Vikan - 07.02.1985, Blaðsíða 24
Hvílum þreytt augu
Það neitar því enginn að augun eru undir miklu
álagi allan daginn. Við að horfa á pappíra og smáa
hluti, rýna í sögubækur og dagblöð við litla birtu og
horfa á sjónvarp og vídeó langt fram á nótt þreytast
augun meira en góðu hófi gegnir. Þar sem er léleg
loftræsting geta alls kyns agnir leynst í loftinu. Þær
erta augun og auka vanlíðan okkar. Því veitir ekki af
að gefa nokkur ráð sem nota má með góðum árangri til
að hvíla þreytt augu.
1.
Slappiö af. Leggist á bekk, slakið á
öllum vöðvum og tæmið hugann.
Leggið kalda, vota tepoka yfir augun,
kamillute hentar mjög vel. Látið þá
liggja á augnlokunum góða stund á
meðan þið finnið þreytuna líöa hjá.
2.
Hér er einnig nauðsynlegt að slaka
vel á. Leggið þunna gúrkusneið yfir
augun en gúrkusneiðar gera einnig
mikið gagn fyrir húðina. Þá nuddið
þið andlitið með gúrkusneiðum og all-
ar svitaholur lokast um leiö.
3.
Þrútin augu eru sjaldnast fögur sjón.
Gamalt húsráð segir aö hráar kartöfl-
ur geri kraftaverk við þrota. Skafið
ósoðna kartöflu, 4 matskeiðar, og
leggið ofan á augun. Látið þetta liggja
í 15 mínútur.
4.
Til að fjarlægja óhreinindi og farða og
til að halda augunum unglegum er
gamalt ráð að nota ólífuolíu. Vætiö
bómullarhnoðra i ólífuolíu og nuddiö í
kringum augun. Byrjið við gagnaugu
og strjúkið í átt að augnkrók.
5.
Það þarf ekki alltaf aö nota utanað-
komandi hjálparmeöul til aö reka
þreytuna á brott. Kreistið augun fast
aftur, slakið síðan alveg á og galopnið
augun að lokum. Endurtakið þetta
nokkrum sinnum.
6.
Stundum finnum við fyrir þyngslum á
"k við augun. Einfalt nudd getur
,ið bót á því. Þrýstiö með þumal-
fingrum á svæðið fyrir ofan augnkrók-
ana. Nuddið síðan fast meðfram aug-
unum niður nefbeiniö sitt hvorum
megin.
Z4 Vlkan 6. tbl.