Vikan - 07.02.1985, Blaðsíða 36
Efni:
Stretsefni, 0,75 m langt, 1,40 m
breitt.
Skyrtuefni, 1,70 m langt, 0,90 m
breitt.
Svört teygja, 2 cm breið, 70—72 cm
löng.
Tölur eða smellur.
Stærð: 3—4ára.
Ath.: Bætið við saumfari, 1 cm,
þegar þið sníðið.
Vinnulýsing: Buxur: Saumiðfram-
stykkin saman fyrst og síðan bak-
stykkin. Þá eru hliðarnar saumaðar
saman og að lokum klofsaumur-
inn.
Ath. Ef þið viljið hafa klauf á bux-
unum innanverðum saumið þið
sauminn niður þar til 5 cm mælast
frá neðri brún. Þá er jaðarinn á
klaufinni faldaður í vélinni.
Strengur: Brjótið niður að ofan,
fyrst 1/2—1 cm sem fer undir þann-
ig að jaðar sjáist ekki. Síðan brjótið
þið aftur skv. merkinu á sniðinu,
eða þannig að 2 cm breið teygja
komist inn í strenginn. Saumið síð-
an strenginn niður í vél. Að lokum
stangið þið niður í efstu brún.
Frágangur: Faldið buxurnar að
neðan. Saumið síðan teygjuna við
skálmarnar. Best er að mæla við
barnið hvað teygjan þarf að vera
löng undir fætinum. Festið teygj-
una fyrir aftan klaufina. Dragið síð-
an teygjuna inn í mittisstrenginn.
Fallegt er að festa hanka fyrir belti.
Sníðið stykki, ca 24 cm langt og 2
cm breitt. Hankarnir eiga að vera 1
cm breiðir á buxunum. Brjótið efn-
ið inn frá miðju, brjótið síðan jaðr-
ana að miðju og leggið svo efnið
saman. Stangið hliðarnar niður.
Skiptið þessu niður í 4 hanka og
festið við strenginn ÁÐUR en þið
setjið teygjuna inn í strenginn.
Jfc Vlkan 6. tbl.