Vikan - 07.02.1985, Page 27
Umsjón: Geir R. Andersen
China Rose
(Kínverska rósin)
Eftirlýstar myndir
Leikstjóri: Robert Day.
Framleiðandi: Robert
Halmi jr.
Aðalleikarar: George C.
Scott og Ali MacGraw.
Sýningartími er 120 mín
Auöugur bandarískur
kaupsýslumaöur tekst á hendur
ferð til Kína, nánar tiltekið
Canton-héraðs, til þess að leita að
syni sínum. Sögusviðið endur-
speglar vel hin dulmögnuöu
Austurlönd og hér kynnumst við
Kína nútímans.
Myndin byggir á
sannsögulegum heimildum og
gerist eftir menningarbyltinguna í
Kína.
Aðalsöguhetjan, sem er leikin
af George C. Scott, er viss um að
sonurinn hafi verið myrtur í bylt-
ingunni. Hann hefur ráðið sér leið-
sögumann (Ali MacCraw) til að
aðstoöa sig við leitina.
Saman gera þau örvæntingar-
fullar tilraunir til að komast að
sannleikanum um örlög sonarins.
Leitin leiðir þau dýpra og dýpra
inn í undirheima pólitískrar
spillingar og eiturlyfjafram-
leiðslu.
Eftir að þau fá upplýsingar um
að hinn týndi sonur hafi farið frá
Canton til Hong Kong færist
sögusviðið þangað og gerist
myndin ýmist innan nýtísku hótel-
veggja eða á götum og hafnar-
bökkum hins nafntogaða borg-
ríkis.
Þetta er örlagaþrungin mynd
um tvær manneskjur í veröld sem
virðist oftar en ekki vera að
hrynja í kringum þær. I myndinni
kemur George C. Scott enn á
óvart með frábærum leik og þeim
std sem hann einn hefur lag á að
beita. Áhugafólk um kvikmyndir
man eftir honum úr Patton, Hard-
core og sem tónlistarkennaranum
í The Changerling.
Ali MacGraw, sem leikur leið-
sögumanninn, er fræg fyrir leik
sinn í myndinni The Getaway og
ekki síður Love Story.
Myndin er með íslenskum
texta.
í framhaldi af umfjöllun um
Jacqueline Kennedy myndina hér
í þættinum koma örlög forsetans
sjálfs upp í hugann. Um þau hefur
verið fjallað í kvikmyndum og þá í
ýmsum útgáfum.
Eina þeirra var hægt að fá á
myndbandaleigum eða -leigu hér
þar til fyrir skömmu. Kvikmyndin
heitir HARRY og OSWALD. Þetta
var einstaklega vel gerð mynd og
lýsti aðdragandanum að morðinu
á Kennedy forseta og öðrum at-
burðum því tengdum, svo sem
þegar Lee Harry Oswald, meintur
morðingi Kennedys, var skotinn
til bana í fangelsinu.
Það er eins og þessi mynd hafi
hreinlega „gufað upp” á mynd-
bandaleigunum. Ef hins vegar
einhver lesenda okkar kynni að
hafa rekið augun í þessa mynd á
myndbandaleigu eða séð hana
nýlega væri okkur akkur í því að
fá fregnir af henni til þess að geta
kynnt hana hér í þættinum.
Önnur kvikmynd og ekki síðri
hefur ekki gert víðreist á mynd-
bandaleigunum að undanfömu en
var til dæmis lengi vel til staðar í
Vídeóspólunni á Holtsgötu.
Þetta er myndin THE
ELIMINATOR. Hún fjallar um
fund þeirra Stalíns, Churchills og
Roosevelts í Teheran árið 1943 —
og upp komst um samsæri gegn
þeim meðan á fundinum stóð.
Mynd þessi er með þeim betri
sem gerðar hafa verið um
samsæri af þessu tagi og afleiðing-
ar þess og uppljóstrun löngu eftir
stríð. — Aðalleikari í myndinni er
Alain Delon og gerist myndin bæði
nú á dögum jafnt og þegar þessir
þrír „stóru” voru að fjalla um
heimsmálin í Teheran.
Þeir sem gætu gefið upplýsing-
ar um þessa frábæru mynd gerðu
okkur greiöa með því að láta
okkur hér á Vikunni vita, svo hægt
sé að fjalla um hana eins og hún á
skiliö.
Viö höldum áfram að kynna
frambærilegar og áhugaverðar
myndir í næsta blaði og kveðjum
að sinni að kvikmyndasið: „stand
by”.
6. tbl. Vikan 27