Vikan


Vikan - 07.02.1985, Blaðsíða 47

Vikan - 07.02.1985, Blaðsíða 47
silfurlitur skuggi á húðinni. Því miöur voru ummerkin um brotnu rifin auðsæ og hún varð að muna að sýna Nathan ekki vinstri hlið- ina í nokkra mánuði og halda handleggnum að síðunni hvenær sem hún gat. Hún æfði sig í því fyrir framan spegilinn. Á miönætti sló klukkan á borð- inu. Það var enginn tími til að slóra! Emma flýtti sér inn í búningsherbergið, hellti í skál volgu, rósaangandi vatni úr könnu sem ævinlega var höfð þar full og þvoði sér með svampi frá hvirfli til ilja. Rósaolía var borin á enni, brjóst, nafla og læri. Örlítið kol í augnkrókana, vottur af rauðu á varimar og geirvörturnar — og hin fagra, unga og ástríðufulla lafði Devizes var reiðubúin undir sælan ástarfund. Átti hún að vera í náttkjól? Hún hélt ekki, sama hvað hann væri efnisrýr og tælandi fyrir augað. Emma var aðeins klædd í rósailm er hún klöngraðist upp í stóru himinsængina sína, fölbláa með silfruðum kerúbum uppi, blés á öll kerti utan eitt á náttborðinu sínu, krosslagði handleggina undir höfðinu og beið með vaxandi ákafa eftir því að elskhugi hennar berði að dyrum. STUNDINNI fyrir dögun, þegar svo margar sálir hverfa á braut, tók hún aö vakna. Hún teygöi sig hálfsofandi eftir elskhuga sínum. Hann svaraði, strauk fingri niður líkama hennar frá eyrnasnepli, niður hálsinn, yfir öxl og brjóst, eftir mittinu, rasskinnum, lærum. Hún andvarpaöi, sneri sér á hliðina til að leitandi hönd elsk- huga hennar hefði greiðari aðgang og hlustaði úr einkennilegri fjar- lægð á andardrátt sinn verða jafnvel blygðunarlaust ákafan — svar við þeim dásamlegu atlotum sem hann sýndi henni. Hún hreifst upp yfir veruleikann og barst áfram á töfrum nafns hans sem hún hvíslaöi hvað eftir annað meðan á fundi þeirra stóð og braust fram í skært sólarljós alsælunnar. Nú var hún alveg vöknuð, deplaði augunum móti birtu veruleikans sem seytlaði inn um rifurnar á gluggahlerunum. Þetta var engin sólarbirta fjarlægrar sælu heldur grá skíma enskrar dögunar í ausandi sumarregni. Hún heyrði hvemig það streymdi niður fyrir utan og hvernig skvampaði í yfirfullum ræsunum. Með sársaukastunu, vitandi að leitin væri árangurslaus þó hún hæfi hana, teygði Emma aftur út höndina eftir elskhuga sínum. Fingur hennar fundu ekki annað en köld lökin í hinum helmingi stóra rúmsins, þeim hluta sem hún hafði ekki legið í, þeim hluta rúmsins þar sem enginn hafði legið þessa nótt nema í ímyndun hennar. Og svo komu tárin. Það hafði enginn elskhugi komið til hinnar fögru, þurfandi lafði Devizes. Áætlanirnar og her- kænskan, sem hún hafði gert Nathan Grant upp til að hann kæmist að rúmi hennar, hafði ein- göngu verið í hennar huga, ekki hans. Sælunni var lokið. Eftir var bara lítið líf í vöggu í barnaher- berginu aftast í húsinu, með út- sýni yfir St. James torg og hæðirnar handan þess, sem minnti á tíma mikillar ástar. Og við þetta líf hafði Nathan Grant — hvort sem hann bar ekki kennsl á þetta barn sem ávöxt lenda sinna eða kaus að láta sem hann gerði það ekki — ekki lengur neitt samband. Framhald í næsta blaði. TALBOT SAMBA Peugeot 205 GL og GR. Mjög sparneytinn. Vélarstærðir 1124 cc og 1360 cc. Framhjóladrifinn. 4eða 5gíra. 5dyra. Verð frá kr. 381.000,- 6 ára ryðvarnarábyrgð. Hafrafell hf. Vagnhöfða 7 Símar: 685211 og 685537 Talbot Samba GL. Mjög sparneytinn. Vélarstærðir 1124ccog 1360 cc. Framhjóladrifinn. 4gírar. Verð frá kr. 319.000,- 6. tbl. Vikan 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.