hug- myndum, sem sé þeim að hið ó- þekkta geimfar og önnur, sem jarðarbúar þykjast verða varir við af og til, séu frá okkur jarðar- búum sjálfum komin. Eru þau kannski að „skila sér” til baka. . ? Sagt er að um það bil tíu af hundraöi allra þeirra furðuhluta sem í Bandaríkjunum flokkast undir „óþekkt” fljúgandi loftför séu skilgreind sem „óútskýrð” af opinberum aðilum. Þetta staðfestir að mikill meirihluti Bandaríkjamanna trúir því að óþekktir furðuhlutir eigi viö rök að styðjast, séu til í raun og veru. Kvikmyndin Hangar 18 er ein- mitt um þess konar atvik, þar sem almenningur fékk loks eitthvað á- þreifanlegt — og trúlegt að auki. — Og hvað hefur ekki skeð á þróunarskermi vísindanna? Sannleikurinn um Jacqueline Bouvier Kennedy JAMES (NNLEIKURINN UM... IÍN£I ROD T/fLOR • STEPHEtiEj iSLENSKUR TEXTI Leikstjóri: Steven Gethers. Framleiðandi: Louis Rudolph. Hljómlist samin af Billy Goldenberg. Aðalleikarar: Jaclyn Smith, James Franciscus, Rod Taylor, Stephen Elliot, Claudette Nevis og Donald Moffat. Um John F. Kennedy, fyrrver- andi forseta Bandaríkjanna, hafa verið gerðar kvikmyndir og þær margar. Það hefur hins vegar farið minna fyrir kvikmyndagerð um konu hans og fyrrverandi for- setafrú, Jacqueline Bouvier. Nú er búið að bæta úr því með því að gera kvikmynd um þessa víð- frægu konu sem enn er í sviðsljós- inu. Þessi mynd, sem er frábær heimildarmynd um uppruna og líf forsetafrúarinnar fyrrverandi, er nú komin á myndbönd hér og er gefið heitið Sannleikurinn um Jacqueline Bouvier Kennedy. Þetta er glæsimynd um glæsi- lega konu og atburðaríkt líf henn- ar allt frá barnæsku. Myndin hefst á því þegar foreldrar hennar standa í stórræðum vegna skilnað- ar. Jacqueline var mjög hrifin af föður sínum. Gallinn var hins veg- ar sá að faðirinn, Mr. Bouvier, var ekki við eina fjölina felldur þegar áreiðanleikinn var annars vegar en sló um sig í f jármálum og hélt sig ríflega á yfirborðinu. Jacqueline varð að sætta sig við að vera í umsjá móður sinnar og stjúpföður og var send í skóla, þar sem hún reyndi hvað hún gat að fara sínu fram þótt það væri oftar en ekki á skjön við reglumar. Jacqueline trúlofast ungum manni en hittir hinn framgjama John Kennedy fljótlega eftir það og slítur trúlofuninni til að giftast honum. Hún stígur síðan inn í Hvíta húsið með manni sínum árið 1961. 1 myndinni er fjallað um ýmis- legt það sem henni viðkom sem forsetafrú, þar á meðal hvemig hún lét „greipar sópa” við endur- nýjun innandyra í Hvíta húsinu og kom því í nýtískulegra horf. Einn- ig lýsir myndin einkar vel skap- ferli hennar og sjálfstæði í flestu því sem varðaði framkomu og framsögn við opinber tækifæri. Það kemur glöggt fram í mynd- inni hve vinsæl hún var sem for- setafrú þegar þau forsetahjónin fara saman í ferðalag til Frakk- lands. Við komuna þangað og mót- töku á flugvellinum var hrópað: Jacqueline, Jacqueline en ekki Kennedy. — Enda sagði forsetinn við eitthvert tækifærið í þeirri ferð: „Ég hef haft einstaklega gaman af því að vera í fylgd konu minnar.” Stuttu eftir heimkomuna frá Frakklandi fóru þau hjónin í ferðalagiö afdrifaríka til Dallas í Texas. Það var í nóvember árið 1963. Varla þarf að rekja hvað þar gerðist, svo mjög sem um dauða Kennedys forseta hefur verið rit- að. Jaclyn Smith, sem leikur for- setafrúna, er þekkt andlit úr sjón- varpinu vestanhafs. Hún var kosin fegursta konan í Bandaríkjunum árið 1982. — En það allt og meira til sjá þeir sem ná sér í myndband- ið meö kvikmyndinni um Jacque- line Bouvier Kennedy. 26 Vikan 6. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.