Vikan


Vikan - 07.02.1985, Page 19

Vikan - 07.02.1985, Page 19
Ég stakk katlinum í samband, geispaði og dró frá glugganum. Hvað í ósköpunum. . .? Eg pírði augun gegn sólskininu. Svo lokaði ég þeim og opnaði þau aftur til að ganga úr skugga um að ég sæi ekki ofsjónir. Ég sá ekki ofsjónir. GIFSTU MER, MARGRÉT var skrifað með heiðbláum, metra- háum stöfum á gaflinn andspænis mér. Nei! Ekki aftur! Ég fór í símann. Það hefði verið ódýrara og auðveldara að opna gluggann og hrópa: „Nei! I þriðja skipti, nei!” öskraði ég og skellti á. Meðan ég var að drekka kaffið mitt opnaðist gluggi á húsinu á móti og ljóst höfuð kom í ljós. Jafnvel blá augun hlógu. „Það var sjálfsagt að reyna aft- ur,” kallaði Gavin og brosti út að eyrum. „Fátækur listamaður eins og ég verður að ná í góða, vinnu- sama stúlku eins og þig! ” „Þú ert ekki fátækur listamað- ur! ” öskraði ég á móti og vakti þá af nágrönnunum sem ekki voru þegar vaknaðir. „Svo ætla ég að fara í mál við þig út af þessu lista- verki þínu!” „Þú getur ekki farið í mál við mig út af því,” svaraði Gavin. Mig langaði að slá hann en vildi ekki detta út um gluggann. „Ég á þetta hús og get málað það eins og ég vil.” Hann lokaði glugganum og ég andvarpaöi. Eg var nýsloppin við yfirvofandi hjónaband og vildi ekki stofna mér strax í hættu. Gömul skólasystir mín hafði boðið mér íbúð sína í hálft ár þeg- ar slitnaði upp úr trúlofun okkar Duncans. Hún var að fara til Bandaríkjanna. „Þú hefur gott af að skipta um umhverfi,” sagði hún. „Það verð- ur auðveldast þannig. Þú getur skroppið heim um helgar. Duncan var indæll en einhvem veginn leist mér ekki á aö heita frú Stewart um aldur og ævi og hafa tvo eða þrjá litla Duncana í eftirdragi. Þaö hlaut að vera annað og meira í góðu hjónabandi en það! Svo kunni ég vel við mig hjá Fotherby og bjóst viö að hækka fljótlega ítign. Einhver gáfumaðurinn hefur tekið eftir því að hæfileikar mínir nutu sín ekki sem skyldi við ritvél- ina því að ég hafði aðeins verið í sex vikur hjá Fotherby þegar ég var kölluö upp til útbreiðslustjór- ans. Innan tíu daga hafði ég kvatt þær í almenningnum með sérríglasi og var sest við spánnýtt skrifborð og á veggjunum í kring voru teikningar og ljósmyndir af nýjustu tískunni hjá Fotherby. Eitt hundrað og fimmtíu ár í far- arbroddi og slagoröið var: Besta búðin ísuðvestrinu. Báðir símarnir hringdu hvor í kapp við annan morguninn sem Gavin Blandford kom inn í líf mitt meö úttroðna möppu undir hand- leggnum. Þama sat ég og vissi hvorki upp né niður og yfirmaður minn var ekki kominn, en Gavin hugsaöi að- eins um sjálfan sig. Mig minnir aö hann hafi verið að þvaðra um eitt- hvert listaverk sem ég vissi ekki einu sinni að væri til. „Gætirðu komiö eftir mat?” sagði ég og reyndi að vera kurteis en vonaði sífellt að Tina Travers færi að koma af tískusýningunni svo að ég losnaði við þennan mann. „Það er ekki nóg eftir mat,” sagði hann ákveðinn og settist á borðið hennar Tinu með kross- lagða handleggi. Eg sá að honum fannst bráðfyndið að horfa á mig reyna að svara í tvo síma í einu. „Jæja!” Hann reis á fætur. „Þá förum við að borða til að flýta fyrir því að „eftir mat” komi! ” „Við förum ekki út saman að borða.” Eg stakk höndunum í pils- vasana og stóð föstum fótum á gólfinu. En gesturinn lét sem hann sæi þetta ekki, hann henti í mig jakkanum, ýtti mér út og næstum tróð mér inn í lyftuna. „Eg er ekki vanur að ræna fall- egum stúlkum,” sagði hann yfir bjórglasinu. „En það var nauð- synlegt núna. Viltu giftast mér?” „Ertu genginn af göflunum?” 6. tbl. Vikan 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.