Vikan


Vikan - 07.02.1985, Page 54

Vikan - 07.02.1985, Page 54
~a Barna Vikan Nú er febrúarmánuður genginn í garð og febrúar hefur aðeins 28 daga. Þótt þessi mánuður sé stysti mánuður ársins á hann marga skemmtilega daga. 18. febrúar er bolludagur og þá er nú eins gott að eiga bolluvönd til að flengja pabba og mömmu og fá bollur að launum. 19. febrúar er sprengidagur en þá borða flestir hér á landi saltkjöt og baunir eins og þeir geta í sig látið. Eftir sprengidag kemur svo ösku- dagur sem er oft mikill fjördagur hjá ykkur krökkunum. Dagana í kringum öskudag eru haldin grímu- böll hér og þar og sumir klæða sig í grímubúninga á sjálfan öskudaginn og fara um með öskupokana sína og slá jafnvel köttinn úr tunnunni. Það getur verið gaman að útbúa sjálf grímubúningana eða jafnvel bara grímu til að bera á öskudaginn. Það sem þið þurfið er hvítur pappi, teygja, skæri og litir og kannski smáhjálp frá eldra heimilisfólki. Ef þið fáið einhvern til að hjálpa ykkur við að útbúa reiti á hvítan pappann (sem verður að vera nógu stór fyrir andlitið á ykkur) þá getið þið sjálf teiknað grímurnar. Þegar þið eruð búin að því klippið þið gat fyrir augun og tvö lítil göt á hliðunum til að festa teygjurnar. Að lokum er ekkert eftir nema að klippa grímurnar, lita þær og festa teygjurnar (eða lita þær fyrst og Bráðum koma grímuböllin 54 Vlkan 6. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.